Fréttatíminn - 16.03.2012, Page 62
Svandís Bára Karlsdóttir
sjúkraliði
Voltaren Dolo
15%
afsláttur
Lyfjaval.is • sími 577 1160
Bílaapótek Hæðasmára
Mjódd Álftamýri
Voltaren Gel
Aumir og
sárir vöðvar?
15%
afsláttur
m/ost
i, gúrk
u,
lauk,p
apríku
,
iceber
g,
smok
ey BB
Q sós
u
og gri
ll “fla
vour”
marin
eringu
MÁLT
ÍÐ
MÁNA
ÐARIN
S
1095.-
M/FRÖNSKUM
& COKE
L andsmenn horfa nú til þess að á næstu árum stækki húsnæði Landspítala við Hringbraut með löngu tímabærum nýbyggingum. Mikið hefur
verið rætt og ritað um þessa framkvæmd á síðustu
vikum og mánuðum og sitt sýnist hverjum.
En af hverju þurfum við nýtt sjúkrahús? Fram til
þessa hefur starfsemi Landspítala verið á nærri tutt-
ugu stöðum en að stærstum hluta í Fossvoginum og við
Hringbraut og af því hlýst mikið óhagræði. Í dag vinna
starfsmenn spítalans afar metnaðarfullt starf en við
verulega slæma aðstöðu þar sem húsnæði og aðstaða
er þröng og úr sér gengin. Fara þarf með sjúklinga á
milli húsa til innlagnar, í rannsóknir eða til meðferðar.
Í núverandi skipulagi eru víða reknar fleiri en ein sam-
bærileg eining svo sem gjörgæsla, skurðstofur, rann-
sóknarstofur, röntgendeild og svo mætti lengi telja. Af
því hlýst augljóst óhagræði.
Kröfum mætt og sparað um leið
Núverandi aðstaða á Landspítala er þess eðlis að hún
mætir engan veginn kröfum og framförum í nútíma
heilbrigðisvísindum. Ekki bara það að starfsemin sé
dreifð heldur er húsnæðið í mörgum tilfellum barn síns
tíma, úrelt og krefst mikils viðhalds. Með stækkun
Landspítala erum við að mæta kröfum um framfarir en
á sama tíma að spara, því dýrast af öllu er að gera ekki
neitt.
Bygging sjúkrahússins er stór framkvæmd enda
verður það byggt í áföngum. Í fyrsta áfanga verður
byggður helmingur legudeildanna. Þá verður einnig
farið í að byggja bráðamóttöku, gjörgæslu, skurðstofur,
rannsóknarstofur, myndgreiningu, sjúklingahótel og
fleira.
Við byggingu fyrsta áfanga er gert ráð fyrir að legu-
deildir verði níu talsins, þar með talin sérstök smit-
sjúkdómadeild. Sjúklingar verða hafðir í fyrirrúmi
og vinnuaðstaða allra starfsmanna stórbætt. Allar
sjúkrastofur eru einbýli sem gerir starfsmönnum kleift
að veita alla hjúkrunarmeðferð, svo og sjúkraþjálfun og
iðjuþjálfun á stofum sjúklinga.
Bættar sýkingarvarnir
Sérbýlin skapa næði fyrir sjúklinga og sýkingarvarnir
á spítalanum batna. Sjúkrastofur á Landspítala í dag
eru flestar tveggja manna stofur og allt uppí fjögurra
manna stofur. Þá deila flestir sjúklingar salernum með
einum og allt upp í sjö manns og stenst þessi aðstaða
engan veginn kröfur nútímans um sýkingarvarnir.
Hönnun á legudeildum nýs spítala tekur mið af sýking-
arvörnum. Sérhverri sjúkrastofu mun fylgja innangeng
snyrting með sturtu sem hönnuð er miðað við aðgengi
fatlaðra og með það í huga að tveir starfsmenn geti að-
stoðað sjúkling. Þá er gert ráð fyrir að ættingjar geti nú
verið í meira næði hjá sínum nánustu.
Höfundar vilja hvetja alla sem áhuga hafa á að kynna
sér staðreyndir um stækkun Landspítala. Mikilvægt er
að hafa í huga að verið er að byggja sérhæfðan spítala
fyrir alla landsmenn. Nýr Landspítali verður í senn
miðstöð heilbrigðisvísinda á Íslandi og sjúkrahús allra
landsmanna. og hann mun færa sjúklingum aukið ör-
yggi og aðbúnað sem er til sóma hverri þjóð sem telur
sína heilbrigðisþjónustu vera í fremstu röð.
Nýtt sjúkrahús
Nýr Landspítali – hagur allra
María V. Sverrisdóttir
hjúkrunarfræðingur
Steinunn Ingvarsdóttir
hjúkrunarfræðingur
Stefanía Arnardóttir
hjúkrunarfræðingur
Bylgja Kærnested
hjúkrunarfræðingur
Höfundar vilja hvetja alla sem áhuga hafa á að kynna sér stað-
reyndir um stækkun Landspítala. Mikilvægt er að hafa í huga
að verið er að byggja sérhæfðan spítala fyrir alla landsmenn.
Höldum Páska í Dalakofanum.
Gönguskíðaferð
Jeppaferð á eigin jeppum
42 viðhorf Helgin 16.-18. febrúar 2012