Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1996, Síða 58

Læknablaðið - 15.12.1996, Síða 58
882 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 lækna í sumar. Þá sátu á nokkr- um stöðum kandídatar og læknanemar fastir í héruðum, vegna þess að ekki hafði verið gætt að því í samningsgerð þeirra að setja inn grein um að samningar féllu úr gildi ef upp- sagnir kæmu til framkvæmda. Þessir aðilar voru undir veruleg- um neikvæðum þrýstingi frá heilsugæslulæknum. Reyndi FUL að styðja málstað ung- læknanna og tala máli þeirra hjá forsvarsmönnum heilsugæslu- lækna. Skýrsla fræðslunefndar FUL Formaður nefndarinnar sat í framhaldsmenntunarráði LÍ síðastliðinn vetur. Á fundum þess hafa staðlar fyrir fram- haldsnám í helstu sérgreinum að svæfingu undanskilinni verið ræddir og samþykktir. Staðlar þessir hafa áður verið kynntir fyrir unglæknum. Málið er nú til meðferðar í heilbrigðisráðu- neyti og verður afgreitt þaðan á næstunni. Ekki er ljóst hvenær vísir að sérnámi geti hafist í öðr- um greinum en heimilislækn- ingum sem þegar er hafið. Fyrirhugað námskeið deildar- lækna í janúar hefur einnig verið rætt og ákveðið að hafa það með svipuðu sniði og í fyrra. í vetur komu tveir Danir sem vildu okkur vel og héldu nám- skeið fyrir unglækna svo þeir gætu valið sér sérgrein á mark- vissari og fljótlegri hátt en áður hefur tíðkast á íslandi. Tókst vel til eins og lesa má í Lækna- blaðinu í grein eftir Helga Birg- isson, Hvernig á að velja sér sér- grein. Lbl 1996; 82: 342. Sigurður Þór Sigurðsson, formaður Helgi Birgisson Ársreikningur FUL Rekstur starfsemi félagsins var í járnum en stærstu kostnað- arliðirnir voru vegna erlendra samskipta og málareksturs hér heima. Frekari upplýsingar má fá hjá fráfarandi gjaldkera, Guðjóni Karlssyni. Lokaorð Á starfsárinu sem er að ljúka, fór sumt öðruvísi en við óskuð- um. Ákvæði um aðgengistak- markanir sitja sem fleinn í holdi. Meira hefði mátt sinna uppbyggingu gagnabanka um nám erlendis og ýmsu fleiru en tími vannst hreinlega ekki til slíks vegna meira aðkallandi mála. Enn eitt er það að því fór mjög fjarri að það tækist að virkja að nokkru marki hinn al- menna félagsmann í FUL - sem má vonandi aðeins skrifa á vinnuálag unglækna. í heild held ég samt að við getum verið mjög ánægð með það sem eftir situr eftir árið. Lánasjóðsmálið er í réttum far- vegi. Við unnum varnarsigur þegar taka átti af okkur kjara- réttindi á Ríkisspítulum í októ- ber 1995. Við höfum haldið uppi skeleggri og skipulagðri baráttu gegn aðgengisákvæðinu í LR- TR samningnum. Við höfum barist fyrir því að fá ný lög LI samþykkt, lög sem tryggja okk- ur meira vægi í samtökunum. Við höfum reynt að bera klæði á vopnin í deilu sérfræðinga og heilsugæslulækna og leggja áherslu á það sem sameinar lækna í stað hins sem sundrar. Okkur hefur orðið vel ágengt í þessum málum. Rödd okkar heyrist nú miklu meira en áður innan LÍ meðal annars er for- maður FUL orðinn fastamaður í stjórn LÍ. Við höfum sýnt að við höfum heilmargt til málanna að leggja í heildarsamtökum lækna - vegna krafts okkar og lítilla sérhagsmuna. Þessum ár- angri höfum við náð með mark- vissri vinnu, samstöðu og ákveðni. Nú reynir á að fylgja okkar málum eftir. Reykjavík 30. október 1996, Páll Matthíasson Aðalfundur FUL Aðalfundur FUL var haldinn að Hlíðasmára 8, fimmtudags- kvöldið 31. október síðastlið- inn. Mæting var þokkaleg en langt frá því að vera viðunandi. Þetta á ekki síst við nú við upp- haf lokakafla jafn mikilvægs máls og aðgengismálið er. LIN málið er einnig mjög mikilvægt kjara- og réttindamál margra lækna og þó það sé í góðum far- vegi er ljóst að fyrir dyrum stendur mikil barátta og mála- rekstur. Mál málanna næstu mánuði verður þó án efa endur- nýjun kjarasamninga lausráð- inna sjúkrahúslækna þar sem styrk samstaða unglækna og annarra sjúkrahúslækna er hornsteinn þess að leiðrétting launa nái fram að ganga. Vegna breyttra aðstæðna hér heima, fækkunar útskrifaðra lækna- kandídata, væntanlegrar gildis- töku EB tilskipunar 93/104/EB um vinnuvernd og vaxandi eftir- spurnar erlendis frá er samn- ingsstaða unglækna betri nú en nokkurn tímann áður og mikil- vægt að nýta það til hins ýtrasta. Lagabreyting I stað flókinnar lagagreinar í fjórum liðum, þar sem skil- greindir voru þeir sem gátu gerst félagar, var samþykkt styttri og opnari grein með færri takmörkunum. Grein 3 hljóðar svo:

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.