Fréttatíminn - 16.03.2012, Síða 2
FELLSMÚLI • SKÚLAGATA • GARÐABÆR • MJÓDD
Borgarstjóri skal berjast gegn klámi
Í Fréttatímanum í dag birtist grein-
in „Fjölskyldumál“ eftir Bryndísi
Schram. Þar gagnrýnir Bryndís
harðlega frásögn tímaritsins Nýs lífs
af meintri kynferðislegri áreitni sem
frænka hennar á að hafa orðið fyrir
af hálfu eiginmanns hennar Jóns
Baldvins Hannibalssonar á heimili
þeirra hjóna. Þar er jafnframt boðað
að Jón Baldvin muni svara ásökun-
unum á heimasíðu sinni jbh.is.
Fréttatíminn hefur grein Jóns
undir höndum en hana nefnir hann
„Að gera hreint fyrir sínum dyrum“.
Þar segir Jón meðal annars: „Ég
skulda öllu því fólki, sem hingað til
hefur borið traust til mín sem ærlegs
manns, afkomendum mínum, vinum
og ættingjum, að segja þeim sann-
leikann – og ekkert nema sannleik-
ann – um þetta mál.“
Jón útskýrir jafnframt að hann
hafi talið rétt að láta nokkurn tíma
líða, áður en hann brygðist við. „Í
fyrsta lagi tók það tímann sinn að fá
í hendur rannsóknargögnin frá sak-
sóknaraembættinu. Einnig vildi ég
gefa öllum þeim, sem fyndu hjá sér
þörf fyrir að setjast í dómarasæti yfir
mér, að rasa út.“
Jón bendir á að hingað til hefur
sagan verið sögð algerlega einhliða
og á forsendum hópsins, sem að
ákærunni stendur. „Blaðamennska
Þóru Tómasdóttur í þessu máli er
að vísu svo óvönduð og óheiðarleg,
að jafnvel mér blöskrar, og er ég þó
ýmsu vanur.“
Í samtali við Fréttatímann vísar
Þóra Tómasdóttir því á bug að hún
hafi stundað óheiðarleg vinnubrögð.
„Ríkissaksóknari taldi Jón Baldvin
kunna að hafa brotið íslensk lög með
klámfengnum bréfum til unglings-
stúlku. Á grundvelli niðurstaðna
ríkissaksóknara var umföllun Nýs
lífs unnin. Möguleg afsökunarbeiðni
hans á málinu kemur ekki í veg fyrir
að upplýst sé um verknaðinn. Kjósi
Jón Baldvin að gera mig að söku-
dólgi í málinu er hann að gera auka-
atriði að aðalatriði,“ segir Þóra.
Sárast svíður, að sögn Jóns, að
vera sakaður um að vera barnaníð-
ingur. „Þetta er ekki bara svívirðileg
ásökun. Þetta er sem betur fer ósatt,
tilbúningur, fundinn upp eftir á.“
Í grein sinni bendir Jón á að aðrir
voru viðstaddir öll þau „atvik“ fyrir
utan eitt, sem tínd eru til stuðnings
áburðinum. „Bæði Bryndís, kona
mín, og dætur mínar, Snæfríður
og Kolfinna, önnur hvor eða báðar,
voru viðstaddar á sama stað og tíma.
Þær hafa allar vottað það, að þetta
er tilhæfulaust,“ segir Jón og ítrek-
ar að kæruefnið á sínum tíma hafi
ekki kynferðisleg áreitni „heldur
spurning um, hvort efni bréfsins (og
reyndar skáldsögunnar) gæti „sært
blygðunarkennd“ viðtakandans. Og
viðtakandinn var sautján ára – ekki
á barnsaldri.“
Skrif Jóns má sjá í heild á jbh.is en
grein Bryndísar er á bls. 20.
AndsvAr Fordæmir óvönduð og óheiðArleg vinnubrögð
Jón Baldvin svarar ásökunum
l ögreglan handtók á miðvikudags-morgun Annþór Kristján Karlsson og Börk Birgisson í umfangsmik-
illi rassíu sem teygði anga sína til hús-
leitar á átta stöðum, upptöku bæði þýfis
og fíkninefna og handtöku fimm annarra
aðila. Annþór og Börkur voru, ásamt
hinum fjórum, úrskurðaðir í vikulangt
gæsluvarðhald. Annþór og Börkur eiga
báðir brotaferil að baki. Annþór var meðal
annars dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir
líkamsárás árið 2005 og fjögurra ára fang-
elsi fyrir fíkniefnasmygl vorið 2008. Börkur
fékk sjö og hálfs árs fangelsi árið 2005 fyrir
að ráðast á mann með öxi á veitingastaðn-
um A. Hansen í Hafnarfirði. Útlit er fyrir að
bæði Annþór og Börkur hafi rofið reynslu-
lausn og þurfi því að byrja á því að sitja af
sér eftirstöðvar dómanna sem þeir voru á
reynslulausn fyrir. Ekki hefur þó fengist
staðfest hjá lögreglu eða fangelsismálayfir-
völdum hvort sú sé raunin.
