Læknablaðið - 01.10.1967, Blaðsíða 63
LÆKNABLAÐIÐ
205
hinu leitinu ofát, lyfja- og eiturefnamisnotkun og allra handa geðræn-
ar truflanir.
Læknisfræðileg framþróun hefur einnig í för með sér sínar skugga-
hliðar: Fleiri og fleiri sjúklingar lifa af aðgerðir og sjúkdóma með
meiri eða minni lýtum, oft örorku; hætta er einnig á, að hlutfallslega
meiri fjöldi andlega og líkamlega lýttra og vanskapaðra barna lifi af
og myndi þannig æ stærri hlutfallshóp í þjóðfélaginu. Nauðsynlegt er
að gera sér grein fyrir því, að við þessari þróun verður að bregðast
með skipulags- og framkvæmdaaðgerðum, bæði á sviði heilsugæzlu og
hjúkrunar. í þjóðfélagi framtíðarinnar verður æ meira af starfi læknis-
ins á sviði rannsókna- og vísindatækni og loks heilsugæzlu, enda þótt
auðvitað verði alltaf sjúkdómar og slys, sem krefjast mikillar vinnu.
Skipulagning heilbrigðismála verður því ávallt að standa í nánu sam-
bandi við framverði læknisfræðilegra rannsókna, og enn fremur verð-
ur ávallt að vera fyrir hendi raunhæf og fersk mynd af heilbrigðis-
ástandi og sjúkdómamynd þjóðfélagsins.
Áætlanagerð í heilbrigðismálum verður engu síður en áætlunar-
gerð í öllum grundvallarþáttum þjóðlífsins að hafa víðan sjóndeildar-
hring og sjá langt fram á við. Það tekur nærfellt hálfan annan áratug
að „framleiða" sérmenntaðan lækni, og „framleiðsla" sérmenntaðs að-
stoðarfólks á hjúkrunar- og tæknisviði heilbrigðisþjónustunnar tekur
einnig langan tíma umfram lögbundna skólagöngu. Áætlunargerð,
byggingarframkvæmdir og fullbúnaður meiri háttar sjúkrahúss tekur,
þar sem bezt lætur, 6—8 ár, og þannig mætti lengi telja.
Af þessum ástæðum er nauðsynlegt, að komið verði á sívirkri
skipulagsstofnun heilbrigðismála. Nauðsynleg hjálpargögn hennar við
upplýsingasöfnun er skýrslugerð um íbúafjölda og dreifingu, starfs-
mannafjölda og nýtingu; skýrslur um sjúkdóma, meðferð, dauðsföll
og örorku. Þessa skýrslugerð verður að samhæfa hagfræði- og rekstrar-
skýrslugerð, þannig að rétt hagrænt og félagslegt mat (evaluation of
services) fáist. Við erum enn á algjöru frumstigi skipulagningar og
áætlunargerðar af þessu tagi, enda hafa forsendur slíkrar starfsemi
raunverulega hvergi verið fyrir hendi fyrr en nú á síðustu árum með
tilkomu rafreikna og með þeim leiðum til úrvinnslutækni og starfs-
greiningar, sem opnazt hafa með tilkomu slíkra reiknitækja.
RANNSÓKN Á SKIPULAGI HEILBRIGÐISMÁLA
Á ÍSLANDI
I. Tilgangur
Tilgangur rannsóknarinnar er að leggja grundvöll að allsherjar-
skipulagi heilbrigðismála á íslandi.
II. Efniviður
Til framkvæmdar rannsókninni þurfa m. a. gögn um eftirfarandi
að liggja fyrir:
1. a) íbúafjöldi, aldurs- og kynjaskipting, fæðingar- og dánartölur.
b) Á upplýsingum a)-liðar þarf síðan að byggja forspá um íbúa-
fjölgun með stuðningi