Fréttatíminn - 16.03.2012, Síða 32
Ómissandi á pizzuna,
í ofn- og pastaréttina,
á tortillurnar og salatið.
Heimilis
RIFINN OSTUR
NÝJUNG
ÍSLENSKUR OSTUR
100%
U m fátt var meira rætt á dönskum kaffistofum haustið 2010 en fyrsta kvenkyns forsæt is -
ráðherra landsins, hnarreista og
ákveðna konu sem stóð í stafni nýrr-
ar mið-vinstri ríkisstjórnar og tók
við af áralangri hægri stjórn karla í
gráum jakkafötum.
Hún náði, eftir nokkurn barning,
að sameina að baki sér fremur ósam-
lyndan hóp sem spannaði litrófið frá
borgaralegum miðjumönnum til rót-
tæks fólks allra yst á vinstri vængn-
um. Hveitibrauðsdagarnir voru fáir
ef þá nokkrir, rýtingsstungur í bakið
urðu daglegt brauð og blákaldur póli-
tískur veruleikinn leiddi fljótt til þess
að nýi forsætisráðherrann og stjórn
hennar urðu að leggja alla fallega
hugmyndafræði og framtíðarsýn til
hliðar. Við tóku hníf skarpar ákvarð-
anir sem gengu þvert gegn þeim
ófrávíkjanlegu loforðum af vegg-
spjöldum sem jafnvel héngu enn
uppi hér og þar um stræti og torg úr
nýliðinni kosningabaráttu.
Forspárgildi þáttanna
Einhverjir lesendur halda sjálfsagt
að þeir hafi hingað til verið að lesa
fréttaskýringu um dönsk samtíma-
stjórnmál. Það hafa þeir líka í raun
verið að gera. Það eina sem ekki
passar fullkomlega við raunveru-
leikann er ártalið. Það á að vera 2011
en ekki 2010.
Forsætisráðherrann heitir reynd-
ar ekki heldur Helle Thorning-
Schmidt, hún heitir Birgitte Nyborg.
Og svo er sú fyrrnefnda af holdi og
blóði og tók við forsætisráðuneytinu
haustið 2011 en hin síðarnefnda
er aðalpersónan í sjónvarpsþátta-
röðinni Borgen sem fór í loftið hjá
Danska ríkissjónvarpinu haustið
2010 og áhorfendur RÚV fylgjast
nú spenntir með þessi sunnudags-
kvöldin.
Af innganginum að dæma og
samlíkingu hans við raunveruleik-
ann má ráða að Borgen geti verið
ágætis byrjendanámskeið í dönsk-
um stjórnmálum fyrir áhugasama.
Þannig er það auðvitað ekki nema
að hluta til en þó eru hliðstæðurnar
ansi margar. Það sem þó kannski
er mest sláandi er hversu mikið for-
spárgildi þættirnir hafa haft á það
sem síðar hefur gerst í raunveruleik-
anum í dönskum stjórnmálum, eins
og rakið var hér í innganginum.
Höfundar þáttanna nýta sér óspart
ýmis atvik úr dönskum stjórnmálum
liðinna ára. Íslenskir áhorfendur
eru bara hálfnaðir með fyrstu seríu
þannig að ástæðulaust er skemma
spennuna og rekja fjölmörg dæmi
um það úr seríunum tveimur sem
þegar hafa verið sýndar í dönsku
sjónvarpi (önnur sería var á dagskrá
á liðnu hausti). En þó má fara yfir á
ákveðin minni og helstu hliðstæður
þáttanna við dönsk stjórnmál.
Fyrst ber að nefna flokkaflóruna í
þáttunum. Flokkarnir sem eitthvað
kveður að í dönskum stjórnmálum
eru átta talsins og eiga sér allir (utan
nýjasta flokksins, Liberal Alliance)
birtingarmynd í Borgen. Gróf upp-
bygging flokkakerfisins er því ná-
kvæmlega sú sama.
Hér er listi yfir dönsku flokkanna
og eftirmyndir þeirra í þáttunum.
Þáttur spunameistaranna
Auk líkindanna við flokkaflóruna
sjálfa eru önnur lykilstef danskra
stjórnmála líka áberandi í þátt-
unum. Kynjavíddin er til dæmis
í brennidepli, einkum hið sígilda
minni um framakonuna sem þarf
að fórna annað hvort einkalífi eða
framanum, ólíkt körlum í sömu að-
stöðu. Íslenskir sjónvarpsáhorfend-
ur eru þannig sjálfsagt þegar farnir
Skáldskapur og veruleiki í Borgen
Þættirnir um baráttu Birgitte
Nyborg í stjórnmálum og
heima fyrir, sem RÚV sýnir
á sunnudögum, eru að hluta
til eins og byrjendanámskeið
í dönskum stjórnmálum.