Heimildir Fréttatímans herma að
meginástæða þessarar rassíu og handtöku
Annþórs og Börks séu grimmileg átök í
undirheimum Reykjavíkur. Þannig tengist
skotárás á hús í Vatnsendahverfi, sem DV
greindi frá á miðvikudag, málinu en íbúi
þess hefur lengi verið talinn stórlax í ís-
lenskum undirheimum. Þá tengist málinu
bensínsprengjuárás á hús í Hafnarfirði í
síðasta mánuði þar sem íbúar voru tengdir
Outlaws-vélhjólagenginu. Samkvæmt
heimildum Fréttatímans er þó lykilatvik í
málinu líkamsárás sem átti sér stað í Skúta-
hrauni í Hafnarfirði síðustu daga febrúar-
mánaðar. Þar var ráðist á ungan mann,
honum troðið í skott á bíl og síðan ekið að
Mjóddinni í Breiðholti. Drengurinn kom
sér sjálfur á slysadeild en við skoðun kom
í ljós að hann var meðal annars handleggs-
og fótbrotinn. Eftir því sem Fréttatíminn
kemst næst leikur grunur á að Annþór og
Börkur hafi verið viðriðnir líkamsárásina
og kærði fórnarlambið árásina til lögreglu
eftir hvatningu frá aðilum sem tengjast
þessum væringum. Sú kæra leiddi síðan til
rassíu lögreglunnar sem fól meðal annars
í sér húsleit á sólbaðsstofunni Bahamas
á Grensásvegi en Annþór og Börkur sitja
báðir í stjórn Mebbakks ehf, sem á sólbaðs-
stofuna. Ekki náðist í Magnús Einarsson,
stjórnarformann Mebbakks, í gær þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
oFbeldi sex í gæsluvArðhAld eFtir rAssíu lögreglu
Hrottaleg líkamsárás leiddi til
handtöku Annþórs og Barkar
Annþór og Börkur
földu sig undir
teppi þegar þeir
mættu í fylgd lög-
reglu til Héraðs-
dóms í gær. Það
er í samræmi við
skoðanir Annþórs
sem lýsti því yfir í
viðtali við Frétta-
tímann að honum
þyki fáránlegt
að nafngreina og
birta myndir af
glæpamönnum –
til þess eins fallið
að gera þá fræga
og þannig að eins-
konar fyrirmynd.
Ljósmynd/Hari
Sólbaðsstofan Bahamas, sem Annþór og Börkur
tengjast, var vettvangur húsleitar lögreglu á
miðvikudaginn. Ljósmynd/Hari
Annþór Kristján
Karlsson og
Börkur Birgis-
son, tveir
nafntogaðir
glæpamenn,
voru í gær
úrskurðaðir
í vikugæslu-
varðhald í
kjölfar rassíu
lögreglunnar á
miðvikudags-
morgun. Auk
þess voru fjórir
aðrir karlmenn
úrskurðaðir
í gæsluvarð-
hald. Málið
tengist átökum
í undirheimum
borgarinnar en
lögreglan lagði
hald á þýfi og
fíkniefni í hús-
leitum tengdum
málinu.
Annþór Kristján Karlsson hefur tví-
vegis komið fram opinberlega eftir
að hann var dæmdur árið 2009 og
lofaði þá bót og betrun. Í viðtali við
Thelmu Tómasson í Íslandi í dag á
Stöð 2 í janúar 2009 sagðist hann
ætla að snúa við blaðinu. „Mig
langar að biðja fullt af fólki afsök-
unar en mun líklega ekki endast
ævin til þess. Ég vona hinsvegar
að ég komi betri maður héðan út.
