Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1995, Síða 15

Læknablaðið - 15.10.1995, Síða 15
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 709 unarinnar á sjúkdómshugtakinu (6), sem og nýtísku heildarhyggju um manninn, að nánast sérhver röskun (líkamleg, sálræn eða félags- leg) á aðlögun einstaklingsins að umhverfi sínu geti talist sjúkleg. d) Þverrandi liagvaxtartrú: Það er ekkert nýtt að fram komi lyf eða tækni sem, að minnsta kosti í byrjun, er ofviða greiðslugetu almenn- ings og jafnvel hins opinbera. Munurinn er sá að til skamms tíma kippti fólk sér ekki svo mjög upp við þá staðreynd; treyst var á að aukinn hagvöxtur myndi fyrr eða síðar ryðja slíkum hindrunum úr vegi. Trúin á óheftan hagvöxt og linnulausar framfarir á efnahags- sviðinu hefur beðið nokkurn hnekki á undan- förnum árum og á sama tíma hefur vaknað uggur um að til kunni að vera óyfirstíganleg kostnaðarhöft. e) Breytt aldursdreifing í samfélaginu: Sé í raun hægt að tala um einhverja hlutfallslega mannfjölgun á Vesturlöndum um þessar mundir þá á hún sér helst stað í röðum eldri borgara. í Þýskalandi er því spáð að hlutfall fólks á sjötugsaldri og þar yfir af heildaríbúa- fjölda komi til með að aukast úr ríflega 20% árið 1990 í rúm 35% árið 2030 og frá öðrum nálægum löndum er svipaða sögu að segja (7). Þess má vænta að yngri kynslóðum þyki þungt undir slíku að búa og eru ástæðurnar auðsæjar; Meðallækniskostnaður öldunga er allt að átta sinnum hærri en þeirra sem yngri eru; þeir þarfnast tæps helmings alls legurýmis og eru skráðir fyrir um þriðjungi legudaga á sjúkra- stofnunum (8). í Bandaríkjunum kveða spá- dómar mannfjöldafræðinga á um að árið 2040 hafi 21% íbúanna náð 65 ára aldri og svelgi 45% allra útgjalda til heilbrigðismála (á móti ríflega 30% nú) (9). í Svíþjóð er gert ráð fyrir að slík útgjöld aukist um 10% á þessum áratug eingöngu vegna breyttrar aldursdreifingar (10) . Á íslandi er sjálfvirkur útgjaldavöxtur til heilbrigðis- og tryggingamála vegna öldrunar þjóðarinnar talinn nema um milljarði á ári (sem er fjórfalt hærri upphæð en kostnaðar- aukning vegna ástæðna a)-c) hér að framan) (11) — og þannig mætti lengi telja. Þrátt fyrir þær ástæður sem hér hafa verið nefndar eru þeir enn til sem telja forgangsröð- un gervivandamál; aðeins þurfi að nýta betur það fjármagn sem fyrir hendi sé með gæða- stjórnun í heilbrigðiskerfinu, markvissari stefnumótun og hagræðingu. Slíkar efasemd- arraddir má að því leyti til sanns vegar færa að í Bandaríkjunum gleypa heilbrigðismál um 14% þjóðarframleiðslunnar, samanborið við til dæmis 8-9% í Frakklandi, Þýskalandi, Bret- landi, Japan og á íslandi. Þannig kann kana- díski þingmaðurinn Bernard Sanders að hafa á réttu að standa er hann bendir félögum sínum sunnan landamæranna á að þeim væri nær að reyna að tryggja sömu skilvirkni í heilbrigðis- málum sínum og Kanadamenn hafa náð, í stað þess að leggja kollhúfur yfir einhverjum for- gangskerfum (12). Ég er þó efins um að sömu rök hríni á mörgum öðrum en Bandaríkja- mönnum. Það eru takmörk fyrir því hversu oft Karþagó verður lögð í rúst og af samtölum við forráðamenn heilbrigðismála á íslandi má ráða að þeir telji allt tal um frekari hagræðingu hér nánast goðgá. Af þeim legg sé ekki meira að skafa. Svo fjarri fer að umræðan um forgangsröðun varði í besta falli framtíðar- og í því versta gervivandamál að slík röðun á sér nú þegar stað í ríkum mæli. Ég er þá ekki einungis að vísa til þeirrar tegundar röðunar sem ávallt hefur átt sér stað í heilbrigðisþjónustu og bygg- ist meðal annars á því að jafna takmörkuðum tíma heilbrigðisstarfsfólks niður á sjúklinga, heldur til þeirrar augljósu skömmtunar sem stjórnvöld hafa framkvæmt á undanförnum ár- um með flötum niðurskurði — er aftur hefur haft í för með sér lengingu biðlista, lokun deilda og svo framvegis. Nú er það svo að flatur niðurskurður er í eðli sínu mjög óskynsamleg aðgerð. Engum heil- vita flugumsjónarmanni dytti í hug að fara fram á það, ef flugvél væri ofhlaðin fyrir brott- för, að farþegarnir skæru allir af sér litlu tána til að létta vélina nógu mikið samanlagt. Hann myndi að sjálfsögðu reyna að finna þann sem minnsta þörf eða rétt ætti á flutningi og fara fram á að sá sæti eftir. Forsvarsmenn heilbrigð- isstofnana bregðast ekki heldur við flötum nið- urskurði með misskilinni jafnaðarmennsku af þessu tagi. Þeir koma sér niður á, hver í sínu horni, hvernig hinum takmörkuðu fjármunum verði best varið. En þeir taka slíkar ákvarðanir ekki með glöðu geði, meðal annars vegna þess að þeir telja að þær séu í raun og veru ekki í þeirra verkahring. Þannig hafa breskir læknar rekið upp síendurtekin ramakvein á undan- förnum árum vegna þess að þeir una ekki því nýja hlutverki sínu að vera orðnir einhvers konar hliðverðir eða Lykla-Pétrar heilbrigðis- kerfisins (13). Á íslandi hafa sams konar hljóð

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.