Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1997, Blaðsíða 88

Læknablaðið - 15.12.1997, Blaðsíða 88
AUGMENTIN; J 01 C R 02, R O MIXTÚRUDUFT 25 mg amoxicillín + 6,25 mg klavúlansýra / ml. MIXTÚRUDUFT 50 mg amoxicillín + 12,5 mg klavúlansýra / ml. TÖFLUR 250 mg ainoxicillín + 125 mg klavúlansýra / tafla. TÖFLUR 500 mg amoxicillín + 125 mg klavúlansýra / tafla. TÖFLUR 875 mg arnoxicillín + 125 mg klavúlansýra / tafla. Eiginleikar: Lyfið er blanda af amoxicillíni og klavúlansýru, sem breikkar verkunar- svið amoxicillíns, sem þar með verður virkt gegn mörgum sýklategundum, sem framleiða beta-laktamasa, t.d. klasasýklum, H. influenzae, Branhamella catarrhalis og B. fragilis, N. gonorrhoeae og mörgum Gram- neikvæðum stöfum. Amoxicillín hefur sýkladrepandi verkun, en klavúlansýra hefur nánast enga beina verkun á sýkla. Bæði efnin frásogast vel frá meltingar- vegi og er frásog best þegar lyfið er tekiö fyrir máltíð. Helmingunartími er u.þ.b. I klst. Próteinbinding amoxicillíns er 18% og klavúlansýru 25%. Bæði efnin útskiljast í virku formi með þvagi. Ábendingar: Sýkingar af völdum sýkla, sem eru næmir fyrir lyfjablöndunni. Frábendingar: Ófnæmi fyrir beta-laktam lyfjum, t.d. penicillíni og cefalóspórínsamböndum. Mononucleosis. Saga um gulu eða skerta lifrarstarfsemi, sem tengist gjöf á Augmentin eða skyldum lyfjum. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki hefur verið sýnta fram á vanskapandi áhrif á fóstur af völdum lyfsins í dýra- tilraunum. Þar sem reynsla af notkun lyfsins á meðgöngu er takmörkuð skal forðast notkun lyfsins hjá þunguðum konum, einkum á fyrsta þriðjungi meðgöngutíma, nema brýna nauðsyn beri til. Konur með böm á brjósti mega nota lyfið. Aukaverkanir: Niður- gangur, ógleði og uppköst koma fyrir. Einkenni l'rá meltingarvegi eru minni, ef lyflð er tekið fyrir máltíð. Húðútbrot (auknar líkur við veirusýkingar). Alvarlegt ofnæmi, svo sem toxic epidermal necrolysis, lost og urticaria sjást. Nokkrum tilvikum af pseudomembranous colitis hefur verið lýst. Hætta skal gjöf ef útbrota verður vart. Lifrarbólga og gula (stíflumynd) getur komið fyrir í einstaka tilvikum, einkum hjá fullorðnum og öldruðum sjúklingum og gctur verið alvarleg. Einkenni koma oftast fram meðan á meðferð stendur, en getur orðið allt að 3 vikum eftir að meðferð er hætt. Lifrarbólgan gengur oftast yfir, en í einstaka tilvikum hefur hún leitt til dauða. Alltaf hefur verið um alvarlega veika sjúklinga að ræða með undir- liggjandi sjúkdóma og á mörgum örðum lyfjum. Væg hækkun lifrarenzýma hel'ur sést hjá sjúklingum, sem eru á meðferð með ampicillíni og skyldum lyfjum, en óvíst er um þýðingu þessa fyrirbæris. Candida- sýkingar í meltingarvegi (sjaldan). Fækkun á blóðflögum og hvítum blóðkomum svo og lenging á blæðinga- tíma og prothrombintíma hefur verið lýst. Milliverkanir: Próbenecíð seinkar útskilnaði amoxicillíns, en ekki útskilnaði klavúlansýru. Því er ekki mæll með samtímis gjöf próbenecíðs og Augmentin. Samtímis gjöf ampicillíns og allópúrínóls eykur líkur á útbrotum, hugsanlegt er, en þó ósannað, að hið sama gildi um amoxicillín. Eins og önnur breiðvirk sýklalyf getur Augmentin dregið úr virkni getnaðarvíimataflna. Varúö: Við skerta nýmastarfsemi (kreatínínklcrans < 30 ml/mín.) þarf að minnka skammta fyrir 250 mg + 125 mg töflur og 500 mg + 125 mg töflur og ekki á að nota 875 mg + 125 mg töflur. Gæta skal varúðar hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Vegna aspartam- innihalds mixtúrunnar skal gæta varúðar hjá sjúklingum með fenýlketonureu. Skainmtastærðir handa fullorönum: Venjulegur skammtur er ein tafla 250 mg + 125 mg þrisvar sinnum á dag. Við alvar- legum efri Ioftvegasýkingum og lungna- sýkingum ein tafla 500 mg + 125 mg þrisvar sinnum á dag eða ein tafla 875 mg + 125 mg tvisvar sinnum á dag. Æskilegt er að gefa lyfið fyrir máltíð. Ú í 'i'M' l amoxicillín + klavúlansýra CjJ y] jIjI Mf Iq löfluR ÁðHNS WMM á Fj. stofna nœmir (%) Penisillín V/G Amp isillín/A m oxýsill Amoxýsillín+klavúlansýra 1. kynsl. Kefalósp. Kefúroxím Erýþrómýsín Trímetóprím-súlfa """ Æ j S. pneumoniae H. influenzae M. catarrhalis Strept. pyogenes Staph. aureus 5-60% [ | <5% Sýklafræðideild L.sp. KGK, maí 1996 ÁKJÓSANLEGT FYRSTA LYF ÞEGAR MEÐHÖNDLA Á SÝKINGAR í EFRI LOFTVEGUM SkammtastærOir handa börnum: Líkams- Dagsskammtur 20 mg/kg 40 mg/kg þyngd (venjulegur skammtur) (við alvarlegar sýkingar) Mixtúra 25 mg + 6,25 mg/ml (1 ml mixtúra = 25 mg amoxicillín): 5-6 kg 11/2 ml x 3 3 ml x 3 7-9 kg 2 ml x 3 4 ml x 3 10-12 kg 3 ml x 3 6 ml x 3 Mixtúra 50 mg + 12,5 mg/ml; (1 ml mixtúra = 50 mg amoxicillín): 7-9 kg 1 ml x 3 2 ml x 3 10-12 kg 11/2 ml x 3 3 ml x 3 13-19 kg 2 ml x 3 4 ml x 3 20-30 kg 3 ml x 3 6 ml x 3 >30kg" 4-5 ml x 3 8-10 ml x 3 Athugið: Fullbúin mixtúra hefur 7 daga geymsluþol í ísskáp (2-8°C). Pakkningar og verö (desember 1996): Mixtúruduft 25 mg + 6,25 mg/ml: 80 ml....................897 kr. Mixtúruduft 50 mg + 12,5 mg/ml: 80 ml ............ 1.587 kr. Töflur 250 mg + 125: 16 stk. (þynnupakkað).... 1.257 kr. Töflur 500 mg + 125 mg: 16 stk. (þynnupakkað).....2.194 kr. Töflur 875 mg + 125 mg: 12 stk. (þynnupakkað).....2.444 kr. SB SmithKhne Beecham Thorarensen lyf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.