Heimilisritið - 01.02.1958, Page 5

Heimilisritið - 01.02.1958, Page 5
enda þótt Simone væri fjarver- andi. Það var ekki að furða þó að Annik breytti um háralit þegar Hún las þessa frásögn blaðsins. Um þessar mundir var blaða- pappír skammtaður og blaðið hafði því ekki haft fulla frásögn af þessu máli, en Simone vissi meira en sagt var í blaðinu og hún gat því enn dulið fortíð sína. Fjórtán ára að aldri hafði Si- mone verið dregin fyrir rétt vegna þess að foreldrar hennar gátu ekki haft neina stjórn á henni. Hún var stór eftir aldri og vel þroskuð og á þeim tíma — árið 1944 — voru margar freistingar fyrir unga og framgjarna stúlku, því að lög og reglur höfðu lítið gildi um það leyti sem landið frelsaðist undan hernámi Þjóð- verja. Simone hafði gengið of langt. Hún hafði stolið og var dæmd til vistar í betrunarhæli og átti að vera þar um óákveðinn tíma. Hið drungalega líf í betrunar- hælinu var erfitt fyrir unga stúlku, sem sóttist eftir aðdáun karlmanna, og Simone ákvað fljótlega að flýja. Yfirvöldin voru um þessar mundir alltof upptek- m við að fangelsa svikara og stuðningsmenn Þjóðverja, og þess vegna var fámennt starfs- lið á betrunarhælinu. Simone notaði þessa aðstöðu til þess að flýja þrisvar, og í hvert skipti missti hún möguleikann á því að fá dóminn yfir sér endur- skoðaðan. í þriðja skiptið, sem hún flýði, ákváðu yfirvöldin að senda hana í fangelsið í Tourelle, en þaðan var að heita má óhugs- andi að flýja. EN yfirvöldin reiknuðu ekki með slægð Simone. Að kvöldi 31. júlí 1947 heyrðist væl í síren- um í hluta af Tourelles-fangels- inu og þar kom upp eldur. Kven- fangarnir æptu upp og görguðu og heimtuðu að fá að fara úr klefum sínum, en gæzlukonurnar reyndu að slökkva eldinn, sem greinilega hafði verið kveiktur af ásettu ráði. Þegar slökkviliðið kom á vettvang, fékk það ekki ráðið við eldinn, og kvenföngun- um hafði verið leyft að fara úr klefum sínum svo þær brynnu ekki inni. Það þarf ekki að geta þess, að 22 stúlkur höfðu hætt að æpa þegar þær voru orðnar öruggar — fyrir utan múra fangelsisins. Þær hröðuðu sér á brott út í myrkrið. Á meðal þeirra var hin ljóshærða Simone Molter og vin- kona hennar, Louise Bayonne, báðar innan við tvítugt og nægi- lega aðlaðandi til þess að vera visar um það, að þær gætu orð- HEIMILISRITIÐ 3

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.