Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.1967, Page 61

Læknablaðið - 01.10.1967, Page 61
LÆKNABLAÐIÐ 203 væru á lánum, og þeim flestum fremur óhagstæðum, þannig að vaxta- og afborgunarbyrði af þeim sé nánast óbærileg. Hann kvað stjórn D.M. vera að vinna að því að koma þessum lánum fyrir til lengri tíma, en sem stendur, sagði ræðumaður, er útlit fyrir erfiðleika við að standa í skilum með vexti og afborganir á þessu ári. Hann skýrði því næst frá áætluðum leigutekjum af verzlunum, framlagi læknafélaganna vegna skrifstofuhúsnæðis og kom í ljós, að talsvert mundi á vanta. Taldi ræðumaður, að e. t. v. væri hægt að fá lán úr elli- og örorkutrygginga- sjóði lækna, en það leysti að vísu engan vanda annað en til skamms tíma. í ljós kom við útreikninga, að með því að framlag læknafélag- anna til sjálfseignarstofnunarinnar vegna skrifstofuhúsnæðis væri 12.- 000 kr. á mán., og með óbreyttu framlagi frá einstöku félagsmönn- um, 1.200 kr., eins og hingað til, myndi fást greiðslujöfnuður á af- borgunum og vöxtum á þessu ári. Sigfús Gunnlaugsson, framkv.stj. félaganna, upplýsti því næst, að nokkuð vantaði upp á í fjárhagsáætlun félaganna til þess, að framlag Læknafélags íslands gæti staðið undir þeim leigukostnaði, sem hér væri farið fram á. Eftir nokkrar umræður um málið var það einróma samþykkt af viðstöddum formönnum svæðafélaganna, að leggja bæri til við aðalfund, að árgjald L.í. væri hækkað úr 4.000 kr. í 4.500 kr. á ári, en á þann hátt var talið fullkomlega öruggt, að staðið yrði við allar skuldbindingar Domus Medica að þessu sinni.“ Ágreiningur hefur risið milli stjórna D.M. annars vegar og L.í. og L.R. hins vegar um niðurstöðu fundarins í þessu máli. Stjórnir læknafé- laganna telja, að með áðurnefndu 500 kr. viðbótarframlagi á hvern fé- laga hafi fundurinn skilið, að greiðslujöfnuður fengist á yfirstandandi ári. Stjórn D.M. telur hins vegar, að auk áðurgreinds framlags, sem þá yrði 1.700 krónur alls á hvern félaga í L.Í., beri læknafélögunum að greiða húsaleigu allt að 12.000 kr. á mánuði og að með því hafi verið reiknað á umræddum fundi. 8. Ýmis mál í ársbyrjun 1967 skipuðu stjórnir L.í. og L.R. sameigin- lega þá Tómas Árna Jónasson og Gunnlaug Snædal í nefnd til að kanna horfur og leiðir til þess að stofnsetja sameiginlega bókasafnsþjónustu fyrir alla þá aðila, sem aðgang þurfa að eiga að læknisfræðibókasafni. Með nefndinni hafa starfað Ásmundur Brekkan, ritari L.Í., og Kristín Pétursdóttir bókavörður. Nefndin hefur unnið mikið undirbúningsstarf og beitt sér fyrir stofnun samstarfsnefndar allra þeirra aðila, er bókasafnsmál þessi varða. Skýrsla nefndarinnar mun birtast í Læknablaðinu á þessu sumri. í tilefni 100 ára afmælis Guðmundar heitins Hannessonar á síðast- liðnu hausti ákváðu stjórnir L.í. og L.R. að heiðra minningu hans með útgáfu ljósprentunar af Læknablaði því, er hann gaf út á Norðurlandi 1902—1904. Tókst þessi ljósprentun með ágætum og varð úr þessu vönduð bók, í 500 tölusettum eintökum. Það eru stjórn L.í. nokkur vonbrigði, að allt upplagið hefur ekki selzt, og tæplega fyrir kostnaði. Alltaf selst þó eitt og eitt eintak, enda er hér tilvalin tækifærisgjöf til læknastúdenta, kandídata og annarra, er áhuga hafa á læknis- og þjóðfélagsfræði.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.