Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.1979, Síða 24

Læknablaðið - 01.09.1979, Síða 24
176 LÆKNABLAÐIÐ Hjá 8 sjúklingum eru aðeins hálsslagæðar myndaðar og því ekki vitað um ástand annarra æða. Tafla V. sýnir tegundir að- gerða. Table V Operations Endarterectomy 30 Endarterectomy + Vein-patch 2 Endarterectomy + aneurismoraphy 1 Explorativ arteriotomy 1 Svo sem tafla V sýnir, var í einu tilfelli um að ræða æðagúl auk þrengsla á æðinni, og var hann lagfærður samtímis því, sem gerð var innanhreinsun á æðinni. í einu tilfelli reyndist vera um ranga greiningu að ræða, og var æðin því aðeins opnuð til athugunar en ekkert frekar að- hafst, þar sem engar sjúklegar breytingar fundust. Þrýstimæling var gerð við 21 aðgerð en við 13 aðgerðir var slík mæling ekki fram- kvæmd, þar sem mælitæki var þá ekki til eða reyndist ekki í lagi. Hliðarstreymi (shunt) var notað við 14 aðgerðir, en við 20 aðgerðir var það ekki notað. Yfirleitt var hliðarstreymi notað ef bak þrýstingur mældist <50 mm/Hg. Heparin var gefið við allar aðgerðirnar. Við fyrstu aðgerðirnar var þó gefinn lítill skammtur, en frá ársbyrjun 1973 var gefið: 10 þús. IE i.v. + 5 þús. IE intra-arterialt um leið og æðinni var lokað. Heparin-áhrif- unum var síðan eytt a.m.k. að hluta með protamin sulphati, þegar lokið var við að sauma saman æðaskurðinn. Við aðgerðirn- ar var yfirleitt farið í gegnum skurð, er fylgdi fremri rönd höfuðvendis (m.sterno- cleidomastoid), en í örfáum tilvikum var notaður skáskurður. Allar aðgerðimar voru gerðar í svæfingu með barkarslöngu. Table VI Complications of surgery Wound infections with rupture of a false anourysm (death) 1 Intracerebral hemorrhage (death) 1 Wound infection with false aneurysm (reoperation) 1 Wound infection with abscess 1 Wound —- hematoma 4 Transient neurological deficits 5 Transient cardiac arrest 2 Hypertensive crisis 1 Svo sem tafla VI sýnir, létust 2 sjúkhng- ar eftir aðgerð. Annar þessara sjúklinga fékk helftarlömun eftir aðgerð og lézt að tveimur dögum liðnum, án þess að komast til meðvitundar. Krufning leiddi í ljós blæðingu í temporo-parietal hluta hæ. heila- helmings. Hinn sjúklingurinn fékk ígerð í skurðsár ásamt æðagúl, sem brast og krafð- ist undirbindingar í innri hálsslagæð, og lézt hann þremur mánuðum eftir aðgerð. Allir hinir sjúklingarnir náðu sér að fullu af sínum fylgikvillum. Alkunna er, að kölkun í hálsæðum er aðeins dráttur í mynd hins almenna æðakölkunarsjúkdóms (atherosclerosis). Tafla VII sýnir yfirlit yfir helstu sjúkdóma í blóðrásarkerfi aðra en hálsæðaþrengsli, er til staðar voru fyrir aðgerð hjá þeim sjúklingum, sem hér er fjallað um. Table VII Incidence of Associated Cardiovascular Diseases Hypertension 14 (50%) Coronar sclerosis with angina and/or infarct 14 (50%) Peripheral vascular disease 11 (39,3%) Þá höfðu 3 sjúklinganna sykursýki. Ekki mun ágreiningur um, að háþrýst- ingur er einn af megináhættuþáttum æða- kölkunarsjúkdómsins. Svipað er að segja um reykingar, en af þeim 28 sjúklingum, sem hér er um fjallað, er vitað um 24 (85,7 %), sem reyktu. Um hina 4 fengust ekki upplýsingar varðandi reykingar. Alls höfðu 23 sjúklingar (82,1%) ein- kenni eins eða fleiri þeirra sjúkdóma, er um getur í töflu VII og er þetta ekki ólíkt niðurstöðum annarra.24 Um afdrif þessara 28 sjúklinga er það að segja, að af þeim eru 10 látnir, þar af tveir, sem létust vegna afleiðinga aðgerða. Dánarorsakir hinna 8 voru sem hér segir: Kransæðastífla með hjartadrepi 6. Krabba- mein í vélinda 1. Heilablæðing við aðgerð á heila í Bandaríkjunum (cryo-surgery) 1. Enginn dó úr slagi. Af þessum 8 sjúkling- um létust 2 þremur mánuðum eftir aðgerð, án þess að lát þeirra teldist á nokkurn hátt afleiðing aðgerðarinnar. Sá, sem lengst lifði, lézt 7 árum eftir aðgerð, en meðallífs- lengd eftir aðgerð var um 3 ár. Hjá þeim 18 sjúklingum, sem lifa, er
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.