Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.03.2012, Síða 6

Fréttatíminn - 16.03.2012, Síða 6
Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is Þvottavélar Vandaðar vélar á góðu verði. Fást með innbyggðum þurrkara. 139.990 139.990 96.99089.990 Candy Aqua 100F • 1000 snúninga og 3,5 kg þvottavél • Hitastillir 30-90° • Hurðaropnun 180° • Ullarkerfi, skolstopp og hraðkerfi • Stærð: (HxBxD) : 69,5 x 51 x 44 sm • Þvotthæfni A • Orkunýtni A • Vinduhæfni C Candy EVO1473DWS • 1400 snúninga og 7 kg þvottavél • Hitastillir 30-90° • Hurðaropnun 180° • Ullarkerfi, skolstopp og hraðkerfi • Þvotthæfni A • Orkunýtni A • Vinduhæfni A Candy EVOW4653DS • Sambyggð þvottavél og barkalaus þurrkari 1400sn • Ryðfrí tromla sem tekur 6kg þvott/5kg þurrk • Stafrænn hitastillir og LCD skjár • Stafræn niðurtalning á þvottatíma • Handþvottakerfi, 14 mín. hraðkerfi • Þvotthæfni A • Orkunýtni B • Vinduhæfni A Candy EVO12103DWS • 1200 snúninga og 10 kg þvottavél • Hitastillir 30-90° • Hurðaropnun 180° • Ullarkerfi, skolstopp og hraðkerfi • Þvotthæfni A • Orkunýtni A+++ • Vinduhæfni B Lítil og nett Innbyggður þurrkari Tekur 10kg af þvotti Rafræn kosning um framkvæmdir í hverf- um Reykjavíkur verður á vef borgarinnar, undir liðnum Betri Reykjavík. Kosningin hefst næstkomandi fimmtudag, 22. mars og stendur til 27. mars. Að sögn Bjarna Brynjólfssonar og Huldu Gunnarsdóttur upplýsingafulltrúa gátu borgarbúar í febrúar lagt fram hugmyndir um nýfram- kvæmdir eða viðhald í hverfunum. Úr þessum hugmyndabanka hafa verið valin ákveðin verkefni í hverju hverfi og nú gefst íbúunum kostur á að kjósa á milli þeirra. Kosningin er bindandi fyrir þau verkefni sem flest atkvæði hljóta en borg- in leggur til ákveðið fjármagn til þeirra. Bjarni segir að allir borgarbúar, frá 16 ára aldri, hafi kosningarétt og að fólk geti kosið um eins mörg verkefni og það vill upp að ákveðinni fjárhæð. Til dæmis gæti kosningamál verið gróðursetning trjáa, bekkir á ákveðið svæði eða annað slíkt. Kjósendur komast í „kjörklefann“ með rafrænu einkenni, annað hvort skattlykli eða með rafrænu einkenni debetkorts. Þar er fyrir kort sem sýnir hverfi borgar- innar. Menn mega kjósa í hvaða hverfi sem er en aðeins í einu. Bjarni segir að flestir muni sjálfsagt kjósa um verkefni í eigin hverfi en sé mönnum til dæmis annt um ákveðin verkefni í miðborginni geti þeir kosið um verkefni þar – en þá ekki í eigin hverfi. Fjármunum er úthlutað til verkefna í hverju hverfi með hlutfallsreikningi eftir íbúafjölda. Breiðholtið fær því hæstu upp- hæðina. Búið er að kostnaðarmeta hvert verkefni. Kjósendur geta því valið eitt eða fleiri verkefni þar til þeir ná leyfðri upp- hæð. Bjarni segir kosningarnar einfaldar. Byggt sé á svipuðu kerfi og þegar fólk verslar í netverslun eða fer inn á vef Amazon. Kjósendur velja í körfur, annars vegar nýframkvæmdir og hins vegar við- haldsverkefni.  Reykjavík RafRæn kosning á vefnum BetRi Reykjavík Kosið um framkvæmdir í borgarhverfunum Reykvíkingar geta kosið bindandi kosningu um ýmsar framkvæmdir í ein- stökum hverfum á vef borgarinnar, Betri Reykjavík. Ljósmynd Hari Eva Bryndís Helgadóttir, formaður slitastjórnar Byrs og núverandi stjórnar- formaður Tryggingamiðstöðvarinnar  fjáRmálastofnaniR stjóRnaRseta Hættir sem stjórn- arformaður TM vegna nýrra laga Lögmaður má ekki sitja í tveimur stjórnum fyrirtækja sem Fjár- málaeftirlitið hefur eftirlit með samkvæmt lögum sem sam- þykkt voru á Alþingi á liðnu sumri. Eva Bryndís Helgadóttir þarf að segja af sér formennsku í stjórn TM á aðalfundi í næstu viku þar sem hún er einnig formaður slitastjórnar Byrs. Þ etta er auðvitað hundfúlt. Verkefnið er stórskemmtilegt og hefur gengið vel. Tryggingamiðstöðin er frábært félag sem ég kveð með söknuði,“ segir Eva Bryndís Helga- dóttir lögmaður, sem getur ekki gefið kost á sér til áframhaldandi stjórnarformennsku í trygg- ingafélaginu þar sem hún er einnig formaður slitastjórnar Byrs. Samkvæmt 4. málsgrein 52. greinar á laga um fjármálafyrirtæki, sem sam- þykkt var á liðnu sumri, mega stjórnarmenn fjármálafyrirtækis ekki eiga sæti í stjórn annars eftirlitsskylds aðila eða aðila sem er í nánum tengslum við hann né vera starfsmenn eða endur- skoðendur annars eftirlitsskylds aðila eða aðila í nánum tengslum við hann. Eva Bryndís segir að lögin hafi verið sett þegar kjörtímabil stjórnarmanna var hálfnað og að deilt sé um hvort lögin séu afturvirk. „Lögmanna- félagið er á þeirri skoðun að lögin standist ekki en ég mun beygja mig undir þau og ekki gefa kost á mér til áframhaldandi setu í stjórn TM á aðalfundi í næstu viku. Ég ætla ekki í stríð við Fjármálaeftirlitið vegna þessa máls,“ segir Eva Bryndís og bætir við að Byr flokkist varla lengur undir fjármálstofnun. „Þetta er þrotabú og ekkert annað. Langstærstu hagsmununum hefur verið komið fyrir [við sameiningu Íslandsbanka og Byrs] og það eina sem stendur út af er venjuleg vinna við að ganga frá því. Ég get hins vegar ekki hætt í slitastjórninni. Langstærstu kröfuhafarnir eru erlendir og ég hef byggt upp samskipti við þá. Ég klára það verkefni,“ segir Eva Bryndís. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ég ætla ekki í stríð við Fjármála- eftirlitið vegna þessa máls. 6 fréttir Helgin 16.-18. mars 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.