Fréttatíminn - 16.03.2012, Qupperneq 40
2 viðhald húsa Helgin 16.-18. mars 2012
Ábyrgðarsjóður MSI
Meistarafélög iðnmeistara í SI standa að sjóðnum.
Þessi félög eru:
Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði
Málarameistarafélagið
Meistarafélag Suðurlands
Meistarafélaga byggingamanna á Norðurlandi
Félag blikksmiðjueigenda
Félag skrúðgarðyrkjumeistara
Meistarafélag húsasmiða
Múrarameistarafélag Reykjavíkur
SART - Samtök rafverktaka
Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara
Innan raða þessara félaga starfa um 500 iðnmeist-
arar og nær starfsemi þeirra yfir alla verkþætti í
mannvirkjagerð.
Lög um þjónustukaup taka til hvers kyns samn-
inga um kaup á þjónustu sem veitt er neytendum
í atvinnuskyni gegn endurgjaldi og þegar veitt
þjónusta felur í sér meðal annars vinnu við fasteign-
ir, vinnu vegna byggingarframkvæmda eða aðrar
framkvæmdir á landi. Útseld þjónusta, sem veitt er í
atvinnuskyni, skal ávallt vera byggð á fagþekkingu
og í samræmi við góða viðskiptahætti sem tíðkast
hverju sinni.
Seljandi þjónustu leggur fram nauðsynleg efni
og aðföng nema um annað sé sérstaklega samið.
Um sölu á efni og aðföngum til neytanda gilda hins
vegar lög um neytendakaup, jafnvel þótt um upp-
setningu búnaðar og sölu á efni sé einungis gerður
einn samningur.
Seljandi þjónustu skal jafnframt gæta þess að hún
sé í samræmi við almennar reglur, staðla, reglur
sem stjórnvöld setja, stjórnvaldsákvarðanir og lög
sem gilda um veitta þjónustu í þeim tilgangi að
vernda öryggi neytenda.
Ljóst er að lög um þjónustukaup styðja vel við
önnur lög sem miða að því að vernda hagsmuni og
öryggi neytenda. Má þar nefna mannvirkjalög sem
löggilding iðnmeistara byggir á, lög um rafmagns-
öryggi og iðnaðarlög sem standa eiga vörð um rétt-
indi iðnmeistara. Þrátt fyrir góðan vilja löggjafans
verður seint komið í veg fyrir að menn án réttinda
læðist inn á markaðinn og því brýnt að neytendur
séu vel á verði og vandi valið þegar leitað er eftir
þjónustu iðnaðarmanna.
Ásbjörn R. Jóhannesson
forstöðumaður rafiðnaðarsviðs Samtaka iðnaðarins
Viðhaldsvakning
og betri tíð
Hús eru forgengileg og ganga úr sér óháð efnahagsástandi og
fjárhag eigenda á hverjum tíma. Ef hús fá ekki það viðhald sem
þarf og nauðsynlegar endurbætur þá nagar tímans tönn þau mis-
kunnarlaust og verðmæti þeirra og notagildi rýrnar. Það er dýrt
að draga viðhald og láta skeika sköpuðu. Það hefur því miður
verið landlægt viðhorf að láta viðhald húsa reka á reiðanum og
sinna því ekki fyrr en í óefni er komið. Viðhald á ekki að vera
skorpu- og áhlaupsvinna í nauðvörn, heldur stöðugt og fyrir-
byggjandi.
Viðhorfs- og hugarfarsbreyting þarf að verða í viðhaldsmál-
um. Þá kemur senn betri tíð með blóm í haga. Viðhald þarf að
hefjast strax og byggingu húss er lokið og það á að vera unnið
jafnt og þétt allan líftíma þess. Húseigendur verða að sinna við-
haldi eigna sinna jafnt og stöðug. Viðhaldið á að vera markvisst
og fyrirbyggjandi frá upphafi. Tilviljunarkennt og skipulagslaust
viðhald í nauðvörn, skorpum, skrykkjum og tímapressu, verður
alltaf erfitt og óhagkvæmt.
Undanfarin ár hefur verið mikið verið rætt og ritað um óvönd-
uð vinnubrögð í byggingariðnaðinum. Byggingarverktakar voru
í góðærinu margir ofhlaðir verkefnum og höfðu of lítinn tíma og
það bitnaði óhjákvæmilega á gæðum bygginganna.
Það segir sig sjálft að þegar menn hafa mörg járn
í eldinum og takmarkaðan tíma þá skila þeir ekki
eins vönduðu verki og ella og seint mun sjá fyrir
endann á því. Gallar leynast oft lengi og koma ekki
fram fyrr en eftir ár og daga og kalla í fyllingu tím-
ans á viðgerðir, endurbætur og viðhald
Í góðærinu hurfu flestir iðnaðarmenn og verk-
takar sem vettlingi gátu valdið í nýbyggingar-
iðnaðinn og viðhaldsgeirinn skrapp saman. Erfitt
var að fá góða og ábyrga verktaka til viðhaldsverka.
Þess vegna má álykta að eitthvað sé um uppsöfnuð
viðhaldverkefni og eins að meira verði um viðhald
vegna aukningar á byggingargöllum. Það er ljóst að
viðhalds- og viðgerðariðnaðurinn fær enn meira í
fangið á næstu árum vegna þessa.
