Læknablaðið - 01.10.1967, Blaðsíða 59
LÆKNABLAÐIÐ
201
Ráðningarfyrirkomulag það, sem þeir samningar þyggðu á, hefurreynzt
vel, og mun læknum við heilbrigðisstofnanir nú almennt skiljast, að
nýting starfskrafta þeirra geti í mörgum tilfellum orðið bezt við ráðn-
ingar skv. eyktakerfinu svonefnda.
4. Samstarfsnefnd L.í. Nefndin hélt nokkra fundi á árinu, en fremur
reyndist erfitt að ná henni saman til fundar-
halda.
Nefnd þessari mun ætlað að samræma alla samninga, hvar sem er
á landinu, og á hún m. a. að gera bað með því að fá til umsagnar alla
samninga, áður en þeir eru undirritaðir. Nefndin taldi, að henni bæri
einnig að stuðla að því að samræma, ef unnt er, samninga, sem þegar
eru í gildi.
Samningum má í aðaldráttum skipta í tvo meginflokka:
a) samninga vegna starfa við sjúkrahús og sjúkraskýli og
b) samninga um læknisþjónustu utan sjúkrahúsa, bæði heim-
ilislæknis og sérfræðiþjónustu.
Ljóst var, að misræmið myndi hvað mest í samningum fyrir störf
við sjúkrahús og sjúkraskýli.
Nefndin skrifaði öllum sjúkrahúslæknum utan Reykjavíkur og
spurðist fyrir um samninga þeirra og sendi þeim jafnframt til íhugun-
ar og umsagnar samninga þá, sem gerðir voru vorið 1966 milli L.R.
annars vegar og Reykjavíkurborgar og ríkis hins vegar.
Hvað viðvíkur gerð nýrra samninga við sjúkrahús, taldi nefndin.
að samningar L.R. við stjórnarnefnd ríkisspítalanna væru þjálli en
borgarsamningurinn, einkum með tilliti til ráðningar lækna hluta úr
degi. Nefndin var því sammála um að leggja til, að við breytingar á
gömlum samningum eða gerð nýrra yrði til samræmingar stuðzt við
ríkisspítalasamninginn.
f ljós kom, að samningar voru ákaflega mismunandi að gerð og
mismunandi hagkvæmir. Eins voru læknar ekki endilega sammála
nefndinni um gæði ríkisspítalasamninganna við þær kringumstæður,
sem voru á hverjum stað, og í sumum tilfellum virtust núverandi
samningar hagkvæmari, þótt ekki væri alltaf auðvelt að bera samning-
ana saman.
Nefndinni var ljóst, að ekki væri skynsamlegt að svo komnu máli
að ganga bert fram í að fá samningum brevtt til þess eins að samræma
bá. Fremur bæri að stuðla að því, að allir nýir samningar og breyt-
ingar á óhagkvæmum gömlum samningum j'rðu gerð í anda fyrr-
nefndra samninga.
Yfirferð á samningum starfandi lækna utan sjúkrahúsa er enn
ekki lokið, þegar skýrsla þessi er skrifuð, en unnið verður að því fram
að aðalfundi.
Að lokum hefur nefndin haft bein afskipti af gerð ýmissa samn-
inga, svo sem samningsins við Sjúkrahús Húsavíkur og fleiri, og virð-
ist aukning hafa orðið á því, að læknar úti um land leiti til nefndar-
innar um vandamál, er varða samninga. Virðist þetta staðfesta það