Heimilisritið - 01.02.1958, Page 54
ekki hefur nein áhrif á konur.
Of mikill íburður í klæðnaði
veldur grunsemdum. Nei, hinn
rétti veiÖimannabúningur er auð-
vitað venjuleg jakkaföt, hreinleg
og fábrotin. Það vekur tiltrú og
öryggi og það eru hlutir, sem
gott er að hafa. Hún mun trúa
á yður og með réttu getið þér
klappaS yöur sjálfum á öxlina og
sagt: ,,Bravó, gamli vinur, nú
ertu búinn aS ná henni!“
Svona nú, hægan karlinn ! Gort
og lýgi eiga ekki heima í þessu.
Ekkert fjas um ríka frændur í
Ameríku eða mikla arfsvon. Um
aS gera aS leika hlutverk hins
virSulega borgara í traustri og
góSri stöSu, þaS er afbragðs
beita. TaliS frjálsmannlega og
eðlilega, og smeygið inn á milli
ljóSlínum og spakmælum, ein-
hverjum hugnæmum ljóSperlum.
Ef þér hafið ekkert handbært af
slíku, þá segiÖ bara eitthvað um
stjörnurnar, það er alveg sama
hvað það er, bara eitthvað um
stjörnur. ÞaS rennur ljúflega nið-
ur allt saman.
Og svo aðeins eitt í viðbót, þá
hafiÖ þér hæft allar veiku hliSar
hennar. StanziS fyrir framan
gluggana í öllum tízkuverzlunum
og horfið á útstillinguna eins
lengi og hana lystir. SegiS henni
hvað hún sé vel klædd, og hlæj-
ið að gínunum í glugganum. Ha-
ha ! SegiS henni líka, að hún sé
eina konan í heiminum, sem
hafi vit á því að klæða sig skyn-
samlega og sé ekki eyðslusöm.
MinniÖ hana á löngun kvenna í
íburð og glys, sem hafi verið svo
óskaplegt við hiröina hjá LúSvík
sextánda Frakkakonungi, að þaS
hafi leitt til frönsku byltingarinn-
ar. Ef hún hefði veriö uppi þá,
hefði ekki orðið nein bylting.
GefiS henni eitt eða tvö pör af
nylonsokkum og segið henni að
hún sé ,,bjarmi þinna vona“.
Ö ! Og svo einn koss og tvenn
pör í viðbót. Alltaf tvenn pör f
viðbót.
Ágætt, reyniS nú að telja upp
alla ágæta eiginleika ySar. Þér
eruð frumlegur og tilfinninga-
næmur andi, rómantískur, traust-
ur félagi og fæddur sérfræöingur
í sálarfræSi kvenna. Auk þess
eruð þér virðulegur borgari í
fastri stöðu, menntaður og heill-
andi, hafið áhuga fyrir kvenfatn-
aði, þekkingu á mannkynssögu
og hæfileika til að yrkja fögur
ljóð. Nú ætti aS vera kominn
rétti tíminn til þess að ná bráð-
inni. Já, ef þér hafiS farið ná-
kvæmlega eftir þessum leiðarvísi,
þá hafið þér veitt hana, það er
alveg öruggt mál. Hún hefur fyr-
ir löngu fengið ást á yður, þér
eruð slíkt afbragð annarra manna
og hafið alla eiginleika, sem
52
HEIMILISRITIÐ