Í þenslunni miklu var þrautin þyngri að fá verk-
taka í viðhaldsverk. Nú er öldin önnur. Nú bítast
þeir verktakar um viðhaldsverk sem áður fúlsuðu
við þeim. Það er ljós í myrkrinu fyrir húseigendur að geta nú val-
ið úr verktökum og náð góðum samningum. Stjórnvöld hafa líka
gert ráðstafanir til hvetja til viðhalds og að örva viðhaldsgeirann
með aukinni endurgreiðslu virðisaukaskatts (100 prósent af
vinnu á byggingarstað). Og eins með því að auka og hækka við-
haldslán Íbúðalánasjóðs. Að þessu leyti árar vel til viðhalds.
En kreppan er viðsjárverð og kaldlynd kerling. Gefi hún með
hægri þá hrifsar hún óðar með vinstri. Verktakar eru margir
veikburða eftir áföll og hremmingar. Það skapar áhættu og
óvissu fyrir viðsemjendur þeirra og kallar á vönduð vinnubrögð
af hálfu húsfélaga. Þá fylgir sá böggull skammrifi að eigendur
eiga yfirleitt ekki digra viðhaldssjóði né aðrar feitar fúlgur og
allra síst á tímum kaldakols. Lánamöguleikar eru ekki samir og
fyrrum þegar gullið flóði. Peninga skortir víða til viðhalds og á
því stranda mörg góð áform.
Það eru fleiri ljósleiftur í viðhaldsmálunum. Ábyrgðarsjóður
meistaradeildar byggingagreina innan Samtaka iðnaðarins var
setur á laggirnar í fyrra eða hitt í fyrra í því augnamiði að bæta
vinnubrögð og auka gæði og skapa traust milli verktaka og hús-
eigenda. Jafnframt hefur verið sett á fót Úrskurðarnefnd á veg-
um meistaradeildar byggingarmanna innan Samtaka iðnaðarins,
Húseigendafélagsins og Neytendasamtakanna til að leysa úr
ágreiningsmálum vegna verka sem hér um ræðir.
Sigurður Helgi
Guðjónsson
formaður og fram-
kvæmdastjóri Hús-
eigandafélagsins
PISTILL
ÖRyGGI neytenda Lög um þjónuSTukauP
Mikilvægi þess að skipta við löglega menn
– krafan um fagþekkingu.
ÁbyRGðaRSJóðuR meISTaradeILd SamTaka IðnaðarInS
Hver ábyrgist
þinn meistara?
Í apríl 2009 var stofnuð deild allra meistara-félaga sem aðild eiga að Samtökum iðnaðarins. Deild þessi hlaut nafnið Meistaradeild Samtaka iðnaðarins (MSI). Meðal stefnumála MSI var að
koma á Ábyrgðarsjóði iðnmeistara sem nú er orðinn
að veruleika.
Með tilkomu Ábyrgðarsjóðsins aukast kröfur á þá
iðnmeistara sem að honum standa varðandi verk og
verkskil. Að sama skapi eykst réttur og öryggi neyt-
enda svo framarlega sem viðskipti eiga sér stað við
aðildarfélaga MSI. Telji verkkaupi að sú þjónusta sem
samið var um í upphafi verks sé ekki viðunandi getur
hann skotið máli sínu til Úrskurðarnefndar Meistara-
deildarinnar en þar eiga meðal annars sæti fulltrúar
frá Húseigendafélaginu og Neytendasamtökunum.
Skilyrði fyrir því að verkkaupi geti skotið máli
sínu til Úrskurðarnefndar MSI er að skriflegur verk-
samningur hafi verið gerður milli málsaðila og falli
úrskurður verkkaupa í vil fær hann bætur úr Ábyrgð-
arsjóðnum.
Einungis einstaklingar og húsfélög eiga þess kost
að njóta bóta úr Ábyrgðarsjóðnum. Ekki fást bætur úr
sjóðnum ef greiðslur fást úr öðrum tryggingum, svo
sem byggingarstjóratryggingu eða verktryggingu.
Þá fjallar úrskurðarnefnd Ábyrgðarsjóðs MSI ekki
um mál þar sem samningsupphæðin er undir 100 þús-
und krónum og yfir 25 milljón króna; báðar upphæðir
eru með virðisaukaskatti.
Hvort sem framkvæmdir eru stórar sem smáar,
er ljóst að það felst mikil trygging í að velja sér iðn-
meistara sem er aðili að Ábyrgðarsjóði MSI. Mikil-
vægt er því að velta fyrir sér áður en farið er af stað
spurningunni: Hver er meistari minn og hver ábyrgist
verkin hans? Nánar má kynna sér Ábyrgðarsjóð MSI
á heimasíðu Samtaka iðnaðarins, www.si.is
Trygging felst í því að velja iðnmeistara sem er aðili að Ábyrgðarsjóðnum
Útseld vinna skal byggjast á fagþekkingu. Ljósmynd Hari
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Stál og plast þakrennur
Allir fylgihlutir fáanlegir
Frábært
verð!