Læknablaðið - 01.09.1979, Síða 62
200
LÆKNABLAÐIÐ
AÐALFUNDUR LÆKNAFÉLAGS REYKJAVÍKUR
í Domus Medica 14. og 28. marz 1979
Formaður L.R., Öm Smári Arnaldsson, setti
fundinn og skipaði fundarstjóra Þorvald Veigar
Guðmundsson.
Formaður flutti skýrslu stjórnar, sem lögð
var fram á fundinum ásamt reikningum félags-
ins.
Kristján Hannesson læknir lézt 17. október
1978. Fundarmenn vottuðu hinum látna kollega
virðingu sína með því að rísa úr sætum.
Á árinu greiddi 321 félagi fullt árgjald, en
46 greiddu hálft árgjald, þar af 32 nýkandidat,
ar, en 14 læknar voru hluta úr árinu starfandi
á félagssvæðinu. Gjaldfríir voru 25 læknar, sem
orðnir voru sjötugir, alls 392 starfandi félagar.
Aðalstjórn hélt 40 fundi á árinu. Fundir með
meðstjórn voru alls 10 og fundir með stjórn
L.l. alls 3. Samtals voru haldnir 6 almennir
fundir í félaginu.
Helztu mál, sem fjallað var um af hálfu
stjórnar félagsins á árinu voru þessi:
Unnið var að því að finna viðunandi lausn
á máli svokallaðrar neyöarvaktar í Reykjavík
milli kl. 08.00 og 17.00 virka daga. Þar sem
ríkjandi ástand í þeim efnum reyndist með öllu
óviðunandi, var leitað til sjúkrahúsanna, um
að taka vaktina að sér, þar til heimilislækna-
Þjónustan reyndist megnug þess að annast
hana. Varð niðurstaðan sú, að lyflækningadeild
Borgarspítalans tók þessa vakt að sér til
reynslu frá 1. október til áramóta. I janúar var
svo Borgarspítalanum veitt umboð til að semja
um þessa þjónustu beint við S.R.
í stjórninni var tekin upp á árinu umræða
um kvöld-, nætur- og helgidagavaktir í Reykja-
vík og nágrenni. Þau mál voru rædd á almenn-
um félagsfundi í október, en í framhaldi af því
sendi stjórn L.R. út dreifibréf til allra heilsu-
gæzlustöðva og væntanlegra heilsugæzlustöðva
á svæðinu og spurðist fyrir um þá vaktþjón-
ustu, sem þær veittu, og þá vaktþjónustu, sem
þær hugsuðu sér að veita í framtíðinni. Jafn-
framt var varpað fram þeim hugmyndum, að
sameiginleg næturvakt yrði fyrir allt höfuð-
borgarsvæðið, en kvöldvakt frá fleiri stöðum,
t.d. hverri heilsugæzlustöð. Ekki hafa enn
borizt svör frá öllum aðilum.
Augnlœknaþjónusta var nokkuð til urnræðu
og þá fyrst og fremst bráð augnlæknaþjónusta
milli kl. 08.00 og 17.00. Stjórnin reyndi að finna
lausn á þessu máli og komst svo langt, að stjórn
Augnlæknafélagsins taldi, að hægt væri að fá
augnlækna til að annast bakvaktarþjónustu á
þessum tima, en taldi, að greiðsla Þyrfti að
koma fyrir þá þjónustu. Haft var samband við
Tryggingaráð og sjúkrasamlög á svæðinu. Voru
svör Tryggingaráðs neikvæð, og hefur því ekki
fundist lausn á þessu máli enn.
1 seinasta sérfrœöingasamningi L.R. við SR
og TR var í grein 3 svofellt ákvæði:
„Sé læknisverk unnið á sjúkrahúsi, greiða
sjúkratryggingar það því aðeins eftir gjaldskrá,
að ákveðið sé með sérstökum samningi, með
hvaða kjörum læknirinn megi vinna verkið
þar.“
Engir slíkir samningar voru til fyrir Land-
spitalann eða Borgarspítalann. Af þeim sökum
lagðist þessi þjónusta niður um tíma, en nú
mun vera búið að ganga frá samningum milli
lækna Landspítalans og stjórnarnefndar ríkis-
spítalanna um þessi mál.
Allmiklar deilur urðu á árinu um grein 10 í
sérfrœöingasamningmim, sem fjallar um sam-
eiginlegt eftirlit L.R. og T.R. með beitingu
gjaldskrárinnar. Almennur fundur var haldinn
í félaginu um þetta mál þann 25. október, skv.
ósk 30 lækna. Skiptust menn þar í tvo hópa um
álit á greininni, en samþykkt var með nokkrum
meirihluta að vinna að afnámi greinarinnar,
m.a. á þeim forsendum, að hún brjóti í bága
við Codex Ethicus. Stjórnir L.R. og L.l. visuðu
málinu til Siðanefndar, og hefur hún það enn
til umfjöllunar.
Launasamningar lækna renna út 31 .okt. n.k.,
og hefur stjórn L.R. þegar haldið fundi með
launanefndum félagsins og hefur sú stefna ver-
ið tekin, að ljúka, svo sem við verði komið,
stefnumörkun í launamálum fyrir vorið, þar
sem sumarið verði ódrjúgt til slikra verka.
FrœÖslunefnd hélt á árinu mánaðarlega
fundi, sem einkum voru ætlaðir heimilislækn-
um. Aðsókn að þeim fundum hefur ekki verið
sem skyldi. Auk þess var haldið námskeið í
barnasjúkdómum dagana 13.—16. sept. og
symposium um cancer mammae 21. janúar 1979.
Ráðgerð er ráðstefna um atvinnuheilbrigðis-
mál í sept. n.k.
Á árinu var tekið í notkun orlofsliús á vegum
læknafélaganna í landi Brekku i Biskupstung-
um. Var það tekið í notkun um miðjan júlí og
leigt út viku í senn og hver vika nýtt fram í
miðjan nóvember.
Gjaldkeri lagði fram reikninga félagsins fyrir
árið 1978 og skýrði þá. Nokkrar umræður urðu
um reikningana, en þeir voru siðan samþykktir
samhljóða.
Þá lagði gjaldkeri fram fjárliagsáœtlun fyrir
árið 1979 og lagði til, að árgjald fyrir árið 1979
og yrði kr. 60.000. Var það samþykkt samhljóða
og athugasemdalaust. Að auki er árgjald til L.í.
60.000.
Sigmundur Magnússon lagði fram reikninga
Domus Medica til kynningar. Hagnaður af,
rekstri veitingasalarins var kr. 6.688.921, en
nettóhagnaður af Domus Medica kr. 3.108.988.