Læknablaðið - 01.09.1979, Side 22
174
LÆKNABLAÐIÐ
Mynd 3. — Kalkþófi þrengir innri háls-
slagæð við deilistað. Stór skuggaefnis-
flekkur í sári í þófanum, þar sem örin
bendir.
Allt þetta gaf glögga vísbendingu um, að
blóðþurrðin ein ætti hér ekki alla sök og
skaut styrkum stoðum undir þá skoðun, að
rek (embolia) frá segum eða „sárum“ á
fitubrisi (atheromatous plaque) í hálsglag-
æðum væri jafnvel algengari orsök slags
en sú blóðþurrð, er þrengsli eða lokun
þeirri ylli.G 12 20 27
Jafnframt tóku læknar að gera sér aukna
grein fyrir þýðingu nákvæmra athugana á
útliti fitubrisa í slagæðum svo sem þau
birtast á röntgenmyndum, þ.e. hvort yfir-
borð þeirra sé slétt eða óreglulegt og
hrjúft, sem bent gæti til þess, að á þeim
væri sár, drep eða segamyndanir.2 8 10 12 21
23 24
Höfuðtilgangurinn með þessari saman-
tekt er að gera grein fyrir þeim skurðað-
gerðum til hreinsunar á innri hálsslagæð
(endarterectomia a.carotis internae), sem
framkvæmdar hafa verið á Landspítalanum
fram til ársloka 1977. Getið verður ein-
kenna sjúklinga fyrir aðgerð, greint frá að-
ferðum við aðgerðirnar, rætt um skurð-
dauða og fylgikvilla og nefndar helstu að-
ferðir, sem beitt var til varnar heila-
skemmdum í aðgerð.
Þá verður getið annarra einkenna sjúk-
linganna um hjarta og/eða æðasjúkdóma,
lýst niðurstöðum röntgenrannsókna og gerð
grein fyrir afdrifum súklinganna.
Áður en lengra er haldið, verður þó ekki
hjá því komist að gera grein fyrir þeirri
flokkun blóðrásartruflana í heila, sem hér
er notuð.
Venja er að flokka blóðrásartruflanir í
heila, annars vegar eftir því í hvaða blóð-
streymissvæðum hans þær verða, en hins
vegar eftir því, hve langvinnum eihkenn-
um þær valda og hver varanleg mein þær
skilja eftir sig.
Þar sem upplýsingar um hina fyrrnefndu
flokkun er að finna í handbókum um tauga-
sjúkdóma, verður ekki nánar um hana
fjallað hér. Með því hins vegar að talsverðs
ósamræmis virðist gæta hjá hinum ýmsu
höfundum varðandi síðarnefndu flokkun-
ina, er óhjákvæmilegt að skilgreina hana
nánar sem og þau nöfn, er hér verða notuð.
Samkvæmt þeirri flokkun er greint á milli
þriggja tegunda slags.10
Skyndislag (Transient ischemic attack-
TIA) nefnist kast með skammæjum stað-
bundnum brottfallseinkennum frá heila,
sem standa yfirleitt í örfáar mínútur, en
mest í 24 klst. og hverfa síðan að fullu.
Skyndislag með ófullkomnum bata
(Transient ischemic attack with incomplete
recovery — TIA-IR) nefnast slík köst, ef
einkenni standa í einn eða fleiri daga og
skilja eftir sig merki um minni háttar vef-
ræna heilaskemmd.
Slag (Completed stroke — CS) nefnist
það, er truflun blóðrásar leiðir til verulegr-
ar og varanlegrar vefrænnar skemmdar á
heila með meðfylgjandi fötlunum.
AÐFERÐ OG EFNIVIÐUR
Um er að ræða 28 sjúklinga, sem gengust
undir aðgerð til innanhreinsunar á háls-
slagæðum. Af þeim voru 9 konur og 19
karlar. Voru konurnar á aldrinum 45—73
ára með meðalaldur 55,9 ár, en karlarnir á
aldrinum 41—73 ára með meðalaldur 60,4
ár. Meðalaldur allra sjúk’linganna (kvenna