Flokkakerfið danska er haft
til fyrirmyndar í þáttunum
en þóttu fá verulega aukna
vigt þegar raunveruleikinn
tók að líkjast skáldskapnum.
Sigurður Ólafsson skoðar hér
hvernig þessir tveir heima
skarast.
að greina þá spennu sem farin er að
hlaðast upp á heimili forsætisráð-
herrans.
Annað sem sótt er í raunveruleik-
ann er síaukinn ágangur fjölmiðla á
einkalíf stjórnmálamanna og einn-
ig er það tekið fyrir hvernig enginn
treystir á vinabönd í pólitík, allra síst
innan flokka.
Það sem hefur þó verið einna
mest áberandi er hlutur spuna-
meistara í þáttunum en ef mið er
tekið af Borgen er ekki á hreinu
hvorir ráða meiru um stjórn lands-
ins, stjórnmálamennirnir eða spuna-
meistarar þeirra. Eins er fjallað um
hversu óskörp skil geta verið á milli
spunameistara og fjölmiðla, bæði í
samskiptum stéttanna og í starfs-
mannaflakki þar sem margir blaða-
mannanna hafa á einhverjum tíma
verið spunameistarar eða öfugt.
Þegar þættirnir hafa verið bornir
undir stjórnmálastéttina er þetta
það sem flestir finna raunar að
og virðast sammála um að þáttur
spunameistaranna sé gerður allt of
mikill í þáttunum. Það breytir því þó
ekki að framsetning þáttaraðarinnar
á mikilvægi spunameistara er ekki
tekin algjörlega utan úr blámanum
því að spunameistarar leika miklu
stærra hlutverk í danskri samtíma-
pólitík en til dæmis þeirri íslensku.
Þá verða þau líka að teljast nokkuð
mörg dæmin um þekktustu spuna-
meistara og blaðamenn Danmerkur
sem hafa bæði starfssviðin á sinni
ferilskrá og flakka ansi títt og frjáls-
lega á milli þessara hlutverka.
Fleiri einkenni úr þáttunum mætti
auðvitað nefna og svo væri vitanlega
hægt að fara í mannlega þáttinn
sem auðvitað gefur þáttaröðinni líf
og sál. Það persónulega drama er
hins vegar sammannlegt frekar en
það einskorðist við það sem er innan
dönsku landamæranna.
Borgen dugar því ekki fyllilega
sem óbrigðul heimild um dönsk
samtímastjórnmál. En hún er heldur
enginn vísindaskáldskapur og sjón-
varpsáhorfendur geta því vel farið að
slá dálítið um sig um danska pólitík
eftir nokkurra þátta áhorf.
Sigurður Ólafsson er al-
þjóðastjórnmálafræðingur,
búsettur í Danmörku
Enhedslisten
Er sá flokkur sem er lengst út á vinstri
kanti danskra stjórnmála. Hliðstæða
hans í þáttunum er flokkur sem heitir
Solidarisk Samling og er leiddur af ungum
eldhuga, Anne Sophie Lindenkrone, sem
svipar ekki lítið til annars ungs eldhuga,
Johanne Schmidt-Nielsen, talsmanns
Enhedslisten.
Sósíalistaflokkurinn Sosialistisk
Folkeparti (SF)
Er systurflokkur Vinstri-grænna á Íslandi
og leiðtogi hans er Villy Søvndal, utan-
ríkisráðherra Danmerkur. Hann hefur
fengið yfir sig nokkuð grænna yfirbragð
í þáttunum heldur en fyrirmynd hans og
heitir þar af leiðandi Miljøpartiet.
Villy Søvndal, formaður SF, á ekki ýkja
margt sameiginlegt með Amir Diwan, for-
manni Miljøpartiet í þáttunum, en sá er
frekar vísun í ýmsa áberandi stjórnmála-
menn af innflytjendaættum sem rutt
hafa sér rúms í dönskum stjórnmálum á
allra síðustu árum. Má þar nefna Manu
Sareen, jafnréttis- og kirkjumálaráðherra,
og Naser Khader, fyrrum þingmann og
stofnanda Ny Alliance (sem síðar varð
að Liberal Alliance sem nú á fulltrúa á
danska þinginu).
