Fréttatíminn - 16.03.2012, Blaðsíða 94
Þorsteinn Gunnarsson VíGaleGur með schäfer-hunda
Útvarps- og sjónvarpsmaðurinn Andri Freyr
Viðarsson gerði það gott með þáttum sínum
Andri á flandri síðasta sumar og hefur greinilega
engu gleymt og er á fljúgandi siglingu með nýju
þáttunum sínum Andraland sem Sjónvarpið sýn-
ir. Þátturinn var með næst mesta meðaláhorfið,
eða 30.8 prósent, hjá RÚV í aldursflokknum
12-80 ára og mesta meðaláhorfið þegar horft
er til fólks á aldrinum 12-49 ára. Andri er þannig
kominn upp fyrir Landann hjá 12-80 ára en sá
þáttur mældist með 29,7 prósenta meðaláhorf.
Frozen Planet frá BBC njóta mikilla vinsælda og
tróna efst á listanum yfir vinsælustu þætti RÚV
með 34 prósenta meðaláhorf og 41 prósenta
uppsafnað áhorf í síðustu viku.
Andri yfir Landann
Draumadúett
Eins og Fréttatíminn sagði frá í síðustu viku
ætlar athafnamaðurinn og stuðboltinn Einar
Bárðarson að fagna sumri á sumardaginn fyrsta
með stórtónleikum í Hörpu á sumardaginn fyrsta.
Þar ætlar hann að smala saman öllum helstu
poppstjörnum ungu kynslóðarinnar og söngvar-
arnir Páll Óskar og Friðrik Dór munu ekki láta sig
vanta. Tónleikarnir verða líklega með því síðasta
sem Páll Óskar tekur þátt í áður en hann fer í
langþráð frí. Honum og Friðrik Dór hefur orðið vel
til vina og þeir eru sagðir hafa mikinn hug á því
að bralla eitthvað saman svo sem syngja dúett og
Einar gerir sér góðar vonir um að þeir muni taka
lagið saman á tónleikunum.
Ólöf og Snorri á
Rósenberg
Ólöf Arnalds heldur tónleika
á Rósenberg á miðvikudaginn
en á undan henni stígur Snorri
Helgason á sviðið, nýkominn
heim úr vel heppnaðri tónleika-
ferð til Póllands þar sem hann
lék víðs vegar um landið og
víðast hvar fyrir fullu húsi.
Ólöf hefur fyrir löngu skipað
sér sess með framsæknustu
lagahöfundum og flytjendum
á Íslandi, frá því að frumraunin
Við og við kom út árið 2007
og ekki síður með breið-
skífunni Innundir skinni sem
leit dagsins ljós í september
2010 á vegum One Little
Indian útgáfunnar. Ólöf
hefur síðan staðið í ströngu
við tónleikahald víðsvegar
um heiminn og hefur fengið
frábæra dóma í helstu tón-
listartímaritum erlendis.
Tónleikarnir þann 21.mars á
Rósenberg hefjast klukkan
22.
Þeir eru
voðalega
gæfir,
þannig
lagað.
Þorsteinn Gunnarsson
leikur nasista í nýju
leikriti eftir Jón Gnarr.
Á sviðinu þarf hann að
hafa taumhald á þessum
tveimur stóru schäfer-
hundum sem honum
hefur gengið ágætlega
að kynnast.
Laðar þá að sér
með pylsum
Arkitektinn og leikarinn góðkunni Þorsteinn Gunnarsson fer með stórt hlutverk í leikritinu
Hótel Volkswagen, eftir Jón Gnarr. Borgarleikhúsið frumsýnir verkið um næstu helgi og þá mun
Þorsteinn valsa reffilegur um sviðið í hlutverki nasistans Ludwig Rosenkranz með tvo stóra
schäfer-hunda sér við hlið.
Þ að hefur gengið svona upp og ofan,“ segir Þorsteinn þegar hann er spurð-ur hvernig samstarfið við hundana
tvo hafi gengið. „Ég gef þeim pylsur og svo-
leiðis og reyni að laða þá þannig að mér. Þeir
eru voðalega gæfir, þannig lagað.“
Þorsteinn byrjaði aftur að leika eftir
nokkurt hlé í Faust með Vesturporti og
hefur látið nokkuð til sín taka í Borgarleik-
húsinu þar sem hann er flestum krókum
og kimum kunnugur enda einn hönn-
uður byggingarinnar. „Ég er nú
sko orðinn 71 árs og fyrir mann
á mínum aldri er þetta dálítið
óvenjulegt verk og það væri
kannski synd að segja að pers-
ónur verksins væru einhverjar
hetjur eða stórmenni. Þetta eru
fremur svona aumkunarverðar
persónur. Hver í sínum
heimi og vel flestar
í einhvers konar
fjötrum en það er
hægt að hlæja að
þeim,“ segir Þor-
steinn sem leikur
kumpánlegan
nasista sem,
eins og aðr-
ar persónur
verksins,
rekur sig
á að það er
hægara sagt
en gert að yf-
irgefa Hótel
Volkswa-
gen
þegar
mað-
ur
er á annað borð kominn þangað.
