Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1995, Síða 11

Læknablaðið - 15.11.1995, Síða 11
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 775 Röntgenmynd' af hönd Berthu Röntgen tekin 22. desember 1895. (Eftirmáli) Framanskráð grein er rituð af þeint rnanni, sem sjálfsagt bezt allra íslendinga hefur vit á þessu efni, enda hefur hann, að því er hjerlend blöð skýra frá, þessa dagana verið sjálfur að fást við tilraunir með Röntgens-geisla á fjöl- listaskólanum** hjer í Khöfn. En síðan greinin var skrifuð hefur ýmislegt birzt um tilraunir með þessa geisla í öðrum löndum, því um allan hinn menntaða heim eru menn nú sem óðast að fást við slíkar tilraunir, og flytja blöðin nálega daglega nýjar og nýjar fregnir um árangurinn af þeirn. Er prófessor Röntgen þegar orðinn heimsfrægur fyrir uppgötvan sína, enda telja menn hana meðal hinna þýðingarmestu á þess- ari öld. Þykir því hlýða að birta hjer bæði mynd ** Den Polytekniske Læreanstalt, sem síðar nefndist Dan- marks Tekniske Höjskole, var á þessum tíma nefndur Fjöl- listaskóli á íslensku. af honum sjálfum og skýra lítið eitt frá því, sem blöðin hafa þegar flutt um árangurinn af til- raunum með hina ósýnilegu geisla hans. Hjer í Khöfn hafa tilraunirnar meðal annars sýnt, að taka má mynd af hlutum úr málmi, sem liggja í luktum trjestokk eða undir 600 bls. þykkri bók, því geislarnir fara bæði í gegnum trjeð og bókina. í öðrum löndum hafa tilraun- irnar einkum stefnt að því, að nota uppgötvun þessa í þarfir læknisfræðinnar. A Þýzkalandi hafa menn þannig tekið mynd af mannshönd, sem stungið var inn í trjestokk, og þykir oss vel til fallið að birta hjer eina slíka mynd. Má af henni sjá, að geislarnir hafa farið bæði í gegn- um stokkinn og vöðva handarinnar, því holdið sjest að eins eins og í þoku; aptur á móti sjest beinagrind handarinnar greinilega, en þó ekki nærri eins vel og gullhringurinn á græðifingrin- um. Sýnir þetta, að geislunum hefur veitt erfið- ara að komast gegn um gullið en í gegn um beinin. I Vínarborg hafa frægir læknar rann- sakað beinbrot, vanskapaðan fót á stúlku og fundið kúlur í holdi manna og steinmyndanir í blöðrum með Röntgens-geislum, og hafa því getað hagað holdskurðum sínum og lækningar- aðferð eptir því. f Berlín eru herlæknar nú og í óða önn að gera tilraunir með að finna kúlu- brot og þess háttar í holdi manna á þennan hátt og tekst vel. — í Lundúnum kom nýlega sjó- maður einn á sjúkrahús, og þjáðist hann af ákaflegum kvölum í bakinu, en læknunum var ekki ljóst, af hverju það gæti stafað. Var þá gripið til Röntgens-geisla og tekin mynd af baki mannsins. Kom þá í ljós, að hnífsblað sat á einum stað í bakinu á milli tveggja hryggjar- liða, og hafði það setið þar í mörg ár. Var maðurinn nú holdskorinn og blaðinu kippt burt, og fjekk hann þá aptur heilsu sína. Margt fleira mætti segja um þýðingu þessarar upp- götvunar, ef rúmið leyfði, og þykir þó einsætt, að fæstum sje enn ljóst, hve margt gott megi af henni leiða, er mönnum lærist betur að nota þessa nýju og ósýnilegu furðugeisla. [Aths. við próförk: Nú kvað mönnum (prófessor Salvioni í Perugia á Ítalíu o.fl.) hafa tekizt, að gera geislana sýnilega, svo að sjá megi hluti í luktum ílátum, gegn um trje o.s.frv. — Menn fara bráðum að geta sjeð »í gegn um holt og hæðir og helli sinn«.] RITSTJ. (Valtýr Guðmundsson)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.