Ef ég verð edrú þá mun mér takast
það,“ sagði Annþór í viðtalinu. Í við-
tali við Heiðdísi Lilju Magnúsdóttur
í Fréttatímanum í mars 2011 talaði
Annþór um framtíðina: „Ég ætla
að eyða næstu tveimur árunum í
að verða húsasmíða-, múrara- og
málarameistari. Svo er stefnan að
eyða næstu fimm árum eftir það í
lögfræði og sérhæfa mig í afbrota-
fræði og bótarétti í húsbyggingum.“
Erfitt að feta stíginn þrönga
Jóni Gnarr borgarstjóra hefur verið falið sér-
staklega að leita eftir samstarfi við lögreglu-
stjóra og innanríkisráðherra um að vinna
gegn klámvæðingu, mansali og vændi. Þetta
var ítrekað á borgarráðsfundi síðustu viku.
Borgarfulltrúar vilja tryggja að Reykjavíkur-
borg leggi sitt lóð á vogarskálarnar í þessari
baráttu og áréttar borgarráð þau ákvæði í
mannréttindastefnu borgarinnar sem snúa að
klámvæðingu og fylgikvillum hennar. - gag
Fólk með geðraskanir
heldur Vin
„Við þorum ekki að fagna fyrr en búið
er að skrifa undir,“ segir Þórdís Rúnars-
dóttir, forstöðumaður Vinjar sem er
athvarf Rauða Krossins fyrir fólk með
geðraskanir. Rekstrinum verður þyrmt
til ársins 2014. Fyrir áramót var útlit fyrir
að athvarfinu yrði lokað vegna fjárskorts
eftir tveggja áratuga starf. „Það stendur í
raun og veru ennþá til að loka Vin,“ segir
Þórdís. „Framtíðarsýn borgarfulltrúa er
að þessi hópur fólks eins og aðrir geti nýtt
sér félagsmiðstöðvar Reykjavíkurborgar.
Þær hafa hingað til aðallega verið nýttar
af eldri borgurum, þótt þær séu öllum
opnar.“ Þórdís segir að því hafi verið sett
í stundaskrá Vinjar að heimsækja félags-
miðstöðina við Vitatorg tvisvar í viku til að
kynnast starfseminni. - gag
Gagnrýnir að utan-
garðsfólki sé beint til
trúfélags
Þorleifur Gunnlaugsson,
borgarfulltrúi Vinstri
grænna, gagnrýnir meiri-
hlutann fyrir að beina
utangarðsfólki í auknum
mæli í „dagsetur á
vegum gildishlað-
inna lífskoðunar-
samtaka“ vegna
þess að önnur
úrræði eru ekki
til staðar. Hann vísar þarna til Hjálpræðis-
hersins en segir jafnframt að hann hafi
ekkert við samtökin að athuga, aðeins að
það úrræði sé hið eina. „Vandi flestra, ef
ekki allra, sem teljast til utangarðsfólks er
heilbrigðisvandi sem taka á sömu tökum
og önnur heilbrigðisvandamál en ekki í
anda trúboðsskýla liðinna alda,“ sagði
hann á síðasta borgarráðsfundi. Þorleifur
fagnaði þó aukinni þjónustu við utangarðs-
fólk, en nú á að ráða fagfólk, tvo, undir
nafninu borgarverðir, sem aðstoða á fólkið
á vettvangi. Stefnt er á að setja fjörutíu
milljónir í verkið. - gag
Vill fá milljón frá Við-
skiptablaðinu
Pétur Gunnlaugsson, útvarpsmaður á
Útvarpi Sögu, hefur stefnt Björgvini Guð-
mundssyni, ritstjóra Viðskiptablaðsins, og
Myllusetri, útgáfufélagi blaðsins, vegna
meiðyrða og krefst þess að fá milljón
í bætur. Að sögn Björgvins er stefnan
tilkomin vegna mola sem skrifaður var
í dálkinn Huginn & Muninn í blaðinu og
varðaði samskipti Péturs og Björns Vals
Gíslasonar þingmanns í útvarpsþætti á
Sögu í maí á síðasta ári. Þar var sagt að sá
fyrrnefndi hefði rifið til Björns Vals og hent
öllu lauslegu af borðinu. Frásögnin var
síðan leiðrétt og Pétur beðinn afsökunar.
Björgvin segir að Pétri hafi verið boðið að
koma athugasemdum á framfæri en
hann hafi ekki þegið það. Þess í stað
hafi hann ákveðið að stefna ritstjór-
anum og útgáfufélaginu. -óhþ
2 fréttir Helgin 16.-18. mars 2012