Læknablaðið - 15.12.1996, Page 12
840
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Table VI.Etiology of cirrhosis in Iceland 1971-1990. Number of patients
diagnosed in hospitals.
Aetiology 1971-75 1976-80 1981-85 1986-90 Total (%)
Alcohol 24 10 16 13 63 (44)
Chronic hepatitis 8 6 8 10 32 (23)
Cryptogen 5 3 6 6 20 (14)
Primary biliary 2 2 1 9 14 (10)
Secondary biliary 4 3 1 0 8 (6)
Hemochromatosis 1 0 1 0 2 (1)
Cardiac 1 1 0 0 2 (1)
Intestinal bypass 0 0 0 1 1 (1)
Total 45 25 33 39 142 (100)
mörk. Nánari sundurliðun á orsökum skorpu-
lifrar af öðrum orsökum en áfengi er sýnd í
töflu VI. Krónísk lifrarbólga er algengasta
greiningin (23%). Áhugavert er að af þeim 14
sjúklingum sem greindust með skorpulifur af
völdum sjálfsofnæmis gallvegabólgu (primary
biliary cirrhosis), greindust níu á árunum 1986-
1990. Skorpulifur af óþekktri orsök (crypto-
gen) er skráð fyrir 14% greininganna og breyt-
ist ekki á tímabilinu. Skorpulifur vegna stíflu í
gallvegum fækkar og þrjú tilfellanna eru vegna
meðfæddra galla.
Horfur: Aðferð 1: Á tímabilinu 1971-1980
fundust 49% sjúklinganna í þjóðskrá sex árum
eftir greiningu. Aðferð 2: Á árunum 1971-1990
var áfengisskorpulifur greind hjá 45 karlmönn-
um, en aðeins sjö dauðsföll eru skráð. Átján
konur voru greindar með áfengisskorpulifur,
en aðeins þrjú dauðsföll skráð. Þetta bendir til
þess að horfur séu mjög góðar fyrir sjúklinga af
báðum kynjum með áfengisskorpulifur. I
flokknum skorpulifur af öðrum orsökum er
staðan allt önnur. Greining á skorpulifur er
gerð hjá 20 karlmönnum á tímabilinu, en 22
eru skráðir látnir. Þetta er í skarpri andstöðu
við konurnar þar sem 59 eru greindar og 22
skráðar látnar.
Krufningarrannsókn: Á árunum 1971-1990
fundust óvænt 66 tilfelli af skorpulifur í venju-
legum krufningum og 32 í réttarkrufningum.
Tíðnin var 0,5% í venjulegum krufningum og
6,4% í réttarkrufningum. Tíðni á milljón íbúa
á ári er 31 á tímabilinu 1971-1980 og 40 á tíma-
bilinu 1981-1990. í þeim tilvikum þar sem
skorpulifur fannst óvænt við krufningu var hún
ekki skráð sem frumorsök dauða á dánarvott-
orði, þar sem dánarorsök var önnur hjá þeim
sjúklingum.
Áfengisneysla: Neyslan jókst um 130% eða
úr 2,1 lítra á ári á íbúa 15 ára og eldri á árunum
1951-1955, í 4,9 lítra á ári 1985-1990.
Umræða
Aðferðafræðileg vandamál af ýmsum toga
hafa sett svip sinn á rannsóknir á faraldsfræði
skorpulifrar. Rannsóknir á dánartíðni geta
skekkst vegna rangrar skráningar, vanmats á
öðrum áhrifavaldandi orsökum og vanskrán-
ingar áfengisskorpulifrar. I öllum rannsóknum
sem ná yfir löng tímabil þarf að glíma við
breyttar greiningarvenjur og rannsóknarað-
ferðir. í klínískum rannsóknum eru yfirleitt
einungis skráðar innlagnir á sjúkrahús, sem
ekki gefur mynd af raunverulegu nýgengi og
krufningarrannsóknir sýna aðeins lítinn hluta
af heildarmyndinni. í aðferðarfræði þeirrar
rannsóknar sem hér er kynnt þarf að glíma við
öll þessi vandamál, en í samþættri rannsókn á
dánartíðni, klínískri tíðni og niðurstöðum
krufninga gefst gott færi á að bera saman nið-
urstöður og finna þannig misræmi og villur.
Klínísk tíðni: Sjúkraskrár sjúkrahúsanna
þriggja og skráin yfir lifrarsýnin er sá efniviður
sem klínískt nýgengi áfengisskorpulifrar og
skorpulifrar af öðrum orsökum grundvallast á
og gefur það án efa nákvæmari upplýsingar
heldur en athugun á dánarvottorðum. Rann-
sóknin nær til allra Islendinga og samanborið
við mörg önnur lönd, er hér vel staðið að
skráningu og geymslu sjúkragagna. Vitað er að
áfengisskorpulifur er vanskráð á dánarvottorð-
um, en sjúkraskýrslur eru annars eðlis, enda er
sjúklingurinn tekinn til rannsóknar með tilliti
til orsaka og kom það yfirleitt vel fram í sjúkra-
skýrslum. Sextíu og þrír sjúklingar (44%) voru
greindir með áfengisskorpulifur og 79 (56%)
með skorpulifur af öðrum orsökum. Þar af
höfðu 42% nákvæma orsakagreiningu, en 14%
voru skráðir með óþekkta orsök. Algengasta
tegundin var krónísk lifrarbólga (23%) sem
samsvarar þeim flokki sem núorðið nefnist
sjálfsofnæmis lifrarbólga (autoimmune hepa-
titis). Aldurs- og kynjadreifing samræmist vel