Læknablaðið - 15.04.1997, Side 42
234
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
litla upptöku í bankabeininu. Var meðal annars
haft samband við prófessor Mankin um hvað væri
best til ráða og taldi hann skynsamlegast að
spengja brotna bankabeinið ef það greri ekki með
spelkumeðferð. í millitíðinni hafði brotið hliðrast
og nærendi brotsins stungist út í gegnum húðina.
Var gerð aðgerð og bankabeinið spengt með
langri spöng. Voru til staðar punktblæðingar í
bankabeininu en greinilegt að blóðflæði beinsins
var lélegt. Skrúfur fengu mjög gott hald í banka-
beininu en öllu lakara en þó vel viðunandi hald í
eigin beini sjúklings. Að auki var tekið bein frá
mjaðmarspaða sjúklings og lagt að broti. Reiknað
var með því að sjúklingur fengi sveifarlömun eftir
aðgerðina sem reyndist þó ekki. Skurðsárið greri
án aukaverkana og ekki hefur enn bólað á sýk-
ingu. Samkvæmt röntgenmyndum sex mánuðum
eftir aðgerð virðist brotið vera að gróa og líðan er
þokkaleg.
Umræða: Algengast er að bankabein brotni á
fyrstu árum en brot án áverka 19 árum eftir upp-
haflega aðgerð er mjög óvenjulegt. Eftir 19 ár var
bankabeinið enn illa æðavætt (vascularized) þótt
það væri gróið við upphandlegginn. Sjálft banka-
beinsbrotið virðist vera að gróa. Við brot eins og
þetta er enginn góður kostur til þótt endirinn í
þetta skiptið virðist ætla að vera farsæll.
E-31. Ilizarovs aðgerðir á bæklunardeild
Fjórðungsjúkrahússins á Akureyri.
Sjúkratilfelli
Þorvaldur Ingvarsson
Frá bœklunar- og slysadeild Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri
Um miðjan níunda áratuginn voru fyrstu að-
gerðir að hætti Ilizarovs framkvæmdar á bæklun-
ardeild FSA, lögðust þær smám saman af. Síðar
hafa orðið miklar framfarir, sérstaklega vegna
nýrrar vitneskju og getu til að lengja útlimi svo og
græða sýkt beinbrot. Árið 1995 var fenginn nýr
búnaður sem gerði mögulegt að hefja aðgerðir að
nýju. í framhaldi af því hófust aðgerðir að nýju í
samstarfi við bæklunardeildina í Lundi í Svíþjóð.
Hér á eftir verður sjúkratilfellum lýst.
1. Níu ára gamall drengur hlaut mikinn fjöl-
áverka, þar á meðal opið brot á lærlegg og sköfl-
ungi. Vaxtarstöðvun varð í vinstri ganglim og
reyndist hann 10 cm styttri en sá hægri. Einnig var
lömun í fæti neðan ökkla. Þessu fylgdi mikil helti
og vaggandi göngulag. Gerð var lengingaraðgerð
og sköflungurinn lengdur um 8 cm. Tók lengingin
tvo og hálfan mánuð og var ramminn tekinn eftir
sjö mánuði. Drengnum líður ágætlega en vegna
vaxtarstöðvunar er áætlað að lengja lærlegg hans
þegar hann hefur tekið út vöxt.
2. Sex ára stúlka fædd með Albrights heilkenni
og trefjarangvöxt (fibrous dysplasia) í nær öllum
hægri helmingi líkamans. Brotnaði þrisvar í gegn-
um hægri lærleggsháls og upp úr því hafði lær-
leggsháls og hnúta afmyndast í æxlisberði, um
barnhöfuðsstórt. Stúlkan kom á barnabæklunar-
deildina í Lundi í Svíþjóð og var allur nærhluti
lærleggs fjarlægður. Beinflutningur og eftirmeð-
ferð fór síðan fram við FSA.
3. Sjómaður á sextugsaldri hlaut opið sköfl-
ungsbrot á skipi undan strönd Kanada. Fékk
frummeðferð þar. Við komu á FSA hafði hann
sýkingu og var brotið enn opið. Smám saman
þróaðist sýktur brotaliður. Settur var Ilizarovs
rammi og flutt til bein og greri hann á þremur
mánuðum.
Rúmlega tvítugur maður með brjóskkröm
(achondroplasia) sem var 146 á hæð og hafði
mikla varusstöðu á báðum leggjum. Hann var
lengdur með Ilizarovs tækninni um 6 cm og var-
usstaða lagfærð. Voru rammar á í sex mánuði.
Nú eru tveir sjúklingar í eða að ljúka meðferð.
Árangur er sambærilegur og erlendis en fjöldi
fylgikvilla er talsverður (pinnasýkingar og þreytu-
brot). Talsverðan fjölda aðgerða þarf að gera til
að ná tökum á Ilizarovs tækninni og því er mikil-
vægt að myndað sé teymi um hana hér á íslandi.
E-32. í minningu Ilizarovs
Þorvaldur Ingvarsson
Frá bœklunar- og slysadeild Fjórðungsjúkrahúss-
ins á Akureyri
Ilizarovs aðgerðir eru kenndar við prófessor
Ilizarov sem fæddist í júní 1921 og lést 1993 í Kurg-
an í fyrrum Ráðstjórnarríkjunum. Sagt er að hann
hafi uppgvötað lengingaraðferð sína fyrir tilviljun
er hermaður sem lá brotinn í strekk neðan hnés
lengdist meðan á meðferð stóð. Hóf Ilizarov til-
raunir á hundum og sýndi fram á að hægt væri að
lengja og flytja til bein. Einnig rannsakaði hann
áhrif á mjúkvefi (taugar, æðar, vöðva og sinar).
Tækni Ilizarovs byggist á því að settur er hring-
laga rammi um útliminn og hann festur með mjó-
um vírum í gegnum bein. Beinið er tekið í sundur
með sem minnstum áverka fyrir mjúkvefi og bein-
himnu. Ramminn er síðan skrúfaður í sundur um
1 mm á dag þar til réttri lengd er náð. Loks er
beðið eftir því að beinið grói. Það er hægt að
lengja útlimi um allt að 20 cm með þessari aðferð.
Rammann þarf að setja þannig að sjúklingurinn
geti stigið í fótinn og haft fríar hreyfingar um
aðlæga liði. Þessi festingartækni sýndi sig vera
mjög stöðug þannig að ekkert verkfæri til ytri
festingar hefur enn skákað því.
Tækni Ilizarovs barst til Vesturlanda urn Ítalíu