Læknablaðið - 01.10.1967, Blaðsíða 74
214
LÆKNABLAÐIÐ
I' y 1 g i s k j a 1 7
Fjárhagsáætlun Læknafélags íslands fyrir árið 1967
TEKJUR:
Árgjöld (230X4500) kr. 1.035.000.00
Vaxtatekjur ............................................. — 18.000.00
Aðrar tekjur ............................................ — 25.000.00
Kr. 1.078.000.00
GJÖLD:
Hlutdeild í sameiginlegum skrifstofukostnaði lækna-
félaganna ........................................ kr. 400.000.00
Annar skrifstofukostnaður, ferðakostnaður og risna . . — 100.000.00
Tillag til Domus Medica ............................... — 390.000.00
— Ekknasjóðs ................................... — 48.000.00
— — Læknablaðs ................................... — 92.000.00
—■ — BHM .......................................... — 34.000.00
Rekstrarafgangur ...................................... — 16.000.00
Kr. 1.078.000.00
GREINARGERÐ
í þessari áætlun er reiknað með, að félagsgjöldin hækki úr kr.
4.000.00 í kr. 4.500.00 fyrir hvern félagsmann og hækkunin renni til
Domus Medica í formi hækkaðs tillags. Þá hefur stjórn D. M. farið
þess á leit við læknafélögin, að þau greiddu til viðbótar húsaleigu fyr-
ir skrifstofu félaganna, allt að 12.000 kr. á mánuði. Ef á það verður
fallizt, er auðsætt, að hækka verður félagsgjöldin enn meira eða í kr.
5.000.00, til þess að jöfnuður náist.
Aðalhækkun áætlaðra útgjalda er hluti L. í. af sameiginlegum
skrifstofukostnaði, en L. í. greiðir nú þennan kostnað að hálfu samkv.
samkomulagi stjórna félaganna.
Þá er hækkun sú á tillagi til Domus Medica, er að framan segir,
úr kr. 1.200.00 í kr. 1.700.00 fyrir hvern félagsmann. Tillagið er hér
fært til gjalda, en í reikningum félagsins er það bókfært sem eign
þannig, að tekjuafgangur verður hærri sem framlaginu nemur, en
greiðsluafgangur sá sami.
Gert er ráð fyrir nokkrum kostnaði vegna læknaþings og aðal-
fundar L. í. nú í sumar og móttöku erlendra gesta í þvi sambandi,
og er tekið tillit til þess í áætluninni.
Ráðgert er að gefa innflytjendum lyfja og lækningatækja kost
á sýningu í húsakynnum Domus Medica í sambandi við læknaþingið,
og má reikna með, að einhverjar tekjur verði af henni.
í framangreindri fjárhagsáætlun er teflt á tæpasta vaðið með
greiðsluafkomu félagsins. Reiknað er með betri innheimtu árgjalda
en verið hefur og gjöld áætluð svipuð og á yfirstandandi ári.