Læknablaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 82
216
LÆKNABLAÐIÐ
skylt að skila kröfugerðum um leið og
samningum er sagt upp.
Bandalag háskólamanna hefur sagt upp
aðalkjarasamningi sínum frá og með 1.
nóv. n.k. Sérkjarasamningur aðildarfélaga
B.H.M. eru lausir frá sama tíma. í kröfu-
gerð B.H.M. er gerð krafa um, að tveir
launaflokkar bætist við núverandi launa-
stiga. Læknafélag íslands hefur sett fram
tillögur að nýjum sérkjarasamningi (fyrir
fastráðna lækna). Helztu breytingar frá
gildandi samningi eru þessar:
Heilsugæzlulæknar færist úr launaflokki
110 í 112, aðstoðaryfirlæknar úr 112 í 114,
fryggiugalæknir úr 112 í 116, yfirlæknar
og forstöðumenn úr 116 í 119, landlæknir
úr 121 í 123. Gerð er krafa um, að greiðsla
á fargjöldum og dvalarkostnaði þeirra, sem
í neyðartilvikum fara í héruð skv. beiðni
landlæknis, skuli miðast við 3 mánuði, en
ekki 4 vikur, eins og nú er. Sett er fram
krafa um, að heimilt sé að taka frí í stað
greiðslu fyrir gæzluvakt. Að lokum er gerð
krafa um, að þeir læknar, sem sitji í H1
heilsugæzlustöð, eigi rétt á ársleyfi á laun-
um.
ÝMIS MÁL
Yfirlæknir leitaði álits og stuðnings hjá
stjórn L.í. vegna bréfs, sem hann hafði
fengið frá stjórn spítala þess, er hann starf-
aði við. Stjórn L.í. taldi, að spítalastjórn
hefði gert yfirlækninum rangt til og skrif-
aði bréf þar að lútandi. Þar sem sæzt var
á málið, varð ekki um frekari aðgerðir að
ræða.
Aðstoðarlæknir við sjúkrahús var látinn
hætta störfum fyrirvaralaust og taldi, að
hér væri um að ræða ólögmæta uppsögn.
Félag ungra lækna og svæðisfélag viðkom-
andi læknis kröfðust þess, að uppsögnin
væri tekin til baka, og var það álit stjórn-
ar L.Í., að hér væri um réttmæta kröfu að
ræða. Spítalastjórnin afgreiddi málið á
þann hátt, sem læknirinn sætti sig við, og
töldu stjórn L.í. og svæðisfélag, að ekki
væri ástæða til frekari aðgerða.
Læknir hætti störfum á sjúkrahúsi eftir
alllangt veikindaskeið, en taldi eftir á, að
hann hefði verið neyddur til þess að segja
upp. Að beiðni læknisins kannaði stjórn
L.í. málið og taldi, að eðlilegra hefði verið,
að læknirinn fengi veikindafrí. Málinu
lauk með samkomulagi aðila, sem gert var
með vitund stjórnar L.í.
Tveir læknar sendu stjórn L.í. umkvört-
un vegna ummæla í fjölmiðlum, þar sem
þeir töldu, að læknir og samstarfsmaður
hans hefðu gefið rangar upplýsingar um
tiltekna læknisfræðilega aðferð og jafn-
framt viðhaft ummæli um kollega, sem
ekki væru í samræmi við siðareglur lækna.
Mál þetta var rætt af stjórn og rætt við
málsaðila sitt í hvoru lagi og sameiginlega.
Gerð var bókun, þar sem fallizt var að
nokkru leyti á þessar umkvartanir, en að-
ilai urðu sammála um, að þess yrði betur
gætt í framtíðinni, að fjölmiðlar væru ekki
vetvangur fyrir innbyrðis deilur lækna.
Stjórnin hefur haft til umfjöllunar er-
indi tveggja sérfræðinga vegna uppsagnar
þeirra úr störfum við sjúkrahús.
í öðru tilvikinu var sérstaklega óskað
álits á því, hvort félagslegur eða lagalegur
í éttur hefði verið brotinn á viðkomandi
lækni. Stjórnin komst að þeirri niðurstöðu,
að svo hefði ekki verið, en gerði athuga-
semdir við afgreiðslu spítalastjórnar. í
tengslum við þetta mál var samþykkt á
aðalfundi tillaga um að umsagnar stjórnar
L.í. yiði jafnan leitað áður en ákvörðun
yrði tekin um uppsögn læknis. Samkvæmt
bréfi stjórnarnefndar Ríkisspítalanna hefir
hún fallist á þetta stjórnarmið.
í hinu erindinu var óskað stuðnings L.í.
við, að ákvörðun spítalastjórnar yrði
bieytt. Stjórn L.í. hefur í tvígang óskað
eftir að fá upplýst, hverjar hafi verið á-
stæður uppsagnar. Endanlegt svar spítala-
stjóinar liggur ekki fyrir en stjórnin mun
reyna að afgreiða málið fyrir aðalfund.
í fiamhaldi af umræðum um aukna þátt-
töku íslenzkra lækna í fræðslunámskeiðum
á Norðurlöndum fékk prófessor Povl Riis
því framgengt, að Novo-sjóðurinn í Dan-
möiku hefur auglýst 4 ferðastyrki til ís-
lenzkra lækna, sbr. auglýsingu í Lækna-
blaðinu (Lbl. 2. tbl. 1979).
Á sl. sumri barst Læknafélagi íslands
boð frá Læknafelag Fþroya um þátttöku
íslenzkra lækna í námskeiðum í Þórshöfn.
Tveir læknar tilkynntu þátttöku í öðru
námskeiðinu, en þátttaka féll niður vegna
samgönguerfiðleika.
Fæieyingar hafa nú aftur sent boð um
þátttöku í námskeiði í ágúst, og er það von