Sósíaldemókrataflokkurinn
Fær nafn sitt í þáttunum lánað frá,
meðal annars, breskum og norskum
systurflokk sínum og heitir Arbejderpar-
tiet. Formaður hans er í upphafi ansi
nöðrulegur og samviskulaus náungi sem
heitir Michael Laugesen. Hann kann sinn
Machiavelli upp á tíu og er alveg laus
við aðrar hugsjónir en þær að deila og
drottna. Ekki verður sagt að hann eigi
mikið sameiginlegt með Helle Thorning-
Schmidt, forsætisráðherra og formanni
danska Sósíaldemókrataflokksins, ekki
svo vitað sé, alla vega.
Sá formaður sem tekur við af Laugesen
strax frá og með öðrum þætti, Bjørn
Marrot, er hins vegar holdgervingur hins
veika formanns, tímabundnu lausnar-
innar meðan leitað er betri kosta. Nýjasta
dæmið um slíkan formann stórs sósíal-
demókrataflokks er að finna handan
Eyrarsundsins hjá sænsku sósíaldemó-
krötunum í Håkan Juholt, hinum nýhætta
formanni þar á bæ.
Radikale Venstre
Miðjuflokkur aðalpersónunnar Birgitte
Nyborg, De Moderate, á sér hliðstæðu í
sósíallíberalíska miðjuflokknum Radikale
Venstre. Formaður Radikale Venstre
er efnahags- og viðskiptaráðherrann
Margarethe Vestager. Líkindin milli
hennar og Birgitte Nyborg eru ansi mikil,
þó að segjast verði að hinn skáldaði
forsætisráðherra líkist raunar enn meira
hinum raunverulega forsætisráðherra
Danmerkur.
Venstre
Stóri miðsækni hægri flokkurinn í
Danmörku. Lifandi eftirmynd hans í þátt-
unum er flokkurinn De Liberale. Lars Hes-
selboe, formaður De Liberale, er fremur
erkitýpa hins dæmigerða formanns stórs
hægri flokks en að hægt sé að segja að
hann líkist beinlínis til dæmis Lars Løkke
Rasmussen, núverandi formanni Venstre
og fyrrum forsætisráðherra, eða forvera
hans Anders Fogh Rasmussen.
Konservative
Íhaldsflokkurinn Ny Højre samsvarar
systurflokki sínum í raunveruleikanum,
Konservative. Í þáttunum heitir íhalds-
leiðtoginn Yvonne Kjær. Hún á sér ekki
neina beina hliðstæðu í danskri pólitík
en má kannski kenna við ákveðna staðal-
mynd af hægri sinnaðri konu í pólitík.
Formaður hins raunverulega íhaldsflokks
er hins vegar Lars Barfoed en hann á það
sameiginlegt með formanni skáldaða
systurflokksins að vera nokkuð stöðluð
týpa sem formaður íhaldssams stjór-
nmálaflokks.
Dansk Folkeparti
Hægrisinnaði þjóðernisflokkurinn í
þáttunum heitir Frihedspartiet. Formaður
hans er hinn litríki Svend Åge Saltum
sem hefur keimlíkar skoðanir og fulltrúar
Dansk Folkeparti í raunveruleikanum.
Skáldaði formaðurinn á þó kannski meira
sameiginlegt með Mogens Glistrup, hinum
fræga formanni Fremskridtspartiet,
forvera Dansk Folkeparti, en sá flokkur
og foringi hans voru mun óheflaðri í sinni
pólitísku framsetningu en Dansk Folkep-
arti og Pia Kjærsgaard hafa nokkurn tíma
verið. Þykir þó ýmsum nóg um.
Einn framamaður Dansk Folkeparti
hefur þó tekið að sér líkindin við hinn
skáldaða formann Frihedspartiet. Það
var þingmaðurinn Søren Espersen sem
gagnrýndi raunar við sama tækifæri þá
tilhneigingu sem honum fannst vera hjá
höfundum sjónvarpsefnis hjá DR að láta
alltaf miðvinstri fólkið vera „góða fólkið“
á meðan pólitísk skoðanasystkini hans
væru alltaf óupplýsta og fremur illgjarna
liðið.
Danskir stjónmálaflokkar
Johanne Schmidt-Nielsen, talsmaður
Enhedslisten.
Forsætisráðherrann í sjónvarpsþátt-
unum, Birgitte Nyborg, umkringd blaða-
mönnum og fjölskyldu.
Raunverulegi forsætisráðherrann, Helle
Thorning-Schmidt, umkringd blaða-
mönnum.
Anne Sophie Lindenkrone, leiðtogi
Solidarisk Samling, í sjónvarpsþátt-
unum.
32 úttekt Helgin 16.-18. mars 2012