Læknablaðið - 01.10.1967, Blaðsíða 62
204
LÆKNABLAÐIÐ
Svo sem kunnugt er, hefur ný útgáfa „Lækna á íslandi“ undir rit-
stjórn Vilmundar Jónssonar og Lárusar Blöndals verið lengi á döfinni.
Gagnasöfnun af hálfu ritstjóra er lokið fyrir nokkru og bókin tilbúin
til prentunar. Stjórn L.í. hefur á síðasta misseri haft nokkur afskipti
af riti þessu, með því að nokkrum læknum þykir aðalritstjóri hafa tekið
inn i ritið upplýsingar um einkamál fjölskyldna þeirra, er það eigi
varðar. Hefur aðalritstjórn bókarinnar brugðizt mjög illa við tilmælum
þessara lækna og stjórnar L.í. um úrfellingu áminnztra upplýsinga.
Stjórn L.í. hefur bent útgefanda og ritstjórum á, að hér sé um þannig
upplýsingar að ræða, að þær varði engan veginn bókina sem slíka og
geti beinlínis valdið heilsutjóni og miska, ef þær birtast. Máli þessu
er ekki lokið, en stjórn L.f. þykir leitt, að svo illa skuli hafa verið
brugðizt við málaleitan hennar og þeirra lækna, er hlut eiga að máli.
Eitt mál hefur verið lagt undir gerðardóm L.í. á árinu. Er því
ekki lokið og mun ekki gerð nánari grein fyrir því hér.
Formaður L.í. hefur verið fjarverandi frá því í byrjun febrúar-
mánaðar 1967 og hefur því ekki getað samið ársskýrslu félagsins, en
mun væntanlega verða kominn til aðalfundar 27. júlí næstkomandi.
Ásmundur Brekkan,
ritari L.l.
Sigmundur Magnússon,
gjaldkeri L.l.
Fylgiskjal 2
GREINARGERÐ UM SKIPULAG HEILBRIGÐISMÁLA
Á ÍSLANDI
Inngangur.
Félagsleg þróun á öllum sviðum þjóðlífsins einkennist af örri
þenslu, ekki einungis í okkar landi, heldur um heim allan. Þensla
þessi á að verulegu leyti rætur sínar að rekja til örrar tækniþróunar,
breyttra hagfræðiviðhorfa, breyttra og síaukinna samgangna, en ekki
hvað sízt til framfara og þróunar vísinda, þar með talin læknisfræði
og henni skyldar greinar. Ekki skal reynt að leggja hér neitt mat á
það, hvort þessi þensluþróun sé nauðsynleg eða æskileg og hvað hún
muni leiða af sér, en horfast verður í augu við þá staðreynd, að á sviði
heilbrigðismála er fremur um sprengingu en þenslu að ræða. Á þetta
við í öllum löndum heims að meira eða minna leyti.
Þróunin í heilbrigðismálum og ör framþróun læknisfræðinnar hef-
ur mjög mikil áhrif á heildarmynd sjúkdóma, slysa, örorku og dánar-
tölu. Tækni- og þjóðfélagsþróunin skapar einnig í sjálfu sér ný vanda-
mál í heilbrigðisþjónustu og skipulagningu hennar með aukinni iðn-
væðingu, tilflutningum fólks, aukinni vélvæðingu, sem m. a. hefur í
för með sér aukin slys, bæði í umferð og annars staðar. Enn fremur
eru vaxandi hættur á eitrunum og aukningu atvinnusjúkdóma, en á