Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1996, Síða 52

Læknablaðið - 15.12.1996, Síða 52
876 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 íðorðasafn lækna 84 Blóðstorkusótt í síðasta pistli var stungið upp á því að fyrirbærið disseminated intravascular coagulation fengi íslenska heitið blóðstorkusótt. Um er að ræða blæðingaheil- kenni, sem stafar af ótímabærri og útbreiddri storknun blóðs víðs vegar um líkamann, oft í tengslum við sýkingu af völdum Gram-neikvæðra baktería. Fíbrín fellur út og myndar litla storkutappa sem festast í smáæðum, stífla þær og koma af stað vefjaskemmdum. Blóð- flögur og storkuþættir í blóðrás eyðast upp og blæðingar í húð, meltingarveg og heila geta orð- ið lífshættulegar. Ástandið er þó ekki bundið við sýkingar, það getur komið fram við vefja- skemmdir af ýmsu tagi, svo sem bruna, útbreidd illkynja æxli, alvarlega ofþornun, blóðsýr- ingu og fylgjulos. Orðið sótt hefur einkum verið notað um sjúkdóma af völdum sýkinga og getur því að nokkru leyti átt vel við hér. Gaman væri að heyra viðbrögð lækna við hugmynd- inni. Fibrosis Lengi hefur staðið til að taka latneska heitið fibrosis til skoð- unar. Það er þó hægar sagt en gert að taka til í eigin ranni, en fibrosis er meðal þeirra erlendu fræðiorða sem oftast er slett í vefjameinafræði. íðorðasafnið gefur upp íslensku þýðinguna netjuhersli, sem undirrituðum sýnist afleit, því að annars stað- ar kemur fram að netja er om- entum og hersli er sclerosis. Sú skýring er þó látin fylgja að fibrosis sé bandvefsaukning. Læknisfræðiorðabók Stedmans gefur þá skýringu að fibrosis sé bandvefsmyndun sem kemur fyrir við viðgerð og önnur vefja- viðbrögð, andstœtt við myndun þess bandvefjar sem er eðlilegur hluti líffœris eða vefjar. Þetta er í samræmi við útskýringu Guð- mundar Hannessonar í Islensk- um líffæraheitum: óeðlilegur bandvefsvöxtur í líffœri. Orð- hlutaskoðun leiðir í ljós að latn- eska heitið fibra var notað um þræði eða trefjar og að gríska viðskeytið -osis táknar ástand eða ferli. Til gamans má geta þess að íslensk orðabók Máls og menningar segir að þráður sé band, taug eða strengur og að trefja sé trosnaður þráður. Trefjun Við nýja þýðingu á Alþjóð- legu sjúkdómaskránni var tekin sú ákvörðun að fibrosis skyldi nefnast trefjun. Þetta hefur það í för með sér að orðhlutinn fibro- verður í flestum samsetn- ingum trefja-. Fibrocartilage (brjósk sem inniheldur trefjar) verður trefjabrjósk, fibrocyte (fruma sem myndar trefjar) verður trefjafruma, fibroma (æxli sem inniheldur trefjar) verður trefjaæxli, lýsingarorðið fibrosing verður trefjandi eða trefjamyndandi og sá vefur sem á ensku nefnist fibrous connec- tive tissue (trefjaður bandvefur) verður trefjabandvefur. Trefjablöðrusjúkdómur Meðan á þessum hugleiðing- um stendur rifjast upp heitið fibrocystic disease, sem annars vegar er notað um algengt sjúk- dómsfyrirbæri í brjóstum kvenna og hins vegar um með- fæddan efnaskiptasjúkdóm, sem kemur fram í útseytikirtl- um (glandulae exocrinae) og hét áður fibrosis cystica eða mucoviscidosis (ástand með seigu eða límkenndu slími). Fyrir síðarnefnda sjúkdóminn valdi Orðanefnd læknafélag- anna á sínum tíma heitið slím- seigjuvanþrif, sem ekki hefur náð neinum teljandi vinsældum og heitið slímseigjusjúkdómur, sem sett var í Alþjóðlegu sjúk- dómaskrána, virðist lítið skárra. Gríska heitið cystis er notað um afbrigðileg þekju- klcedd holrými í vefjum og líf- fœrum, sem ýmist hafa verið nefnd blöðrur eða belgir á ís- lensku. Undirritaður hefur einnig notað heitið belgmein þar sem því verður við komið. Með þetta í huga má búa til heit- in trefjablöðrusjúkdómur, sem nota má um meðfædda sjúk- dóminn, og blöðrutrefjun, sem nota má um brjóstasjúkdóminn. Fíbrín Þegar litið er í Iðorðasafnið, hefti F-G, kemur í ljós að á nokkrum stöðum hefur ekki verið nægilega vel greint á milli orðhlutanna fibro- og fibrino-. Fíbrín er trefjaefni sem mynd- ast við storknun blóðs. Ákveðið var að efninu skyldi ekki gefið nýtt íslenskt heiti heldur skyldi latneska heitið umritað til sam- ræmis við íslenskan framburð. Til samræmis við það ættu eftir- talin heiti að breytast: fibrino- cellular verði fíbrín- og frumu-, fibrinohemorrhagic verði fíbr- ín- og blóð-, fibrinous adhesion verði fíbrínsamvöxtur, fibrin- ous calculus verði fíbrínsteinn og fibrinous cataract verði fíbr- índrer. Rétt er síðan að breyta einnig íslenska heitinu fibrous adhesion, sem verði þá trefja- samvöxtur. Jóhann Heiðar Jóhannsson (netfang: johannhj@rsp.is)

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.