Heimilisritið - 01.02.1958, Side 32
það voru, sem myrtu Anastasia,
svo að yfirvöldin hafa því enga
möguleika á að ,,vernda“ þessa
menn. En hluthafarnir í Morði
h.f. vita hverjir þeir eru og hlut-
hafarnir í því félagi eru ekki nein-
ar veimiltítur.
FORSTJÓRI MORÐFÉLAGS
Albert Anastasia var 55 ára að
aldri og það má segja að staða
hans hafi verið framkvæmda-
stjórastaða í Morði h.f. — eða
Murder Inc. eins og það var kall-
að á ensku. Það er furðulegasta
glæpafélag, sem heimurinn hef-
ur kynnzt og hefur á samvizk-
unni ekki færri en þúsund manns-
líf.
En það var ekki samvizkan,
sem nagaði hinn kaldrifjaða bófa-
foringja Albert Anastasia þegar
hann kom inn í hina íburðar-
miklu rakarastofu í hótelinu hinn
25. október síðastliðinn, og bað
um klippingu. Hann var bros-
andi út að eyrum þegar hann
settist í stólinn og fékk drifhvíta
þurrku framan á sig. Hann var
í þungum þönkum og lokaði aug-
unum og beið eftir því að rak-
arinn tæki til við klippinguna.
Tveir dökkklæddir menn höfðu
komið hljóðlega inn í rakarastof-
una. Þeir voru báðir með dökk
gleraugu og dökkan klút yfir
neðri hluta andlitsins og svartan
hanzka á hægri hendi. Báðir voru
með skammbyssu í hægri hendi.
— Mennirnir ýttu rakaranum til
hliðar og tóku sér stöðu fyrir aft-
an Anastasia. Augu hans voru
enn lokuð er fyrsta skotið reið of
og fór í gegnum vinstri hendi
hans. Báðir mennirnir gripu um
gikkinn og hleyptu af mörgum
skotum, 10—12, en fimm þeirra
hæfðu Anastasia, sem rétt hafði
tíma til þess að gera sér grein
fyrir því, að það var verið að
myrða hann. í ofsahræðslu kippt-
ist hann svo harkalega við í stóln-
um, að fótafjölin á stólnum, sem
var úr málmi, hrökk af. Svo datt
hann á gólfið. Mennirnir tveir
fullvissuðu sig um að Anastasia
væri dauður — og hurfu.
Það er ekki hægt að komast
hjá því, að Albert Anastasia var
sjálfur búinn að búa sér þessi
endalok. í fjörutíu ár hafði hann
gert gys að lögunum og sloppið
undan öllum ákærum, meðal
annars ákærum um að vera sam-
sekur um 63 morð. Það er senni-
legt að hann hafi framið flest
þeirra sjálfur, en lét undirmenn
sína um hin. Albert Anastasia,
sem réttu nafni hét Umberto
Anastasia, byrjaði glæpaferil
sinn svo að segja á þeirri sek-
úndu, sem hann gekk á land í
höfninni í New York árið 1917,
en þá kom hann sem. ítalskur
30
HEIMILISRITIÐ