Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1996, Side 66

Læknablaðið - 15.12.1996, Side 66
888 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 Skíða- kappar í Kerlinga- fjöllum Dagana 21.-24. júlí síðastliðinn dvaldi hópur lækna ásamt fjöl- skyldum við skíðaiðkun í Kerl- ingafjöllum. Ferðin tókst hið besta í alla staði. Á myndinni eru, taldir frá vinstri. Gestur Þorgeirsson, Uggi Agn- arsson, Karl G. Kristinsson, Reynir Tómas Geirsson, Sverrir Harðarson, Jónas Hallgrímsson og Ásgeir Haraldsson. íslensk erfðagreining Föstudaginn 22. nóvember síðastliðinn var fyrirtækið ís- lensk erfðagreining formlega opnuð. íslensk erfðagreining er stofnuð af íslenskum og banda- rískum aðilum en forstjóri stofnunarinnar er Kári Stefáns- son. Rannsóknarstofur eru búnar nýjustu og öflugustu tölvu- og tækjabúnaði á sviði erfðavísinda. í fréttatilkynningu segir, að á vegum stofnunarinnar verði leitað erfðafræðilegra orsaka sykursýki, gigtar, astma og fleiri algengra sjúkdóma. Til starfa hefur íslensk erfðagreining þegar ráðið hóp sérmenntaðra Islendinga sem margir hverjir hafa ekki til þessa fundið störf á sínu sviði hér á landi. Vegna einsleitni og langvar- andi einangrunar landsmanna Kári Stefánsson. Ljósm.: -jt- er þess vænst að erfðafræðilegar rannsóknir hér á landi muni jafnvel geta leitt til nýrra upp- götvana á því sviði. Að sögn Kára Stefánssonar mun ýtrustu varfærni verða gætt við með- höndlun sýnishorna og fyllstu leyndar um erfða- og læknis- fræðilegar upplýsingar er varða einstaklingana.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.