Læknablaðið - 15.10.1995, Side 61
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
751
íðorðasafn
Örverur og sýklar
Sýkill er örvera (microbe,
micro-organism), örsmá lífvera
sem sýkt getur tilteknar lifandi
verur og valdið sjúklegum
breytingum í vefjum þeirra.
Helstu flokkar sýkla eru bakter-
íur (bacteria), sveppir (fungi)
og frumdýr (protozoa). Þó að
heitið microbe hafi eingöngu
verið ætlað þeim lífverum sem
sjást í smásjá, þá fjallar sýkla-
fræðin einnig um veirur (viru-
ses), sem eru of smáar til að
sjást í ljóssmásjá, og orma (hel-
minths), sem vel sjást með ber-
um augum.
Sýklar og sníklar
Rétt er að ítreka það að sýkl-
ar eru allar þær örverur sem
geta sýkt og valdið sjúklegum
breytingum hjá öðrum lífver-
um. Heitið er ekki takmarkað
við bakteríur. Rotverur (sap-
hrophytes) nefnast þær örverur
sem lifa í rotnandi lífrænu efni,
en sníklar (parasites) þær sem
lifa á öðrum lifandi verum og fá
næringu frá þeim. Merking heit-
isins sníkill í læknisfræðilegu
samhengi er þó núorðið gjarnan
þrengri og vísar þá eingöngu í
þau frumdýr og orma, sem sýkja
menn. Mikilvægur flokkur ör-
vera (commensal micro-orga-
nisms) lifir hins vegar á mannin-
um án þess að valda sjúkdómi
eða sjúklegum breytingum. Þær
mætti nú kalla gistiverur. Með
hljóðlíkingu við heitið sníkill
gæti ^istivera einnig heitið gist-
ili. Ymsar gistiverur valda þó
sjúklegum breytingum þegar
sýklavarnir líkamans bila eða
þegar þær komast inn í vefi
gegnum rofið yfirborð. Slíkar
verur nefnir Iðorðasafnið tæki-
færissýkla.
lækna 70
Sýklaheiti
Heiti ýmissa sýkla hafa verið
þýdd á íslensku og hljóma dá-
vel. Nefna má keðjuhnettlu
fyrir Streptococcus, klasa-
hnettlu fyrir Staphylococcus,
bogsýkil fyrir Campylobacter,
snældugeril fyrir Clostridium og
veiru fyrir virus. Flest íslensku
sýklaheitin eiga þó erfitt upp-
dráttar. Sum sýnast hjákátleg,
svo sem blóðfíkill fyrir Hemo-
philus og iðrakeðjusýkill fyrir
Enterococcus, en önnur óhæfi-
lega stirðleg, svo sem lungna-
bólgustafsýkill fyrir Klebsiella
pneumoniae. Enn fremur má
segja að nákvæmni skorti, þegar
almennt lýsandi heiti kemur í
stað fræðilegs nafns sem á að
vera einhlýtt, til dæmis lungna-
hnettla, eða lungnabólgubakt-
ería fyrir pneumococcus.
Heitið bacterium (fleirtala
bacteria) er myndað af gríska
orðinu baktron sem merkir staf-
ur. íðorðasafnið gefur íslensku
heitin baktería, sem er kven-
kynsorð, og gerill, sem er karl-
kynsorð. Heitið gerill vísar til
þess að flestar bakteríur geta
gerjað, sundrað vissum lífræn-
um efnasamböndum og breytt
þeim í einfaldari efni. Gerjunar-
hæfni baktería er nú notuð við
bakteríurannsóknir til að að-
greina tegundir þeirra. Gerill er
þó gagnslítið heiti annars staðar
en á rannsókastofum, enda nota
flestir læknar nú heitið baktería
í daglegu starfi.
Sýklar eru margir og tegund-
um þeirra virðist stöðugt fjölga.
Stöðugt er unnið að grunnrann-
sóknum á sýklum og sú vitn-
eskja sem fæst leiðir stundum til
þess að viðtekin flokkun breyt-
ist eða að skipta verður um nöfn
á ákveðnum tegundum. Nægir
að nefna bakteríuna Helico-
bacter, sem fyrir skömmu hét
Campylobacter og þar áður
Vibrio. Heiti sýkla eiga sér
margvíslegan uppruna, oft eru
þau dregin af nöfnum vísinda-
manna (Salmonella, Escher-
ichia, Klebsiella, Neisseria,
Nocardia), stundum af sérstöku
útliti (Streptococcus, Dip-
lococcus, Clostridium, Hel-
icobacter, Corynebacterium,
Spirochaeta), en einnig af stað-
setningu sýkingar í líkamanum
(Pneumococcus), sjúklingahópi
sem hefur veikst af þeirra völd-
um (Legionella), búsetu í lík-
amanum (Enterococcus) eða
jafnvel af hegðun á smásjárgleri
(Vibrio). Mannanöfnin er óger-
legt að þýða á íslensku og einnig
mörg hinna, svo að vel sé.
Umritun sýklaheita
I pistli í Fréttabréfi lækna í
ágúst 1990 fjallaði Karl Kristins-
son læknir um nafngiftir í sýkla-
fræði. Þar kemur fram að ein-
ungis örfá hinna íslensku bakt-
eríuheita séu í notkun og segir
Karl beinum orðum; Óþarfi er
að íslenska öll bakteríunöfn.
Undirritaður vill nú stíga skrefi
lengra og leggur til að bakteríu-
heiti verði ekki lengur þýdd á
íslensku heldur umrituð nokk-
urn veginn hljóðrétt eins og
heiti lyfja og lyfjaefna. Sem
dæmi má taka: stafýlókokkur,
streptókokkur, salmónella,
eserikía, klebsíella, Iistería og
hemófílus. Æskilegt væri að
fenginn yrði vinnuhópur til að
ganga frá samræmdum reglum.
Jóhann Heiðar Jóhannsson