Fréttatíminn - 16.03.2012, Page 65
Fært til bókar
Kiddi sleggja lærir á stjórnmálin
Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi
alþingismaður, kom víða við á stjórn-
málaferli sínum. Hann var bæjarfulltrúi
í Bolungarvík frá 1982 til 1998 og sat á
Alþingi fyrir Vestfirðinga frá 1991 til 2009,
fyrst fyrir Alþýðubandalagið, þá utan
flokka, síðar fyrir Framsóknarflokknum,
og loks fyrir Frjálslynda flokknum en
þingferilinn endaði hann utan flokka. Það
hefur því lengi verið sláttur á Kristni, eða
Kidda sleggju eins og hann er yfirleitt
kallaður. Kiddi verður sextugur í ágúst
en lætur ekki deigan síga. Eftir langan og
fjölbreyttan stjórnmálaferil hefur hann
ákveðið að læra sjálf stjórnmálafræðin
þótt ýmsir teldu að hann kynni talsvert
fyrir sér í þeim. Í frétt Bæjarins besta á
Ísafirði kemur fram að Kristinn hafi fengið
skólavist í Háskólanum í Leeds í Englandi
til meistaranáms í stjórnmálafræði og
fari þangað í haust. „Það er svo mikið
umrót núna í pólitíkinni og verður það
á næstu árum. Bæði eru að koma fram
nýir flokkar en einnig þurfa gömlu flokk-
arnir sem fyrir eru að breytast til þess að
halda velli,“ segir Kristinn í samtali við
Bæjarins besta og bætir við að tímarnir
fram undan séu spennandi og því sé gott
að mennta sig vel á þessu sviði. Hann
segir stjórnmálafræðideild Háskóla Ís-
lands bjóða upp á mjög gott nám en hann
valdi Háskólann í Leeds vegna þess að
stjórnmál verða sífellt alþjóðavæddari.
„Það er bara nauðsynlegt að kynna sér
líka stjórnmálin erlendis. Hvort sem Ís-
lendingar ganga í Evrópusambandið eða
ekki þá verður þróunin sú að æ meira
af samskiptum á stjórnsviði fer fram við
útlönd. Íslenskir stjórnmálamenn þurfa að
geta átt í þeim samskiptum sér til gagns í
því starfi sem þeir eru í,“ segir Kristinn en
hann telur einmitt veikasta hlekk íslenskra
stjórnmálamanna vera litla tengingu við
erlenda strauma. Sama gildir um Kristin
og aðra sem lagt hafa stjórnmálin fyrir sig,
þeir eiga annað hvort fylgismenn eða and-
stæðinga. Af bloggskrifum Guðmundar
Sveinbjörns Brynjólfssonar, aðdáenda hins
fornfræga knattspyrnuliðs Leeds United,
má ætla að hann sé í síðari hópnum. „Nú
bætist við nýtt áhyggjuefni,“ skrifar hann
og heldur áfram: „Kristinn H. Gunnarsson
er að fara til Leeds! Reyndar í nám – segir
hann! Hann sagðist líka einu sinni vera í
Framsókn en reyndist svo Frjálslyndur –
eða var það öfugt? Ég er mest hræddur
um að hann dúkki upp á Elland Road – ekki
meðal áhorfenda heldur inni á vellinum.
Áhyggjur mínar eru á rökum reistar: Neil
Warnock núverandi stjóri Leeds hafði
mikið dálæti á Heiðari Helgusyni þegar
hann stjórnaði QPR, Heiðar er nagli! Kiddi
er sleggja! Það hljóta allir að sjá hvað er
yfirvofandi!“
Slagurinn harðnar
Eiður Guðnason, fyrrum þingmaður, sendi-
herra og ráðherra, heldur áfram að fjalla
um Ólaf Ragnar Grímsson og forsetafram-
boð hans á síðu sinni og áskilur sér rétt til
að fjalla nánar um það síðar. Slíkt kemur
ekki á óvart enda er Eiður ekki í hópi
helstu aðdáenda forsetans. Hann vék að
umræðum um komandi forsetakosningar
í Silfri Egils á sunnudaginn og sagði: „Ekki
var síður áhugavert að heyra það sem
sagt var forsetakosningarnar. Sigríður
Dögg Auðunsdóttir undirstrikaði það sem
margir hafa sagt og séð að Ólafur Ragnar
Grímsson ætlar sér, ef hann nær kjöri að-
eins að vera forseti hluta þjóðarinnar, ekki
allrar þjóðarinnar, Hann ætlar að vera for-
seti þeirra sem eru andvígir aðild Íslands
að Evrópusambandi. Það hefur enginn
forseti leyfi til að misnota embætti forseta
Íslands í þágu persónulegra skoðana
sinna. Ólafur Ragnar virðist einskis svífast.
Þetta er svo ósvífið að engu tali tekur.“
Slagurinn er greinilega að harðna.
Byltingin étur börn sín
Sú var tíðin að svokölluð 68-kynslóð þótti
róttækust allra, fólk sem boðaði breyt-
Helgin 16.-18. mars 2012 viðhorf 45
BURSTAR í vél-
sópa á lager
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.avelar.is
- estar
stærðir
ingar á stöðnuðu kerfi. En allt er breytingum
háð. Þessi kynslóð komst til valda hér á landi
og hefur haldið lengi um valdataumana. Nú
heimtar Hallur Magnússon, sem gegnt hefur
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknar-
flokkinn, 68-kynslóðina burt. Í bloggi sínu
undir þeirri fyrirsögn segir hann: „Jóhanna
Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon
eru ein höfuðorsök þess að það „Nýja Ísland!
sem þjóðin sóttist eftir í kjölfar hrunsins
2008 hefur ekki orðið. Þeirra „Nýja Ísland“
er ekki það sem þjóðin sóttist eftir. Enda
parið skilgetið pólitískt afkvæmi „Gamla
Íslands“. Hluti hinnar valdsæknu ’68 kyn-
slóðar! Fyrrum Framsóknarmaðurinn Ólafur
Ragnar Grímsson er ekki síður skilgetið póli-
tískt afkvæmi „Gamla Íslands“. Eins og helstu
hvatamenn þess að Ólafur Ragnar bjóði sig
fram á ný – þeir gömlu félagar Ólafs Ragnars
úr Sambandi ungra Framsóknarmanna upp
úr 1970 – Guðni Ágústsson og Baldur Óskars-
son. Hluti hinnar valdsæknu ’68 kynslóðar!
Gamla pólitíska valdsækna ’68 kynslóðin úr
„Gamla Íslandi“ er að verja stöðu sína. Þetta
gamla fólk er ekki að hugsa um hag unga
fólksins. Það vill ekki það „Nýja Ísland“ sem
yngri kynslóðir og miðaldra Íslendingar vilja.
Það vill bara halda halda í þau völd sem þau
hafa. Ekki hugsjónir ’68 kynslóðarinnar. Við
þurfum nýtt Ísland. Gamla valdsækna ’68
kynslóðin er ekki rétta fólkið að leiða þjóðina
inn í nýtt og betra Ísland. Því ’68 kynslóðin er
stærsti þröskuldur hins „Nýja Íslands“. Miðað
við þennan lestur sannast það enn og aftur
að byltingin étur börnin sín. Sé litið til þess
fólks sem Hallur nefnir tilheyrir það meira
og minna svokallaðri 68-kynslóð – en síst þó
Steingrímur J. sem varla var fermdur það
sæla ár 1968. En víst var hann bráðþroska.