Læknablaðið - 01.10.1967, Blaðsíða 49
LÆKNABLAÐIÐ
195
Læknafélag Guðsteinn Þengilsson fylgdi tveimur tillögum úr hlaði
Vestfjarða (fylgiskjal 14). Guðsteinn taldi, að gjaldskrársamningur
væri ekki nógu ýtarlegur. Ósamræmi væri nokkurt milli
lækna, hvað þeir tækju fyrir vottorð og annað, er ekki væri getið í
samningnum.
Ásmundur Brekkan lagði til, að fyrri tillögunni yrði vísað frá
með tilliti til tillögu frá stjórn L.Í., er áður hefði verið lögð fram, og
var það samþykkt.
Ólafur Björnsson ræddi tillögu nr. 2. Taldi hann vafa um ýmsa
liði, hvort telja ætti til sérfræðiþjónustu eða ekki, ef framkvæmt væri
af almennum lækni, t. d. gynecologiska-skoðun, hjartarafritun o. fl.
Gísli Auðunsson beindi spurningum til Ólafs Björnssonar um
greiðslu fyrir þau störf, sem samningarnir ná ekki yfir.
Að umræðum loknum voru báðar tillögur dregnar til baka og því
ekki bornar upp til atkvæða.
Læknafélag Tillaga um aukningu á verkefnum héraðssamlaga
Norðvesturlands (fylgiskjal 15). Valgarð Björnsson fylgdi tillög-
unni úr hlaði með greinargerð (fylgiskjal 16). Sam-
þykkt samhljóða.
Læknafélag Tillaga um endurskoðun á reglugerð um veitingu lækn-
Reykjavíkur ingaleyfa og sérfræðileyfa (fylgiskjal 17).
/ Árni Björnsson, fylgdi tillögunni úr hlaði. Hann kvað
reglugerð frá 1961 um lækningaleyfi og sérfræðinám hafa í upphafi
verið að ýmsu leyti gallaða, og eftir því, sem tímar liðu, hafi fleiri
gallar komið í ljós. Fram hefur komið sérstök óánægja með þessa
reglugerð. Kvaðst hann ekki vilja leggja dóm á, hvor ætti að veita
sérfræðingsleyfin, heilbrigðisstjórn eða læknasamtökin sjálf, en hin
síðarnefndu ættu að vera hæfari til að dæma um kunnáttu.
Árni vildi frekar fækka sérgreinum, en veita svo mönnum „diplom“
fyrir ákveðna kunnáttu eða þekkingu, sem þeir hefðu aflað sér á
þrengri sviðum.
Guðjón Lárusson kvaðst sammála því, að reglugerðin væri ófull-
nægjandi; vald til veitingar sérfræðingsleyfa ætti ekki að vera í hönd-
um heilbrigðisyfirvalda og reglugerðin ætti ekki að vera samin af Há-
skólanum, heldur læknasamtökunum.
Sigmundur Magnússon ræddi um lagalegan grundvöll reglugerð-
arinnar.
Ólafur Bjarnason taldi hættulaust að samþykkja slíka áskor-
un, sem hér væri á ferðinni.
Að umræðum loknum var tillagan samþykkt samhljóða.
Fundi síðan frestað til næsta dags.
Föstudaginn 28. júlí var aðalfundi L.í. fram haldið, og hófst hann
kl. 9.15. Allir fulltrúar voru mættir.
Fundarstjóri síðari dags, Páll Gíslason, setti fundinn og las síðan
upp tvær tillögur, er borizt höfðu nýjar.
Árni Björnsson fylgdi fyrri tillögunni úr hlaði, um ástand og