Læknablaðið - 15.04.1997, Síða 79
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
265
Dreifíbréf landlæknisembættisins nr. 6/1997
í samráði við berklayfirlækni
hefur verið ákveðið að almenn
berklapróf í skólum skuli af-
numin frá og með hausti 1997.
Akvörðun þessi er byggð á
rannsókn á gildi slíkra berkla-
prófa á undanförnum áratugum
(Læknablaðið 1996; 82: 690-8).
Berklaveiki og berklasmitun
greinast nú hér á landi helst hjá
innflytjendum, einkum frá
svæðum í heiminum þar sem
berklar eru útbreiddir. Því er
ráðlegt að berklaprófa börn
sem flust hafa til Islands frá slík-
um svæðum. Rétt er að gera það
þegar þau koma til landsins og
ekki síðar en þegar þau hefja
skólagöngu. Sama gildir um
Berklaprófanir í skólum
börn sem fæðst hafa á íslandi en
eiga foreldra eða foreldri sem
eru innflytjendur frá áður-
nefndum svæðum heimsins.
Svæði þau sem um er rætt eru
Asía, Afríka, Suður- og Mið-
Ameríka og Austur-Evrópa.
Lagt er til við fyrsta viðtal og
skoðun í skólum verði spurt eft-
irfarandi spurninga:
1. Hvar ertu fædd/ur?
2. Hvaðan eru foreldra þínir?
3. Hefur þú búið erlendis, hvar
og hvað lengi?
Ef barnið, foreldri eða for-
eldrar eru fædd á ofangreindum
svæðum, eða barnið hefur dval-
ið þar eitt ár eða lengur skal
gera berklapróf.
Berklapróf telst jákvætt við
þrota 10 mm. Jákvætt berkla-
próf er merki um að barnið hafi
smitast af berklabakteríu í
heimalandinu eða á íslandi.
Þessi berklapróf skulu ein-
ungis gerð þegar barn hefur
skólagöngu hér á landi án tillits
til aldurs barnsins. Öllum sem
reynast jákvæðir á berklaprófi
skal vísað á lungna- og berkla-
varnadeild Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur til frekari
rannsókna. Ef greining er gerð
utan Reykjavíkursvæðisins skal
hafa samráð við lungna- og
berklavarnadeildina um að-
gerðir.
DPT 4 fjórum til fimm árum eft-
ir DPT 3.
Athugið að DPT er ekki gefið
börnum eldri en fimm ára, í
staðinn skal nota DT til sjö ára
aldurs, og eftir það dT. Ef frum-
bólusetning gegn stífkrampa og
barnaveiki er gefin eftir sjö ára
aldur skal gefa dT 0,5 ml með
sex til átta vikna millibili og örv-
unarskammt sex til 12 mánuð-
um síðar.
Skýringar.
DPT = Barnaveiki (diphteria
toxoid - 20Lf), kíghósti (pert-
ussis-heilfruma), stífkrampi
(tetanus toxoid - 5Lf).
DT = Barnaveiki (diphteria
toxoid - 20Lf), stífkrampi (tat-
anus toxoid - 5Lf).
dT = Barnaveiki (diphteria
toxoid - 2Lf), stífkrampi (tatan-
us toxoid - 5Lf).
Slóð heimasíðu
landlæknisembættisins
Almenn heimasíða landlæknisembættisins er:
http://www.landlaeknir.is
Rétt þykir að benda á að ýmiss konar fróðleik
um heilbrigðismál er að finna á heimasíðu em-
bættisins.