Læknablaðið - 01.10.1967, Blaðsíða 48
194
LÆKNABLAÐIÐ
Ásmundur Brekkan tók í sama streng, hvatti til ráðstefnu og
sambands við erlenda sérfræðinga.
Ólafur Bjarnason las upp bréf frá nefnd, er skipuð var til við-
ræðna við læknanema um staðgengilstaxta (fylgiskjal 12). í tilefni af
þessu bréfi var lögð fram tillaga (fylgiskjal 13).
Sigurður Friðjónsson, fulltrúi læknanema, sagði, að svo virtist,
sem þeir þyrftu að greiða sjálfir úr eigin vasa, þeim er leystu þá af
í sumarleyfi. Hann kvað standa fyrir dyrum breytingar á kennsluhátt-
um í Læknadeild H.í. og þar með myndu breytast mjög fjáröflunar-
möguleikar læknanema og gæti sumarvinna þeirra í héraði því orðið
miklu mikilvægari en hún hefur verið hingað til. Hann kvað Félag
læknanema mjög gjarnan vilja hafa samvinnu við læknasamtökin um
skipulagningu þessarar vinnu.
Skýrsla Bjarni Bjarnason flutti skýrsluna. Heildarkostnaður
Domus Medica við allt húsið við síðustu áramót var 21.967.929.00.
Framlag Domus Medica var 1.285.681.00. Bjarni kvað
hafa verið unnið af miklu kappi að byggingu Domus Medica til loka.
Fyrsti leigjandinn settist þar að í janúar 1966; læknafélögin fluttu
inn í marz og aðrir í mai. 36 eða 37 starfandi læknar munu nú vera
i húsinu.
Vígsla Domus Medica fór fram 3. des. 1966, að viðstöddu miklu
fjölmenni, meðal annars forseta íslands, ráðherrum o. fl. stórmenni.
Frágangur utan húss er óskipulagður og ólokið.
Bjarni kvað fjármálaróðurinn verða nokkuð erfiðan næstu tvö ár-
in; öll lán væm til skamms tíma og yrðu að greiðast niður á tæpum
8 árum, héðan í frá, og því yrði að koma til aukið tillag og húsaleiga
frá læknafélögunum.
Að loknu máli Bjarna Bjarnasonar þakkaði fundarstjóri honum
öll hans störf í þágu Domus Medica, og fundarmenn tóku undir þau
orð.
Mál og; tillög-ur frá svæðafélögum
Læknafélag Ásmundur Brekkan las upp samþykktir frá aðalfundi
Austurlands Læknafélags Austurlands svohljóðandi:
1) Eins og kjaramálum lækna er nú háttað, telja aust-
firzkir læknar eðlilegast, að samningsréttur lækna á íslandi sé
í höndum læknasamtakanna sjálfra. Að sjálfsögðu geta aust-
firzkir læknar sætt sig við samningagerð aðila svo sem BHM,
ef tryggt er, að samtök þeirra fái aðstöðu til að taka þátt í
slíkum samningum.
2) Aðalfundur Læknafélags Austurlands telur sjálfsagt, að nætur-
og helgidagataxti sé hinn sami, sem sé með 100% álagi; enn
fremur, að helgidagavinna reiknist frá kl. 12 á hádegi á laugar-
dögum.
3) Aðalfundur Læknafélags Austurlands hefur samþykkt að
greiða viðbótargjald til Domus Medica kr. 500.00.