Læknablaðið - 15.04.1997, Síða 35
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
227
11 magabólgur og einn æðamisvöxt (angiodys-
plasia) í maga, ein speglun var ófullkomin og
fjórar speglanir voru eðlilegar. Kennimerki (stig-
mata) fyrir blæðingu voru hjá 28.
Fjörtíu og fjórir sjúklingar voru á sármyndandi
lyfjum en einungis átta þeirra á verndandi með-
ferð. Alkóhól var áhættuþáttur hjá 27 einstakling-
um. Þrjátítu og átta sjúklingar höfðu fyrri sögu
sársjúkdóms. Þrettán voru á sárverndandi lyfjum.
Sjö (7/38) voru á sármyndandi lyfjum en engum
verndandi. Við komu voru fjórir sjúklingar í losti,
sex þurftu á gjörgæslu að halda. Meðallegutími
var 8,5 dagar (bil 1-63), fimm einstaklingar dóu
(allir með krabbamein á lokastigi). Alls fengu 66
einstaklingar blóðgjöf 4,5 einingar að meðaltali.
Skurðaðgerðir voru 10, þrjár eftir blóðug uppköst
og sjö eftir sortusaur. Níu af 10 fóru í speglun en
einn beint í aðgerð. Fimm voru með skeifugarnar-
sár (fjögur blæðandi, eitt perf.), einn með maga-
sár, einn með Mallory Weiss, einn með garnar-
smokkun (intussuseption) á dausgörn (ileus),
einn með carcinoid tumor í skeifugörn og einn
með exfoliative simplex. Sjö (7/10) voru með
kennimerki fyrir blæðingu. Þrír höfðu sögu um
maga- eða skeifugarnarsár. Fjórir voru á sár-
myndandi lyfjum en enginn á verndandi lyfjum.
Tveir höfðu neyslu áfengis að baki.
Magaspeglunaraðgerðir voru fjórar, tvær eftir
blóðug uppköst og tvær eftir sortusaur. Tveir
höfðu kennimerki fyrir blæðingu, einn var með
æðaæxli (hemangioma ventriculi) og einn með
þrengingu á maga-/vélindamótum. Tveir höfðu
sögu um maga- eða skeifugarnarsár. Enginn var á
sármyndandi lyfjum eingöngu en tveir voru í
áfengisneyslu. Legutími var 28 dagar (bil 4-63) að
meðaltali og allir þurftu blóðgjöf, þrjár einingar
að meðaltali. Alls útskrifuðust 117 einstaklingar á
magalyfjum, 77 á prótónupumpulyfjum og 40 á
H2- blokkerum.
Jafnt er á komið fyrir kynjunum varðandi inn-
lagnir vegna blæðinga, konur virðast þó að jafn-
aði vera eldri. Of fáir eru á verndandi lyfjum ef
bólgueyðandi lyf eru notuð. Fáir þurfa á skurðað-
gerð að halda vegna blæðinga og dánartíðni er
lág.
E-16. Gallblöðrusmágirnistenging um
kviðsjá
Margrét Oddsdóttir, Jónas Magnússon
Frá handlækningadeild Landspítalans
Stíflun á gallpípu í brishaus vegna krabbameins
krefst yfirleitt aðgerðar. Oftast eru þessi æxli
óskurðtæk og sjúklingurinn á stutt eftir ólifað.
Stórar aðgerðir eru oft eini valmöguleikinn til að
veita galli afrás. Tveir sjúklingar með óskurðtækt
æxli í brishöfðinu komu nýverið á handlækninga-
deild Landspítalans. Til þess að létta á gallgöng-
um var gerð gallblöðrusmágirnistenging um kvið-
sjá. í báðum tilfellum gengu aðgerðirnar vel og
sjúklingarnir útskrifuðust heim á almennu fæði á
öðrum og þriðja degi.
Sýnd verða myndbönd úr aðgerðunum. Til-
gangurinn er að kynna fyrir skurðlæknum nýjan
aðgerðarmöguleika.
E-17. Lifrarúrnám vegna gallblöðru-
steina
Kristinn Eiríksson*, Margrét Oddsdóttir*, Pétur
Hannesson**,Kristrún R. Benediktsdóttir***,
Jónas Magnússon*
Frá *handlækningadeild Landspítalans, **rönt-
gendeild Landspítalans, ***Rannsóknastofu HÍ í
meinafræði
Fimmtíu og eins árs gömul kona leitaði til heim-
ilislæknis síns vegna óþæginda undir bringspölum
hægra megin. Fékk ekki slæm köst en óþægindi
voru viðvarandi. Ómun af lifur, gallvegum og
brisi sýndi 7 cm hnöttótta fyrirferð í miðlæga
(medial) hluta vinstri lifrarlappa, útlit samrýmd-
ist æðaæxli (hemangioma). Æxlið lá alveg að gall-
blöðru. Einnig sýnt fram á stein í gallblöðru
(cholesystolithiasis). Fylgst var með ástandi og
þótti aðgerð ekki fýsileg. Fyrirferð stækkaði ekki
en steinn stækkaði í gallblöðru. Sjúklingur hafði
af og til óþægindi sem urðu verri, en fékk aldrei
gulu. Sjúklingur var lagður inn á Landspítalann til
gallblöðrutöku. Farið var inn með kviðsjá og gerð
ómun til að glöggva sig á ástandi. Ómun sýndi vel
afmarkaða fyrirferð, minnsta fjarlægð frá hlið
(hilus) var 2-3 cm. Gallblaðra lá alveg upp við
æðaæxlið þannig að ekki kom til greina að gera
annað en úrnám (resection) á fyrirferð ásamt gall-
blöðrutöku. Gerður var skálaga skurður undir
hægra rifjabarð og CUSA tæki notað til úrnáms á
fyrirferð. Þannig voru æðaæxli og gallblaðra fjar-
lægð um leið.
Vefjameinafræðirannsókn leiddi í ljós að um
hvernuæðaæxli (cavernous hemangioma) væri að
ræða og gallblöðru með vöðvaauka (-hypertro-
phia), væga króníska bólgu og gallstein.
Með því að fara með kviðsjá inn í kviðarhol var
hægt að meta hvernig lega gallblöðrunnar var
með tilliti til fyrirferðarinnar. Þegar síðan kom í
ljós að ekki var hægt að gera gallblöðrutöku án
hættu á rofi á fyrirferð, var hægt að meta umhverfi
æxlisins með ómskoðun í aðgerðinni og síðan fjar-
lægja æxli, með gallblöðrunni.