„Ég leik náunga sem hefur komið vafa-
sömum auðævum sínum í skjól í fjarlægu
landi sem hann dreymir um að komast til
og eyða þar ævikvöldinu sem burgeis en
hann kemst ekki af stað fyrr en að undan-
gengnum réttarhöldum. Og ég er nú svona
að gæla við það að einhverjir sjái í þessu
skírskotun til íslensks samfélags.“
Þorsteinn segir ljóst að í höfundinum,
Jóni Gnarr borgarstjóra, bærist alvöru
skáld. „Já, já. Húmor verksins er svona í
naprara lagi og það kæmi mér ekkert á
óvart að yngri kynslóðinni fyndist hann
jafnvel nútímalegur. En ég held að mér
sé óhætt að segja að í verkinu sé einhver
svona óskilgreind undiralda en hvort
okkur lukkast að koma henni til skila það
er svo aftur spurningin.“
Benedikt Erlingsson leikstýrir Hótel
Volkswagen en hann og Jón Gnarr hafa
áður átt farsælt samstarf og nægir þar að
nefna hina sígildu sjónvarpsþætti Fóst-
bræður. Þorsteinn vissi líka að hverju
hann gekk þegar hann tók að sér hlut-
verkið.
„Ég lék fyrir fáeinum árum í stuttmynd
eftir Benedikt Erlingsson sem fjallaði um
forsætisráðherra sem hlaut nýja og breytta
lyndiseinkunn við það að detta ofan af
vinnupalli og fá nagla í höfuðið. Þá kynnt-
ist ég vinnubrögðum Benedikts og vissi
alveg að hverju ég gekk núna og vinnan
við Hótel Volkswagen hefur sannarlega
staðist væntingar. Benedikt er hugmynda-
ríkur leikstjóri. Hann er viljasterkur og
afar natinn og nýtur þess í vinnunni að
vera sjálfur leikari.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
B ílskúrssalan Allt milli himins og jarðar er orðinn fastur liður í starfsemi KEX
Hostel og á sunnudaginn ætla
systkynin Kormákur og Snæ-
fríður Gunnarsbörn að standa þar
vaktina og koma ýmsu lauslegu
sem þau fundu við herbergistiltekt
í verð.
„Við ætlum aðallega að selja
gamlar flíkur. Bæði sem við eigum
og svo ýmislegt sem við fundum til
heima,“ sagði Kormákur, sem er
sextán ára Kvennaskólanemi, þegar
Fréttatíminn náði í skottið á honum
þar sem hann var að hlaupa inn á
lokaæfingu fyrir frumsýningu leik-
félags skólans á Frankenstein.
„Ég er alveg klár með nokkrar
flíkur og systir mín er líka með
slatta svo fáum við eitthvað hjá
mömmu okkar og eitthvað þannig.“
Kormákur og Snæfríður eru börn
leikarans Gunnars Hanssonar, sem
þar er móttökustjóri og þekkja því
vel til á KEX. „Já, já. Ég hef komið
þarna áður enda var pabbi að vinna
þarna.“ Kormákur segir tilganginn
með sölunni fyrst og fremst þann
að ná í smá vasapeninga um leið
og þau eru trú hugsjóninni að baki
bílsskúrssölunni sem gengur út á
að framlengja líf notaðra hluta.
Systkynin hafa fylgst með bíl-
skúrssölu á KEX og vita því að
hverju þau ganga en uppátækið
hefur vakið þó nokkra athygli og
fólk hefur verið duglegt að mæta
með dót úr bílskúrum sínum og
geymslum. „Við verðum bara tvö
þarna og sjáum um þetta. Það hlýt-
ur að duga.“
Kormákur Gunnarsson er
kominn á kaf í leiklistina í
skólanum og fetar þannig
svipaða slóð og pabbi hans.
KeX hostel BílssKúrssala leiKaraBarna
Krækja í vasapening með notuðum fötum
Smurostar
við öll tækifæri
...tvær nýjar
bragðtegundir
Ný bragðtegund:
meðpapriku
Ný bragðtegund:
Tm
74 dægurmál Helgin 16.-18. mars 2012