Læknablaðið - 01.10.1967, Blaðsíða 57
LÆKNABLAÐIÐ
199
andi lækna, en nú er fullgerð nákvæm spjaldskrá um alla lækna
landsins, og mun innheimta nú (á miðju ári 1967) vera að nálgast
100%.
Eins og á undanförnum árum hefur verið náið samstarf og sam-
band milli stjórna L.í. og L.R. Ber þar til sameiginlegt skrifstofuhald,
sívaxandi þátttaka Læknafélags íslands í kostnaði skrifstofu og aukin
umsvif félagsins að öðru leyti. Stjórnirnar hafa sameiginlega sent út
nokkur fréttabréf, eins og á undanförnum árum.
1. Afgreiðsla mála a) Stofnun lífeyrissjóðs lœkna
frá aðalfundi Á aðalfundi L.í. að Laugum var stjórnum L.í.
og L.R. og tryggingamálanefnd falið að stofna
lífeyrissjóð lækna. Tryggingamálanefnd starfaði áfram að undir-
búningi þess máls í náinni samvinnu við stjórnir læknafélaganna
og með aðstoð Guðjóns Hansens tryggingafræðings. Voru haldnir
nokkrir undirbúningsfundir með þessum aðilum og endanlega geng-
ið frá stofnun lífeyrissjóðs lækna hinn 28. des. ’66.
b) Heildarskipulag heilbrigðismála
Á síðasta aðalfundi var stjórn L.í. falið að beita sér fyrir því,
að undirbúningur að heildarskipulagi heilbrigðismála í landinu
yrði hafinn. Nokkrar umræður hafa orðið um þau mál á opinberum
vettvangi, og einnig hefur formaður átt viðræður við heilbrigðis-
málaráðherra. Loks vann stjórnin að gagnasöfnun til stuðnings
greinargerðar þeirrar, er lögð verður fyrir fulltrúa á aðalfundi.
c) Viðrœður við Félag lœknanema
Stjórn L.í. var falið að skipa nefnd til viðræðna við lækna-
nema um staðgengilstaxta. í nefndina hafa verið skipaðir: Friðrik
Sveinsson, Grímur Jónsson og Haukur Þórðarson. Hafa þeir rætt við
stjórn Félags læknanema, og mun væntanlega verða hægt að skýra
frá störfum nefndarinnar á aðalfundi.
d) Lœknamiðstöðvar
Aðalfundurinn 1966 beindi því til stjórnar L.Í., að hún leitaði
samstarfs við heilbrigðisyfirvöld um framkvæmdir við stofnun
læknamiðstöðva.
Stjórnin skrifaði heilbrigðismálaráðuneytinu eftir aðalfundinn
og óskaði eftir viðræðum um þau mál og önnur, er aðalfundur
beindi til hins opinbera. Slíkur fundur hefur ekki verið haldinn,
og stjórnin lítur þannig á, að nauðsynleg undirbúningsvinna að
heildarskipulagi heilbrigðismála verði að sitja í fyrirrúmi.
Stjórn L.í. telur hins vegar, að stofnun hópsamstarfs lækna,
að eigin frumkvæði, svo sem þegar hefur verið gert í Vestmanna-
eyjum og á Húsavík, sé á þessu stigi lofsvert skref í þá átt að bæta
læknisþjónustu og aðstöðu lækna í dreifbýli landsins.
e) Stofnun lœknisfrœði-rannsóknaráðs
Stjórn L.í. hefur ekki á þessu starfsári talið sig hafa aðstöðu