Fréttatíminn - 16.03.2012, Qupperneq 58
Á undanförnum árum hefur verk-takafyrirtækið Flísaverk sérhæft sig í að gera upp baðherbergi. Eftir
að hafa gert upp yfir 300 baðherbergi færði
fyrirtækið svo út kvíarnar og stofnaði
heimasíðuna www.badherbergi.is <http://
www.badherbergi.is> ásamt verslun og
sýningarsal að Smiðjuvegi 9 í Kópavogi.
Kristján Sveinsson hjá Flísaverki segir
hugmyndafræði þeirra ganga út á að geta
veitt alla þá þjónustu sem þurfi þegar verið
er að breyta baðherbergi. Talsverð hag-
kvæmni fylgi því að vera með þetta á einni
hendi, bæði hvað varðar aðföng og vinnu.
„Í sýningarsal Baðherbergi.is geta þeir
sem hyggja á endurbætur fengið hug-
myndir og séð flísar, tæki, innréttingar
og gler uppsett sem fullbúin baðherbergi.
Þar er einnig verslun með allt fyrir bað-
herbergi á einum stað. Við bjóðum upp
á vörur frá helstu innflytjendum hrein-
lætistækja svo sem Tengi, Ísleifi Jónssyni,
VÍDD, Flísabúðinni, Íspan, Slippfélagaginu
og Rein steinsmiðju.“ Kristján segir marga
eflaust þekkja hversu viðamikið verk-
efni endurgerð á baðherbergi geti verið.
Sérstaklega þegar allt er komið í óefni
til dæmis þegar lagnir gefa sig og allt er
fúnað í sundur. „Þetta þarf samt sem áður
ekki að vera neitt stórmál. Yfirleitt er hægt
að klára verkefnið á tveimur til þremur vik-
um, en það er með þeim fyrirvara að vanir
menn sjái um málið og greið leið sé að öllu
því efni sem til þarf til framkvæmdanna.“
Kristján bætir því við að þeir félagar hafi
tekið ákvörðun um að sérhæfa sig í endur-
gerð baðherbergja, eldhúsa og heimilisins
í heild frekar en að sjá um nýbyggingar
en að sjálfsögðu séu þeir alltaf opnir fyrir
verkefnum að öllu tagi. „Auðvitað tökum
við að okkur allt sem að okkar fagi snýr.
Við erum til dæmis mikið í skolplagna-end-
urnýjun, raflögnum, almennu múrverki,
flísalögnum og málningarvinnu.“
Hjá fyrirtækinu starfa nú tuttugu menn
sem koma úr ýmsum iðngreinum. „Með
þessum hætti er okkur kleift að geta sinnt
öllu því sem þarf til að klára verkið,“ segir
Kristján. „Við sjáum um allt frá niðurrifi
og förgun til lokafrágangs. Það má segja
að þetta sé allur pakkinn og hver einasti
verkþáttur er unnið af fagmönnum. Áður
fyrr höfðum við oft séð um innkaup að-
fanga fyrir viðskiptavini okkar hjá hinum
ýmsu verslunum en ákváðum nú að bæta
við þjónustuna með eigin sýningarsal með
vörum frá fyrirtækjum sem hafa reynst
okkur vel og við viljum nota. Í sýningar-
salnum höfum við sett upp átta bása með
fullbúnum baðherbergjum þar sem hægt
er að skoða úrval flísa, hreinlætistækja,
ofna og fleira í réttu umhverfi. Ekki má
gleyma því að þar er líka hægt að skoða
handbragð okkar manna, sem að sjálf-
sögðu eru fyrsta flokks."
K Y N N I N G
FlísaverK öll þjónusta þegar baðherberginu er breytt
Allt fyrir baðherbergið
Hjá Flísaverki starfa um tuttugu menn úr ýmsum iðngreinum.
viðhald húsa