Læknablaðið - 01.10.1967, Blaðsíða 58
200
LÆKNABLAÐIÐ
til frumkvæðis um stofnun slíks ráðs. Nauðsyn ber þó til, að unnið
verði að þessu máli af næstu stjórn.
2. Samband við Eins og áður hefur verið haft samband við stjórnir
erlend læknafélög læknasamtaka hinna Norðurlandanna, og fundar-
og íslenzka gerðir og önnur gögn borizt reglulega, bæði frá
lækna erlendis norska og danska læknafélaginu.
L.í. treysti sér ekki til að senda fulltrúa á árs-
þing W.M.A. að þessu sinni, en þingið var á Filippseyjum. Samband
hefur þó verið við W.M.A., og fól stjórn L.í. danska læknafélaginu að
fara með umboð L.í. á þinginu.
í nóvember 1966 var haldin merk ráðstefna um kennslumál í New
Dehli, og var L.í. boðið að senda þangað fulltrúa, en tókst ekki að fá
fjárstyrk frá hinu opinbera til þessa. Hins vegar fór Tómas Helgason
prófessor, varaformaður L.Í., á ráðstefnu þessa á vegum Háskólans.
Á síðastliðnu hausti sendi stjórn L.í. út eyðublað til könnunar á
námi, menntun og framtíðarfyrirætlunum íslenzkra lækna heima og er-
lendis. Heimtur hafa verið heldur tregar, en gögnin hafa þó orðið að
nokkru gagni, en ekki verið fullunnið úr þeim enn þá.
í október síðastliðnum fór ritari félagsins sem fulltrúi þess á ann-
að norræna kennslumálaþingið og hefur gert grein fyrir þeim fundi
og ályktunum hans í Læknablaðinu, desemberhefti 1966. Um sama
leyti fóru læknarnir Ásmundur Brekkan og Árni Björnsson á vegum
læknasamtakanna og heilbrigðisyfirvaldanna til Gautaborgar og boð-
uðu þar fund með íslenzkum læknum í Svíþjóð og annars staðar á
Norðurlöndum. Frá þeim fundi er einnig skýrt í desemberhefti Lækna-
blaðsins 1966,
3. Kjarasamningar Þegar skýrsla þessi er rituð, hefur ekki orðið nein
breyting á samningum Læknafélags íslands og
Tryggingastofnunar ríkisins. Samningum var sagt upp með réttum
íyrirvara og runnu út 30. apríl sl., og samninganefnd L.í. gerði eftir-
íarandi kröfur:
1) Breyting á 14. grein númerasamnings, er tryggi læknum
veikindafrí.
2) 4,5% hækkun á greiðslum í lífeyrissjóð.
3) 100% næturálag á gjaldskrársamning, allt frá tveim stund-
um eftir að samningsbundinni dagvinnu lýkur.
Vegna gildandi verðstöðvunarlaga og óvissu Tryggingastofnunar
ríkisins og viðskiptamálaráðuneytisins um, hvernig lagalega bæri að
snúast við þessum kröfum, veitti stjórn L.í. og samninganefnd Trygg-
ingastofnuninni frest um nokkurn tíma, til þess að ríkisstjórnin gæti
athugað þetta mál í ljósi verðstöðvunarlaganna. Á þessum fresti var
þó hafður sá fyrirvari, að hver sú breyting, sem gerð yrði, yrði miðuð
við 1. maí 1967.
Samningar þeir, sem gerðir voru milli Læknafélags Reykjavíkur
og lækna við heilbrigðisstofnanir í Reykjavík, eru enn í gildi, þegar
þessi skýrsla er samin, en þeim hefur verið sagt upp frá 1. júíí nk.