Fréttatíminn - 16.03.2012, Qupperneq 92
Mikið mál?
Minna mál með SagaPro
SagaPro er náttúruvara úr íslenskri
ætihvönn og hefur reynst góð
lausn fyrir einstaklinga sem glíma
við tíð næturþvaglát.
SagaPro fæst í heilsubúðum,
apótekum og stórmörkuðum.
www.sagamedica.is
SENDU SMS SKEYTIÐ
ESL DVD
Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VILTU VINNA
EINTAK?
VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 149 KR/SKEYTIÐ.
MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
FULLT AF VINNINGUM:
BÍÓMIÐAR
TÖLVULEIKIR - DVD MYNDIR - GOS OG FLEIRA!
VILTU
VINNA
EINTAK?
KOMIN Á
KOMIN Á
KEMUR
22. MARS Á
Skólína frá Madonnu
Poppgyðjan Madonna tilkynnti í vikunni að hún vinni nú
að nýrri skólínu fyrir skófyrirtækið Aldo sem mun bera
nafnið Truth or Dare, líkt og nýjasti ilmurinn hennar.
Söngkonan mun hanna rúmlega sextíu ólík pör sem
samanstanda af flatbotna ballerínuskóm, hælastíg-
vélum, skóm með fylltum hæl sem og öðrum skóm í
hefðbundnum stíl. „Línan mun helst vera ætluð konum
frá 27 ára aldri til 50 ára,“ segir hin 54 ára söng-
konan í viðtali við tímaritið
In Style, og heldur áfram:
„Línan verður löðrandi í
kynþokka og sjálfsöryggi
og munu skórnir kosta
frá ellefu þúsund krónum
í verslunum Aldo seinna á
árinu.“
S orpa og Tækniskólinn sameinuðust um námsáfanga þar sem nemendur skólans fengu tækifæri til þess að
vinna með úrgang sem berst Sorpu sem
hráefni í skapandi hönnunarverkefnum. Til-
efni samstarfsverkefnisins Sorp er auðlind
var tuttugu ára afmæli endurvinnslufyrir-
tækisins og að því komu einnig Góði hirðir-
inn, Fataflokkun Rauða krossins og endur-
vinnslustöðvar.
Ellefu nemendur af ýmsum sviðum Tækni-
skólans skráðu sig í áfangann þar sem
áhersla var lögð á umhverfisvæna hönnun
sem hefur það markmið að lengja líftíma
hluta. Umhverfisvernd og endurnýting voru
því nemendunum ofarlega í huga þegar þeir
tókust á við það verkefni að nýta sorp sem
auðlind.
Færri komust að en vildu og mögulegt er
að verkefnið geti af sér nýjan áfanga innan
Tækniskólans. „Sú vitund sem skapast hefur
meðal nemenda áfangans er eitthvað sem
vert er að fanga og ala upp hjá þeirri kynslóð
sem nú situr á skólabekk,“ segir Ragna Hall-
dórsdóttir, deildarstjóri markaðs og fræðslu-
mála hjá Sorpu. „Notagildi hluta, umhverf-
isvæn hönnun sem tekur tilliti til umhverfis,
orkusparnaður, endurvinnsla og endurnýting eru gildi sem þarf að rækta og koma inn í
daglegar venjur og nám almennt með sterkari hætti.“
Áfanganum lýkur með sýningu sem verður opnuð í húsnæðinu þar sem Hönnunarsafn
Ísland var áður til húsa að Lyngási 7 í Garðabæ, föstudaginn 16.mars kl. 18.00. Sýningin
er opin kl. 14-17 laugardag og sunnudag.
Sorpa Eflir umhvErfiSvitund
Úrgangur er auðlind
Þessi vídeóspólukjóll er meðal þess sem spratt
upp úr hönnunarvinnu nemenda Tækniskólans
þegar þeir grömsuðu í úrgangi frá Sorpu.
Sú vitund
sem
skapast
hefur
meðal
nemenda
áfangans
er eitt-
hvað sem
vert er að
fanga.
72 dægurmál Helgin 16.-18. mars 2012