Fréttatíminn - 16.03.2012, Síða 28
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
0
4
9
1
Hagsýnir heimilisbílar
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is
Að endurnýja bílinn í dag getur borgað sig.
Kannaðu kosti grænna bílalána og reiknaðu dæmið til enda á ergo.is
1Blönduð eyðsla á hverja 100 km
2Rekstur í eitt ár á meðalstórum fólksbíl m.v. að bensínverð sé 243 kr., dísilverð 254 kr. og akstur á ári 20.000 km.
Árgerð 20052
sjálfskiptur · bensín
Árgerð 20122
beinskiptur · dísil
Sparnaður
á ári
228.240 kr.Eyðsla1 228.600 kr.
4,5 l
456.840 kr.
9,4 l
- =
24.780 kr.Bifreiðagjöld 9.460 kr.34.240 kr. - =
2.100 kgCO2 útblástur 2.380 kg
119 g/km
4.480 kg
224 g/km
- =
T íu ára gamall upplýsinga-bæklingur landlæknisemb-ættisins um brjóstastækk-
anir er gjörsamlega úreltur, segir
Vilhjálmur Ari Arason læknir. Hann
segir skorta á upplýsta umræðu og
fræðslu svo konur hafi réttar upp-
lýsingar í höndum þegar þær taka
ákvörðun um að fá sér sílikon.
„Við erum að tala um tíu til tutt-
ugufalda auknatíðni aukaverk-
ana sem að ekki er gert ráð fyrir í
bæklingnum. Bara það að púðinn
spryngi, eftirlitinu sé áfátt og
sílikonið geti valdið bólgum og
skemmdum kalla ég tiltölulega al-
varlegar aukaverkanir.“
Setja verði verklagsreglur um
hvernig haga beri eftirliti; bæði fyr-
ir heilsugæslulækna og lýtalækna.
Eftir því kalli einnig Leitarstöðin,
sem getur ekki sinnt öllum þeim
konum sem óska eftir ómskoðun-
um. Á meðan ekki sé vitað meira
um öryggi sílikonfyllinga sé ekki
forsvaranlegt að ungar stúlkur fari
í brjóstastækkanir í þeim mæli sem
nú virðist vera.
Vilhjálmur segir sílikon-ígræðslur
mikið inngrip og algjörlega á skjön
við sannfæringu margra lækna. „Ég
hef skoðað rör í eyrum barna.
Það finnst mér stórt inngrip. Pínu-
lítið rör sem er innan við gramm.
Svo er sett kíló af massa, aðskota-
hlut, inn í líkama konu og hann get-
ur farið á flakk.“
Brotalamirnar miklar
Vilhjálmur hefur fylgst náið með föls-
uðu, frönsku PIP-púðamálinu. Hann
bendir á að það hafi varpað ljósi á
hversu brotalamir sílikon-ígræðslna
almennt séu umfangsmiklar.
„Málið hefur opinberað mun stærri
vanda. Lekatíðni sílikonpúða er miklu
hærri en menn hafði grunað. Talað
hefur verið um eitt til sjö prósent
líkur á leka á líftíma púðanna. Nú
hefur komið í ljós að það er kannski
á einu ári. Flestir púðar, eða um 20 til
50 prósent, eru farnir að leka á innan
við tíu árum,“ segir hann.
„Heimilislæknar vita lítið um ná-
kvæm einkenni þess að vera með
sprungna sílikonpúða. Þeir vita um
bólgur og bólgna eitla en þeir vita
ekki nákvæmlega hvar á að leita að
sílikoni sem ekki finnst og hvert það
fer. Eitthvert fer það. Það gufar ekki
upp. Þetta er ekki aðeins spurning
um gelið í púðunum, heldur einnig
skelina sem rýrnar og grætur áður
en hún springur.“
Litlar kröfur til sílikonsins
„Við höfum séð skemmdir á líffærum
og milli rifja. Þetta hlýtur að valda
konunum miklum óþægindum. Dr.
Blais, kanadíski læknirinn, hefur
lýst þessu á þann veg – með-
al annars hjá íslenskum
konum – að afleiðing-
arnar séu svipaðar og
hjá manneskju sem hef-
ur orðið fyrir skotárás
eða sprengjuárás. Hann
kallar eftir endurhæfing-
arlæknum hersins til þess
að fá ráð um hvernig eigi
að meðhöndla þær
konur sem hafa
svona miklar
skemmdir
á vöðva og
brjóstkassa.“
Spurður
hvort þessi
lýsing sé ekki
full öfgakennd
segir Vilhjálm-
ur:
„Þetta eru
staðreynd-
ir og sjást í
skýrslum og á
myndum. Ekki ljúga myndirnar.“ Vil-
hjálmur bætir því við að konur verði
að fá að vita að lyf með þeim auka-
verkunum sem fylgi sílikonpúðum
fengjust aldrei markaðssett.
„Ekki heldur aðrir íhlutir sem sett-
ir eru í manneskjur. Það eru miklu
strangara eftirlit og reglur um end-
ingu þeirra. En með brjóstapúða er
það ekki gert vegna pressu um að
slaka á kröfum svo lina megi sál-
rænar áhyggjur kvenna. Farið hefur
verið eins langt fram á brúnina og
hægt er. Ég tel að reynslan sýni
að öryggið var ekki einu sinni
eins og reiknað var með að
það væri. Eigin áhættan var
talin töluverð og reynist meiri
en hún var talin vera.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
BrjósTasTækkanir ÚrelTur Bæklingur en áByrgðin samT á herðum kvenna
Úreltur bæklingur fyrir sílikonpúða
Vilhjálmur Ari Arason læknir segir upplýsingabækling Landlæknisembættisins um brjóstastækkanir gjörsamlega úreltan. Aukaverkanir brjóstastækkana séu allt að tutt-
ugufaldar á við þær sem þar segir. Konur þurfi að vita að lyf með aukaverkunum sílikon-púða væru aldrei leyfð. Hann kallar eftir verklagsreglum vegna sílikon-ígræðslna.
Ellefu hafa látið fjarlægja PIP-púða
Ellefu konur hafa farið í aðgerð á Land-
spítalanum og látið fjarlægja fölsuðu
PIP sílikonpúða úr barmi sínum, sé
miðað við síðasta föstudag. Þetta er
samkvæmt nýjustu upplýsingum Land-
læknisembættisins sem hefur óskað eftir
mánaðarlegum tölum frá spítalanum og
kemur fram í svörum sem Fréttatíminn
fékk í tölvupósti frá sérfræðingi þess,
Önnu Björg Aradóttur.
Hún segir 75 til 80 konur hafa komið á
göngudeild spítalans í viðtal fyrir aðgerð
og að búið sé að bóka göngudeildar-
tíma fram í apríl. Hún segir 32 aðgerðir
áætlaðar í þessum mánuði. - gag
Vilhjálmur Ari
Arason heimilis-
læknir á lækna-
stofu sinni á
heilsugæslu-
stöðinni í
Firðinum,
Hafnar-
firði.
Mynd/Hari
28 heilbrigðismál Helgin 16.-18. mars 2012