Heimilisritið - 01.02.1958, Page 13
HORFIÐ FOLK
Þúsundir manna hverfa á ári hverju
NÍU ÁR AÐ SÆKJA EINN
POTT AF BJÓR
Fólk lendir stundum á forsíð-
um blaðanna fyrir það eitt að
missa minnið. Stúlka frá London,
sem var að tína blóm, týndi heil-
um sólarhring úr lífi sínu, og átt-
aði sig allt í einu, þar sem hún
var stödd nálægt vegi uppi í
sveit. Formaður verkalýðsfélags
kom til sjálfs sín í Genf í Sviss,
þar sem hann var að endurlifa
ferðalag, sem hann fór fyrir fjór-
um árum !
Þessi dæmi eru aðeins sýnis-
horn af um 10.000 tilfellum, sem
koma fyrir í Englandi á hverju
ári; sum fást aldrei upplýst.
Oftast er það, að fólk ,,hverf-
ur , þegar það er að framkvæma
hversdagslegustu verk — sumt
af því kemur aldrei aftur heim.
Maður í Dorking í Surrey,
labbaði að heiman og ætlaði í
uæstu krá, hundrað metra í burtu
og kaupa sér pott af bjór. Níu
árum síðar gekk hann inn um
dyrnar heima hjá sér, með bjór-
inn í hendinni, brosandi ánægju-
lega eins og ekkert hefði í skor-
izt. Hann keypti bjórinn, þegar
minnið allt í einu kom aftur !
Átján ára gamall piltur var
sendur í búð til að kaupa pund
af lifur. Hann kom heim aftur
— tuttugu og átta árum síðar —
með lifrina. Þegar hann fékk
minnið aftur, var hann að vinna
í Alaska. Hann flýtti sér heim
til Englands og keypti lifrina, áð-
ur en hann kom heim til sín.
Menn skyldu halda, að ekki'
væri mikil hætta á, að menn
,,hyrfu“ á brúðkaupsferð, en þó
hefur það borið við. Maður einn
gekk um, meðan konan hans
skrapp í búðir, hann labbaði í
þrjá daga, unz skórnir hans voru
orðnir sólarlausir, kom síðan
heim, án þess að hafa hugmynd
um, hvar hann hefði verið.
„ÉG SKAL SÝNA ÞEIM“
Sjö þúsund af þeim tíu, sem
heimilisritið
11