Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.10.1967, Side 66

Læknablaðið - 01.10.1967, Side 66
208 LÆKNABLAÐIÐ kallandi þáttur allsherjarskipulagsins. Tengsli eru þó mjög náin milli þessa þáttar og skipulagningar og samhæfingar allra sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana, ásamt beztu nýtingu mannvirkja og mannafla. Má þar m. a. nefna staðsetningu og starfrækslu hinna ýmsu eininga og stofnana, er teljast mega undir almenna heilsugæzlu og heilbrigðiseftir- lit: staðsetningu og starfrækslu miðstöðva heilbrigðisstarfsfólks víðs vegar um landið og tengsli slíkrar starfsemi við sjúkrahús og heil- brigðisstofnanir, sem fyrir hendi eru eða kunna að vera áformaðar innan ramma heildarskipulags. í sambandi við áætlanagerð um heilbrigðisþjónustu þessa verður að hafa mjög nána hliðsjón af framtíðarþróun atvinnu- og samgöngu- mála. Þá koma undir þennan lið áætlunargerðarinnar rannsóknir og áætlanir um lyfsölu og lyfjadreifingu, skipulag sjúkratrygginga, tann- lækninga og verksmiðju- og matvælaeftirlits auk annarra þátta al- menns heilbrigðiseftirlits. Þar eð skilin milli „opinnar“ heilbrigðisþjónustu og ,,lokaðrar“, þ. e. starfsemi á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum, eru næsta óglögg, verður upplýsinga- og samgöngukerfið milli þessara tveggja sviða einnig mikilvægur rannsóknarþáttur. — Af þessu leiðir einnig, að tengsli ,,opinnar“ heilbrigðisþjónustu við grundvallarrannsóknir og hagnýtar rannsóknir þurfa að vera sterk og lifandi, engu síður en inn- an „lokaðra" heilbrigðisstofnana. SKIPULAGNING HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU Á SJÚKRAHÚSUM Það hlýtur að verða eitt veigamesta verkefnið í undirbúningi heild- arskipulags að gera áætlanir um raunhæfa samhæfingu allra sjúkra- húsa og heilbrigðisstofnana í landinu í eina skipulagsheild. Hér verða ekki lengi fyrir hendi neinar þær samgöngutorfærur, er réttlæti annað en algjöra samhæfingu í ákvörðunum um hlutverk og nýtingu heil- brigðisstofnana, enda er slík samhæfing ófrávíkjanlegt skilyrði þess, að hægt verði að veita starfsliði í heilbrigðisþjónustu viðunandi undir- stöðumenntun, nægilega starfsþjálfun og starfsaðstöðu. Þá er óhugs- andi að reka sérhæfða lækningaþjónustu í samræmi við nútímaþekk- ingu læknisfræðinnar öðruvísi en að allir kraftar verði nýttir innan ramma samhæfingar og skipulegrar áætlanagerðar. Loks er samhæfing rannsókna, kennslu, framhaldsmenntunar, lækninga og hjúkrunar grundvallaratriði, sem ekki má missa sjónar af í skipulagningu heilbrigðisstofnana. Það er utan takmarka þessarar greinargerðar að fara nákvæmlega yfir öll þau atriði, sem þar eru virk og þýðingarmikil, en til þess að heilbrigðisþjónusta nái tilgangi sínum og markmiði, verður að sjá öllu starfsliði hennar fyrir fullnægjandi menntunarmöguleikum, bæði til grundvallarnáms og stöðugrar framhaldsmenntunar. f því sambandi er rétt að minnast enn á nauðsyn fullkominnar upplýsingastarfsemi milli og innan allra þátta heilbrigðisþjónustunnar og enn fremur nauðsyn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.