Læknablaðið - 15.04.1997, Blaðsíða 65
253
Um stöðuveitingar lækna
-ara skrifa er aug-
'íl.thl. Lækna-
'óðaði svo:
Hcilsu-
•m er
nema hvað hún var tekin af
mönnum scm hingað til hafa
þótt rökvísir og áreiðanlegir.
Gefið sig út fyrir gott fordæmi f
kcnnslu læknanema. Byggt upp
ímynd sem hugsandi og mót-
andi heilsugæsla samanber Eg-
■'sstaðakerfið. Auk þess gagn-
‘ aðra fyrir misjöfn vinnu-
samanber grein Stefáns
nar í 12. tbl. Lækna-
.Innantökur illar
Draumur og
veruleiki
segir hann
nflanum
bess
þá grein, þar sem mest þörf er á
læknum og ætti að vera grunnur
læknisþjónustu, það er hcilsu-
gæslu. Það skýtur því skökku
við að Egilsstaðamenn skuli
hafa unglækna að ginningarfífl-
um með því að auglýsa eftir
þeim og ráða svo sérfræðing í
hcimilislækningum í stöðuna
scm getur engan veginn uppfyllt
cina skilyrði auglýsingarinnar.
Ekki eru þessi vinnubrögð lík-
lcg til að auka nýliðun í hcilsu-
gæslulækningum.
Rcykjavík 29. janúar 1997
Með fyllstu virðingu.
Helgi Birgisson
•ður Einarsson
•r Sigurðsson
Um stöðuveitingar lækna
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
ig vegna styttri viðdvalar ung-
lækna eftir útskrift. Ljóst er að
vegna versnandi kjara hér
heima er þróunin sú að læknar
dvelja í tvö til fjögur ár eftir út-
skrift heima í stað þriggja til
fimm ára áður. Á hverjum tíma
eru unglæknar því um 30 til 40
færri en áður.
Aukin eftirspurn stafar með-
al annars af læknaskorti í
Evrópu. Því hefur verið spáð að
breytingar í Evrópu hafi ekki
áhrif hér fyrr en um það bil 10
árum síðar. Þetta er rangt.
Komið hefur í ljós að skortur
þar hefur strax áhrif hér, meðal
annars vegna EES. Þar hefur
tilskipun Evrópuráðsins 93/104/
EB um ákveðna þætti er varða
skipulag vinnutíma einnig mikil
áhrif á eftirspurnina. Niður-
staðan er því sú að íslenskir
læknar leita út.
I þriðja lagi nefndi ég breytt
hugarfar og kemur það fram í
mörgum atriðum. Við erum nú í
alþjóðlegra umhverfi vegna sí-
fellt aukinna samskipta milli
þjóða. Leiksviðið er án tak-
markana ef svo mætti til orða
taka, meðal annars fyrir til-
stuðlan bættra samgangna og
samskiptatækni. Okkarkynslóð
lækna býr einnig við allt annað
uppeldi en eldri læknar þar sem
margir unglæknar eru lækna-
börn og þannig alin upp í er-
lendum samfélögum. Átthaga-
fjötrar þeirra eru augljóslega
minni en margra annarra og
auðveldara fyrir þá að ílengjast í
sínu fósturlandi eftir nám.
í samantekt stefnir því í veru-
legan skort á læknum hér innan
fárra ára og alls óvíst hvernig
þau mál þróast. Miðað við
starfsumhverfi okkar núnar er
ekki líklegt að unglæknar á leið í
sérnám skili sér til baka þegar á
þeim verður mest þörf,“ sagði
Helgi Hafsteinn Helgason að
lokum.
-jt-
í nóvember síðastliðnum
þurfti að auglýsa eftir lækni til
starfa á Egilsstöðum. Um var að
ræða stöðu fjórða heilsugæslu-
læknisins. Staða þessi er nýlega
fengin og fylgdu henni engar
kvaðir eða óskir um eðli hennar
hvorki frá ráðuneytinu né
læknadeildinni.
Læknar hér áttu sér þann
draum að reyna að helga stöð-
una ungum læknum sem hygðu
á sérnám í heimilislækningum.
Fékkst því framgengt að höfðað
yrði sérstaklega til þeirra þrátt
fyrir vissa andstöðu í stjórn þar
sem fram komu þau rök að
styrkja þyrfti fastalið stöðvar-
innar. Var því auglýst eftir
lækni í eitt ár og staðan „helst
ætluð lækni sem hyggur á sér-
nám í heimilislækningum".
Þremur mánuðum seinna
þegar kom að því að veita stöð-
una höfðu veður skipast í lofti.
Við blasti að í þremur ná-
grannahéruðum okkar voru all-
ir læknarnir að hverfa á brott
við svo búið. Þetta voru allt
reyndir læknar og ríkti mikil
óvissa um arftaka þeirra. Því
var fyrirsjáanlegt að meira
myndi mæða á stöðinni á Egils-
stöðum á næstunni meðan jafn-
vægi væri að skapast á ný í ná-
grannabyggðunum.
Umsækjendur voru þrír, allt
hinir mætustu menn, sem við
þekktum að góðu einu. Tveir
voru unglæknar og einn var sér-
fræðingur í heimilislækningum
með starf í einu hinna læknis-
lausu nágrannahéraða að baki.
Var nú úr vöndu að ráða. Átti
að velja unglækni í ljósi auglýs-
ingarinnar og með framtíð fags-
ins í huga eða átti að láta það
vega þyngra að styrkja starf
stöðvarinnar og þjónustu henn-
ar með hagsmuni nágranna
okkar í huga?
I ljósi þessa veruleika sem við
blasti mælti meirihluti lækna-
ráðs með hinum sérmenntaða
lækni til starfsins. Verður hver
að leggja sinn dóm á það mat.
Ekki varð gert svo öllum líki.
En ætli við búum ekki öll í gler-
húsi ef grannt er skoðað.
Stefán Þórarinsson
Gísli Baldursson
Pétur Heimisson
P.s. Lífið er hverfult. Nú þarf
enn að auglýsa eftir lækni til Eg-
ilsstaða þar sem einn af fasta-
mönnum er að skipta um vinnu-
stað. Eru tillögur að orðalagi
auglýsingarinnar vel þegnar.