Heimilisritið - 01.02.1958, Síða 41

Heimilisritið - 01.02.1958, Síða 41
Ég hafði aldrei verið hamingju- samari en kvöldið eftir, þegar ég hitti Clem og við ókum að sum- arbústaðnum. Clem hafði útbúið herbergi handa okkur með stór- um legubekk og rafmagnsofni. Hann hafði allt til taks til þess að laga kaffi og þarna var út- varp. Þetta var eins og — lítið heimili, sem við áttum sjálf. Svo sannarlega vorum við útaf fyrir okkur vegna þess, að húsið var staðsett yzt á eyjunni. Það var eins og við værum einu mannverurnar í heiminum. Við dönsuðum hægt eftir seið- andi valsi og á eftir lágum við í faðmlögum á stóra legubekkn- um, drukkin af ást. Ef Clem hefði verið nærgöng- ull við mig þá. hefði ég getað staðizt hann. Ég var enn á varð- bergi . . . enn var ég sakleysið sjálft. Ef hann hefði farið fram á of mikið við mig of snemma, hefði ég sennilega fengið í mig kjark til þess að hætta að hitta hann. En Clem var vitrari en svo. Hann elskaði mig og sefaði ótta minn og baðst aldrei of mikils. Það var hættulaust, dásamlegt að vera þarna með honum í sumar- bústaðnum, og ég vildi vera þar með honum sem oftast. Og þannig gekk það til um nokkurt skeið meðan vetri hall- aði og vorið nálgaðist. Við hitt- umst í sumarbústaðnum í hvert sinn, sem mér tókst að laumast út. Þegar samvizkubit angraði mig hafði Clem svar á reiðum höndum. ,,ÞAÐ er ekki réttlátt gagnvart konunni þinni, að ég sé hér með þér,“ sagði ég einu sinni. ,,Elskan mín, því er alls ekki þannig farið,“ sagði hann hug- hreystandi. ,,Konan mín veit ekkert og kærir sig kollótta um, hvað ég geri, svo framarlega sem ég fæ henni kaupið mitt. Annað vill hún ekki með mig hafa. Við sofum ekki saman. Við erum elcki einu sinni í sama herbergi." Ég trúði honum . . . ég hafði enga ástæðu til að rengja hann. Ég taldi sjálfri mér trú um, að við værum ekki að aðhafast neitt ljótt, þó við værum dálítið sam- an. Því gerði ég mér ekki grein fyrir, að með hverju sinni, sem við hittumst, varð erfiðara að bæla niður hvatirnar ? Smám saman urðu ástaratlot okkar inni- legri. Ennþá tókst mér að grípa í taumana áður en nokkuð skeði. Vorið kom og fölur máni skein á kvöldhimninum og tímum sam- an sátum við á bekk bak við hús- ið. Við höfðum nauman tíma eftir þar sem sumarið fór í hönd HEIMILISRITIÐ 39

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.