Læknablaðið - 15.08.1994, Qupperneq 52
256
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og landlækni
Lyfjamál 31
Histamínblokkarar í
lausasölu
Eins og fram hefur komið og
kynnt var í síðasta dálki (Lyfja-
mál 30) var heimiluð lausasala á
þremur histamínblokkurum frá
og með l.júlí s.l. Um er að ræða
lyfin címetidín, hámark í 200mg
styrkleika (Címetidín, Taga-
met), ranitidín, hámark í 150mg
styrkleika (Asýran, Gastran,
Ranex, Zantac) (mest má selja
50 töflur af þessum lyfjum
handa einstaklingi ) og famóti-
dín, hámark í 20mg styrkleika
(Famex, Pepcidin) (mest má
selja 30 töflur af þessu lyfi
handa einstaklingi). Einnig var
veitt heimild til að selja súkral-
fat í hámarksstyrkleika lg í
skammti (Antepsin, Múkal), en
án takmörkunar á heildar-
magni.
Víða um lönd er verið að
ræða um að heimila lausasölu á
histamínblokkurum. Nýlega
var veitt þannig heimild í Eng-
landi og undanfarin tvö ár hefur
mátt selja címetidín án lyfseðils
í Danmörku. Reynslan þar í
landi hefur verið góð og hefur
hvorki orðið vart við aukningu á
tíðni aukaverkana vegna lyfsins
né vandamála vegna rangrar
meðferðar eða að sjúkdóms-
greiningar hafi dregist vegna
þess.
í samráði við lyfjafræðinga og
sérfræðinga í meltingarsjúk-
dómum er unnið að gerð upp-
lýsinga fyrir starfsfólk apóteka
um meðferð sársjúkdóms og
hvernig best verði staðið að
upplýsinga- og ráðgjöf til al-
mennings varðandi lausasölu
áðurnefndra lyfja. Þessar leið-
beiningar verða væntanlega
birtar í næsta tölublaði Lækna-
blaðsins og jafnframt sendar í
dreifibréfi til apóteka.
Áletranir og/eða upplýsingar
á fylgiseðli, sem afhenda skal
með lyfjunum eru sem hér segir:
Címetidín, 200mg: Lyf við
maga- og skeifugarnarsári og
fyrirbyggjandi gegn slíkum sár-
um. Skammtar handa fullorðn-
um: Fjórar töflur fyrir svefn eða
tvær töflur tvisvar á dag. Með-
ferð skal standa í að minnsta
kosti fjórar vikur, þótt einkenni
hverfi fyrr. Fyrírbyggjandi með-
ferð: Tvær töflur fyrir svefn.
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Varúð: Barnshafandi konur og
konur með barn á brjósti eiga
ekki að nota lyfið nema að
læknisráði.
Ranitidín, 150mg: Lyf við
maga- og skeifugarnarsári og
fyrirbyggjandi gegn slíkum sár-
um. Skammtar handa fullorðn-
um: Tvær töflur fyrir svefn eða
ein tafla tvisvar á dag. Meðferð
skal standa í að minnsta kosti
fjórar vikur, þótt einkenni
hverfi fyrr. Fyrirbyggjandi með-
ferð: Ein tafla fyrir svefn. Lyfið
er ekki ætlað börnum. Varúð:
Barnshafandi konur og konur
með barn á brjósti eiga ekki að
nota lyfið nema að læknisráði.
Famótidín, 20mg: Lyf við
maga- og skeifugarnarsári og
fyrirbyggjandi gegn slíkum sár-
um. Skammtar handa fullorðn-
um: Ein tafla tvisvar á dag eða
tvær töflur fyrir svefn. Fyrir-
byggjandi meðferð: Ein tafla
fyrir svefn. Lyfið er ekki ætlað
börnum. Varúð: Barnshafandi
konur og konur með barn á
brjósti eiga ekki að nota lyfið
nema að læknisráði.
Súkralfat, 500mg í skammti:
Lyf við maga- og skeifugarnar-
sári og fyrirbyggjandi gegn slík-
um sárum. Skammtar handa
fullorðnum: Fjórar töflur á
morgnana og fyrir svefn eða
tvær töflur þrisvar til fjórum
sinnum á dag, einni klst. fyrir
mat og fyrir svefn. Meðferð skal
standa í að minnsta kosti fjórar
til sex vikur. Fyrirbyggjandi
meðferð: Tvær töflur tvisvar á
dag. Athugið: Ef sýrubindandi
lyf eru einnig notuð, verður að
taka þau inn minnst hálfri klst.
fyrir eða eftir töku þessa lyfs.
Varúð: Sjúklingar með nýrna-
bilun eiga ekki að nota lyfið.
Súkralfat, lg í skammti: Lyf
við maga- og skeifugarnarsári
og fyrirbyggjandi gegn slíkum
sárum. Skammtar handa full-
orðnum: Tvær töflur á morgn-
ana og fyrir svefn eða ein tafla
þrisvar til fjórum sinnum á dag,
einni klst. fyrir mat og fyrir
svefn. Meðferð skal standa í að
minnsta kosti fjórar til sex vik-
ur. Fyrirbyggjandi meðferð: Ein
tafla tvisvar á dag. Athugið: Ef
sýrubindandi lyf eru einnig not-
uð, verður að taka þau inn
minnst hálfri klst. fyrir eða eftir
töku þessa lyfs. Varúð: Sjúk-
lingar með nýrnabilun eiga ekki
að nota lyfið.
Súkralfat, mixtúra, 200mg/
ml: Lyf við maga- og skeifu-
garnarsári og fyrirbyggjandi
gegn slíkum sárum. Skammtar
handa fullorðnum: lOml (=2g)
á morgnana og fyrir svefn eða
5ml (=lg) þrisvar til fjórum
sinnum á dag, einni klst. fyrir
mat og fyrir svefn. Meðferð skal
standa í fjórar til sex vikur.
Fyrirbyggjandi meðferð: 5ml
(=lg) tvisvar á dag. Athugið: Ef
sýrubindandi lyf eru einnig not-
uð, verður að taka þau inn
minnst hálfri klst. fyrir eða eftir
töku þessa lyfs. Lyfið er ekki
ætlað börnum. Varúð: Sjúkling-
ar með nýrnabilun eiga ekki að
nota lyfið.