Heimilisritið - 01.02.1958, Síða 19

Heimilisritið - 01.02.1958, Síða 19
,,Nú verÖur Charlotta að skemmta,“ hrópaði Tim glað- lega, eins og hugmyndin væri hans eigin. — ,,Við viljum sjá Charlottu dáleiða.“ Hinir karlmennirnir tóku þeg- ar undir þá ósk hans og þegar Charlotta hafði látið þá ganga á eftir sér nokkra stund, lét hún loks tilleiðast. — Jæja, þá það,“ sagði hún. ,,Hver gefur sig þá fram af fúsum vilja?“ ,,Það er skrýtið,“ hugsaði Mary með sér. ,,Að ég skuli aldrei fyrr hafa tekið eftir því, að hún horfir bara á strákana, þegar hún ber fram þessa spurn- ingu.“ En áður en nokkur af ungu mönnunum fengi tíma til að svara, spratt Mary á fætur: •—- ,,Charlotta,“ hrópaði hún með ákafa. — ,,Kannske þú reynir að dáleiða mig.“ Undrunarsvipur kom á andlit Charlottu, en svo tókst henni að láta sem ekkert væri: ,,Eins og þú vilt, Mary,“ sagði hún eins yfirlætislega og henni var frek- ast unnt. — ,,Lánið þið mér þá blað og blýant.“ Hún hripaði nokkur orð á blað- ið, þannig að skriftin sneri niður. Því næst gekk hún hægt og tígu- lega til Mary og byrjaði að pata með höndunum, baða út fingr- unum og ranghvolfa í sér aug- unum. Mary stóð hreyfingarlaus á miðju gólfinu og starði tómlega fram fyrir sig. Svo togaði hún kjólinn hægt og rólega upp um sig, opnaði lásinn á beltinu, sem hélt pilsinu á sínum rétta stað, smeygði því með nokkurri fyrir- höfn út af mjöðmunum og lét það renna niður á gólf, þar sem það lá eins og hringur í kringum granna og stælta fótleggi henn- ar. Allir viðstaddir stóðu á önd- inni og störðu agndofa á aðfar- irnar. Aðeins í augum Ðellu Tracy brá fyrir snöggum skiln- ingsglampa og hún brá hendinni yfir munninn, til þess að leyna brosinu er flögraði um varir hennar. Mary andvarpaði, steig út úr hringnum, sem pilsið myndaði um fætur hennar og horfði með fjarrænum svip niður á annan, rauða ilskóinn sinn. Svo lyfti hiin fætinum, losaði ristarbandið og sparkaði af sér skónum. Þannig fór einnig með hinn skóinn. Sjálf virtist Charlotta eiga mjög erfitt með að trúa sínum eigin augum. Nú lyfti Mary báðum handleggj- unum upp í loftið og það var eins og veikur skjálfti færi um allan granna, fáklædda líkamann. Svo beygði hún sig með mjúkum, HEIMILISRITIÐ 17

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.