Heimilisritið - 01.02.1958, Page 20

Heimilisritið - 01.02.1958, Page 20
þokkafullum hreyfingum, losaði fyrst annað sokkabandið, síðan hitt og smeygði sér að því búnu úr sokkunum. Hún stóð stundar- korn með sinn sokkinn í hvorri hendi og horfði á þá með fjar- rænum svip, en lagði þá svo til hliðar. Nú stóð hún þarna í stuttum og mjög skjóllitlum nærbuxum einum klæða. En hún lét ekki þar við sitja. Þegar hún teygði hendurnar aftur fyrir bakið og ætlaði að fara að losa brjósthald- arann, var Bob loks nóg boðið. Hann snaraðist leiftursnöggt að Charlottu. „Láttu hana hætta,“ hrópaði hann æstur. ,,Og það undir eins, ef þú vilt ekki hljóta verra af.“ Því næst hrifsaði hann sjal frá einni stúlkunni og sveipaði því yfir nakin brjóst og herðar Mary. ,,Þetta held ég að sé nú fulllangt gengið," hreytti hann út úr sér og gaf Charlottu illt auga. Charlotta byrjaoi í einhverju skelfingaræði að baða út hönd- unum, framan við nefið á Mary, en Bob hélt áfram með vaxandi reiði: ,,Já, en það var líka allt annað, sem ég ætlaði að láta hana gera,“ stundi Charlotta alveg örvilnuð og með grátstafi í kverkunum. ,,Ég get sannað ykkur það. . . .“ Hún hljóp yfir að borðinu, þar sem miðinn átti að liggja, en greip í tómt. — ,,Hva . . . hvar . . .? Della drap tittlinga framan í Mary og sýndi henni, svo að lít- ið bar á, miðann, sem hún hélt leyndum í lófa sínum. Charlotta fann nú að loftið um- hverfis hana hafði skyndilega kólnað að miklum mun. Máttur hennar og áhrif voru þrotin og hún vissi það vel sjálf. Hún reigði sig, kastaði hnakka með þrjózku- legum svip og sagði: — ,,Það er líklega bezt fyrir mig að fara að hyggja til heimferðar.“ Svo hljóp hún upp í herberg- ið sitt, til að búast til brottferð- ar og enginn gerði tilraun til að hreyfa andmælum. Bob stóð enn í sömu sporum með Mary í faðminum og hélt saman sjalinu, er huldi nekt hennar. — „Hvernig líður ves- lings litlu stúlkunni minni ?“ spurði hann ástúðlega. ,,Ef ég á að segja alveg eins og er, þá hefur mér aldrei nokk- urn tíma á ævinni liðið betur en einmitt núna,“ svaraði hún og þrýsti sér enn fastar að honum. Svo leit hún í kringum sig, til hinna, sem viðstödd voru, og bætti við: — ,,Eg verð víst ann- ars að játa það hreinskilnislega að Charlotta dáleiddi mig alls ekki. Ég vissi ósköp vel hvað ég 18 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.