Heimilisritið - 01.02.1958, Qupperneq 44

Heimilisritið - 01.02.1958, Qupperneq 44
öskuvondur. ,,Konu Clems Wil- sons. Hún bað mig um að sjá um að dóttir mín léti manninn sinn í friði. Hún sagði, að það væri á allra vörum, hvernig þið hangið saman." ,,Ó, nei!“ hrópaði ég og orð- in stungu mig eins og rýtingur í hjartað. Mamma gekk til mín með þennan hörmungarsvip á andlit- inu. „Veiztu — hún á von á einu barninu enn ?“ Allt gekk í bylgjum fyrir aug- unum á mér. Ennþá eitt barn — barn Clems! Hann hafði logið að mér, um að þau svæfu ekki í sama herbergi. Hann hafði log- ið — um sundurlyndið milli sín og konu sinnar. Ég hljóp upp á loft yfirbuguð af vonbrigðum. Rödd föður míns barst þrumandi á eftir mér. ,,Ef þú ferð aftur út úr þessu húsi að kvöldi til, skal ég lúberja þig —“ Ég kærði mig ekki um að fara út úr húsinu. Ég vildi ekki sjá Clem framar. Ég óskaði þess, að ég væri dauð. Morguninn eftir hafði ég tek- ið ákvörðun. Ég gat ekki haldið áfram að búa í sama þorpi og Clem. Ég vildi ekki eiga það á hættu að hitta hann. Ég vildi ekkert samneyti við hann hafa framvegis. Þegar ég kom niður, gekk ég hreint til verks og fór til mömmu. Ég talaði við hana og var mikið niðri fyrir. ,,Ég hef verið fífl og ég veit það, mamma. Ég verð að kom- ast burt héðan — Clem mun reyna að ná tali af mér. Gæti ég farið til Irene frænku í Boston ? Kannske get ég fengið vinnu þar.“ Foreldrar mínir tóku því feg- ins hendi að losna við mig úr bænum. Tveim dögum seinna var ég á leið til Boston í áætlun- arbílnum. Frænka mín og fjöl- skylda hennar vissi ekki, hvað skeð hafði . . . þau vissu aðeins, að ég ætlaði að leita mér að vinnu. í nokkra daga dvaldi ég hjá frænku minni, en það var of þröngt fyrir okkur öll í litlu íbúð- inni hennar. Því var það, að ég leigði herbergi og flutti í það, þegar einn af frændum mínum hafði útvegað mér vinnu í verzl- un. Þar reyndi ég að byrja nýtt líf — reyndi að gleyma Clem. Þetta var ekki auðvelt. Eg var alltaf einmana. Kvöldin voru verst. Ég reyndi að afla mér kunningja meðal fólksins, sem vann í verzluninni, en það var alltaf að flýta sér og hafði engan tíma til neins. Þrátt fyrir einlæga viðleitni gat ég ekki hætt að þrá Clem. Þegar 42 HEIMILISRITIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.