Læknablaðið - 01.10.1967, Blaðsíða 50
196
LÆKNABLAÐIÐ
starfsgrundvöll sjúkrahúsa utan Reykjavíkur (fylgiskjal 18). Árni
kvað bæði þörf athugunar á hinum smærri sjúkrahúsum úti um land,
hvort í raun og veru væri þörf á þeim sums staðar, og eins á rekstri
þeirra, sem sums staðar væri til fyrirmyndar, en annars staðar miður
Hann kvaðst því álíta, að ástæða væri til þess fyrir L.í. að skipa svip-
aða nefnd og þá, er L.R. skipaði á sínum tíma í Reykjavík.
Ólafur Björnsson ræddi um svæðaskiptingu sjúkrahúsa og kvað
það mjög þýðingarmikið atriði.
Ólafur Bjarnason taldi, að tillagan félli innan ramma athugunar
á heildarskipulagningu heilbrigðismála.
Tillagan var samþykkt samhljóða.
Tillaga frá stjórn L.R. Guðjón Lárusson fylgdi tillögunni úr hlaði
um framtíðarskipulag (fylgiskjal 19). Kvað hann niðurstöðurnefnd-
spítalalæknisþjónustu arinnar benda til, að ástand í spítalamálum
hér í Reykjavík væri ekki gott og þær væru
tillögur til úrbóta og þar með talinn lágmarksstaðall (sbr. Lbl. 53. árg.,
1.—-2. hefti).
Umræður um tillöguna urðu mjög miklar og skoðanir skiptar. Til
máls tóku: Ólafur Bjarnason, Ásmundur Brekkan, Gísli Auðunsson,
Jón Þorsteinsson, Árni Björnsson, Páll Gíslason og Ólafur Björnsson.
Fram kom frávísunartillaga frá Ólafi Bjarnasyni (fylgiskjal 20)
og einnig önnur tillaga frá honum (fylgiskjal 21).
Frávísunartillaga Ólafs Bjarnasonar var felld með 8 atkv. gegn 4.
Tillaga Guðjóns Lárussonar og Árna Björnssonar var samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum, og seinni tillaga Ólafs Bjarnasonar var
samþykkt samhljóða.
Tillögur til Fram voru lagðar fjórar tillögur til lagabreytinga;
lagabreytinga þrjár frá stjórn L.í. og ein frá Læknafélagi Norð-
vesturlands (fylgiskjal 22). Allar þessar tillögur voru
samþykktar.
Auk þess var samþykkt nafnabreyting á Læknafélagi Miðvestur-
lands, sem nú heitir Læknafélag Vesturlands.
Codex Codex Ethicus, afgreiddur frá læknaþingi ásamt breytingar-
Ethicus tillögum, var borinn upp til samþykktar. Fyrst var hver grein
borin upp sér, ásamt samþykktum breytingartillögum, og
síðan Codex í heild, og var hann samþykktur samhljóða.
Ólafur Bjarnason þakkaði Codex Ethicus nefndarmönnum hin
ágætu störf þeirra og Ólafi Björnssyni sérstaklega, og tóku fundar-
menn undir þau orð með lófataki. (Codex Ethicus er í prentun og mun
verða sendur öllum íslenzkum læknum hið fyrsta.)
Kosnlng 1) Samninganefnd L.í. var endurkjörin óbreytt, og skipa
nefnda hana Ólafur Björnsson, Bragi Níelsson, Guðmundur Þórðar-
son og Valgarð Björnsson.