Læknablaðið - 01.10.1967, Blaðsíða 67
LÆKNABLAÐIÐ
209
fjármagns og aðstöðu til hvers konar grundvallar- og hagnýtra rann-
sókna á öllum sviðum heilbrigðismála, svo og tryggingar þess, að
niðurstöður slíkra rannsókna heilbrigðismála og þeirra skipulags- og
framkvæmdastofnana, er á vegum hennar starfa.
Rökrétt niðurstaða þeirra athugasemda, sem hér hafa verið gerð-
ar um ýmsa þætti skipulagningar og áætlanagerðar heilbrigðismála, er
sú, að brýn nauðsyn er á því að koma tafarlaust á fót samvinnunefnd
um áætlanagerð og skipulagningu á þessu sviði.
Einangraðar aðgerðir og áætlanir opinberra aðila, félagasamtaka
og einkaaðila í heilbrigðismálum eru mjög hæpnar og geta jafnvel ver-
ið skaðlegar til úrlausnar vandamálum þeim, er þjóðfélagið stendur
andspænis, nema þær séu samræmdar heildaráætlun, gerðri á þeim
forsendum, er framanskráð greinargerð gerir ráð fyrir, og samhæfð á
tölulegum grundvelli í starfsgreinarkerfi (operations analytic model).
Slíkt kerfi gerir mögulegar framkvæmdaáætlanir og fjárveitinga-
ákvarðanir, er byggja á raunhæfum tölulegum grundvelli, þar sem
hægt er að segja fyrir um áhrif einstakra áætlana eða ákvarðana á
jafnvægi heildarskipulagsins. Það ætti að vera jafnaugljóst, að slíkri
nefnd þarf að gefa mjög frjálsar hendur um það, hvernig hún eigi að
leysa úr verkefnum sínum. Hún þarf að hafa öruggt samstarf við þær
opinberu og hálfopinberu stofnanir, sem fást við reiknistörf og úrlausn
hagfræði- og efnahagsmála; enn fremur að koma á tengslum og sam-
vinnu við hliðstæðar stofnanir í nágrannalöndum okkar og umfram
allt að hafa fjárhagslega öruggan grundvöll til starfs síns.
Ef litið er á hugsanlega áætlun í heild, má efnislega skipta henni
í þrjá aðalþætti:
1) Skipulagning yfirstjórnar og stjórnunar í heilbrigðismálum.
2) Skipulagning og stjórnun heilbrigðisstofnana og starfsliðs
þeirra.
3) Skipulagning heilbrigðisþjónustu utan stofnana (þar með
talin sjúkratryggingamál, lyfjadreifing og tannlækningar).
í heild eru allir þessir skipulags- og áætlanaþættir háðir þeim for-
spám um félagslega þróun, sem um getur að framan. Loks skal lögð
sérstök áherzla á, að grundvallarforsenda fyrir því, að úrlausn fáist,
er sú, að fyllsta tillit sé frá fyrstu stund tekið til mikilvægi heilbrigðis-
mála félagslega, fjárhagslega og stjórnunarlega í þjóðfélagi framtíðar-
innar og nýliðun starfsfólks til allra greina heilbrigðismála verði að
fara fram í sívaxandi samkeppni við iðnað og annan atvinnurekstur
opinberra aðila og einkaaðila. Sé ekki tekið raunhæft tillit til þessa í
áætlanagerð um fjármál, skólamenntun og nýliðun, er einni mikilvæg-
ustu stoðinni kippt undan öllu skipulaginu.
NIÐURLAGSORÐ
Hér hefur verið lögð fyrir yður, herra heilbrigðismálaráðherra,
greinargerð stiórnar Læknafélags íslands um áætlanagerð í skipulagi
heilbrigðismála á íslandi. Stjórn L.f. vill leggja áherzlu á eftirfarandi
sex meginatriði:
1. Samhæfing skipulags og áætlanagerðar er lífsnauðsyn.