Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.1996, Qupperneq 50

Læknablaðið - 15.12.1996, Qupperneq 50
874 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 Innantökur illar hrjá ... Læknafélag íslands á bágt. Paö hefur innantökur og virðist ekki getað læknað sig sjálft. Viðtal í síðasta Læknablaði við formann vorn vekur ekki vonir um að bati sé í nánd. Valda- mönnum LI virðist farið líkt og Finsen lækni og alþingismanni í Sjálfstæðu fólki, skrifa stöðugt uppá sömu mixtúrurnar og sjúklingnum hrakar. Það eru aðallega tveir kvillar sem hrjá félagið. Annað eru þverrandi áhrif lækna á fram- vindu heilbrigðismála en hitt eru þrálát átök milli sérgreina- lækna og heimilislækna. Þessi mál eru náskyld, eru hluti af sama heilkenninu, en það er ekki von um bata meðan sjúkdómsgreiningin er á huldu og yfirlæknir félagsins áttar sig ekki á „syndróminu“. Fleinn í holdi Vegna þess hve stjórnvöld hafa verið stefnulaus og hvernig læknanámið er uppbyggt hefur tilviljun ráðið mestu um það í hvaða sérnám ungir læknar fara. Þeir hafa engan stuðning haft af markaðri stefnu um það hverskonar lækna þjóðin þarfn- ast. Heilsugæslustöður eru lok- aðar en náðarfaðmur TR opinn. Afleiðingin er að hér eru margir sérgreinalæknar sem ekki fá pláss á sjúkrahúsum. Þeir hafa haslað sér völl í stofuvinnu þar sem starfsvettvangur þeirra er að hluta til sá sami og heimilis- lækna. Eftir því sem sérgreina- læknum fjölgar þynnist sérfræð- ingsvinnan út og hluti almennra lækninga eykst í störfum þeirra. Þessi staða kallar á hagsmuna- árekstra. Þetta er fleinninn í holdi LÍ. Öll stjórnun og þar með stýr- ing á utanspítalavinnu lækna er andstæð hagsmunum þessa læknahóps. Hann er í raun á móti heilsugæslunni enda í sam- keppni við hana og heilsugæslu- læknar sjá ofsjónum yfir ofvexti sérgreinaþjónustunnar því hún stendur heilsugæslunni fyrir þrifum. Það er í eðli sínu ofviða læknasamtökunum að ráða framúr þessu. Leikreglur lýðræðis Sverrir formaður notar lýð- ræðisrök fyrir því að heimilis- læknar eigi að beygja sig undir „ríkjandi meirihlutaskoðun" því þegar „ekki verður mæst á miðri leið og ágreiningur jafn- aður og þá hlýtur lögmál lýð- ræðisins að ráða.“ Hér er á ferð- inni grundvallar misskilningur á eðli lýðræðis. Hann byggist á þeirri staðreynd að það ríki ekki lýðræði í félagi þar sem sami minnihlutahópur er til þess dæmdur að vera alltaf í minni- hluta og er stöðugt kúgaður af sama meirihluta í málum þar sem hagsmunir og hugsjónir þessara tveggja hópa skarast. Mixtúrumenn láta það ekki við- gangast að heimilislæknir verði til dæmis formaður LI. Það myndi ógna stöðu þeirra. Með- an þetta ástand varir í LÍ eru heimilislæknar annarsflokks borgarar í stéttarfélagi sínu og það kallast ekki lýðræði. Þeim stendur til boða að beygja sig undir þetta eða þvingast úr fé- laginu ella. Þessu una þeir illa. Af þessum sökum er brýnt að koma þeim ágreiningsmálum út úr LI sem skilja að og munu skilja að þessa hópa. Það verður að vera sérgreinafélaganna að fást við þau, ella leiðir innan- meinið LI til dauða í óbreyttri mynd. Félag sem þannig er statt inn- an um sig getur ekki búist við að hafa mikið að segja öðrum sem að gagni kemur við stefnumörk- un og stjórnun heilbrigðismála. Að troða illsakir við hjúkrunar- fræðinga bætir ekki úr þessu eða að gera lítið úr þeim læknum sem fást við stjórnun í fullu starfi. Mixtúran A þessa veikleika félagsins horfa mixtúrumenn með blinda auganu, berja sér á brjóst og láta sem ekkert sé. Uppskriftin er á hreinu: „Heilsteypt stefna læknasamtakanna í skipulagi heilbrigðismála" er „afar þýð- ingarmikið grundvallaratriði". Tryggja skal „fagleg gæði, skil- virkt og aðgengilegt kerfi en um leið hámarkshagkvæmni og bestu nýtingu fjármuna.“ (Var einhver að nefna stýrða lækn- ingaþjónustu (managed care) ?) og um leið verður að „virða rétt- indi sjúklinga“ ... „til þess að velja sér lækni án skerðingar á tryggingarrétti“ og einnig verð- ur að „gæta jafnræðis meðal lækna“. Það getur verið að ein- hverjum þyki þetta bragðgott sull en þetta er gagnslaust og óvirkt stjórnunarmeðal. Virkn- in batnar ekki þó bætt sé aftan-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.