Læknablaðið - 15.12.1997, Blaðsíða 38
822
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Table IV. Prevalence (%) of one or moresymptoms ofabuse amongsubgroups ofalcoholconsumers as divided by different time
passed from last alcohol consumption. Symptoms detected by the three questionnaires listed in table /. Comparison with
gamma-glutamyl transferase (G-GT) and mean corpuscular volume (MCV).
Last alcohol consumption Prevalence (%) of symptoms of abuse G-GT (SD) MCV (SD)
Last week: 30.5% 23.5 (25.5) 94.3 (5.2)
> 1 of symptoms 1-13 (14.9) 53.0 (49.8) 96.1 (8.8)
> 1 of symptoms 1-8 (6.4) 74.0 (69.4) 96.7 (15.0)
> 1 of CAGE symptoms (6.4) 72.7 (71.0) 100.0 (12.7)
1-4 weeks ago: 36.4% 24.3 (24.4) 92.9 (4.7)
> 1 of symptoms 1-13 (12.5) 23.8 (17.0) 90.6 (6.4)
> 1 of symptoms 1-8 (8.9) 28.7 (16.9) 90.8 (7.5)
> 1 of CAGE symptoms (7.1) 28.3 (17.5) 95.3 (2.1)
1-3 months ago: 15.6% 22.5 (12.1) 93.2 (3.9)
> 1 of symptoms 1-13 (16.7) 22.5 (7.3) 94.3 (1.7)
> 1 of symptoms 1-8 (12.5) 24.0 (8.2) 94.0 (2.0)
> 1 of CAGE symptoms (12.5) 22.7 (9.0) 94.3 (2.1)
3-12 months ago: 13% 16.3 (7.1) 90.7 (3.8)
> 1 of symptoms 1-13 (15.0) 25.3 (4.2) 88.7 (1.5)
> 1 of symptoms 1-8 (10.0) 26.0 (5.7) 89.5 (0.7)
> 1 of CAGE symptoms (10.0) 21.0 (1.4) 88.0 (1.4)
Over one year ago: 4.6% 22.4 (25.6) 95.6 (4.7)
> 1 of symptoms 1-13 (42.9) 34.0 (39.8) 96.7 (2.1)
> 1 of symptoms 1-8 (28.6) 45.5 (48.8) 97.5 (2.1)
> 1 of CAGE symptoms (28.6) 45.5 (48.8) 97.5 (2.1)
Non-consumers 18.4 (13.6) 91.6 (3.6)
Units: G-GT: (U/L), MCV: (fl.)
SD = standard deviation
spurningarlistum. Gildi gamma glútamýl
transferasa og meðalfrumurýmis rauðra blóð-
korna eru hærri hjá öllum sem hafa einkenni
um misnotkun borið saman við hópinn í heild.
Enn meiri munur finnst þegar samanburður er
gerður við þann hóp sem ekki neytir áfengis.
Misnotkunarhóparnir eru hinsvegar svo litlir
að munurinn er ekki marktækur þegar leiðrétt
hefur verið með Bonferroni ójöfnu.
Tafla IV sýnir meðaltöl blóðprófa borin
saman við annarsvegar mismunandi tíma sem
liðið hafi frá síðustu áfengisneyslu og hinsvegar
fjölda misnotkunareinkenna innan þessara
hópa. Um þriðjungur áfengisneytenda hafði
neytt áfengis undanfarna viku. Tveir þriðju
áfengisneytenda höfðu neytt áfengis undanfar-
inn mánuð. Mjög sjaldgæft var að meira en
hálft ár hefði liðið frá síðustu áfengisneyslu.
Tafla V sýnir meðaltöl blóðprófa borin sam-
an við annarsvegar mismunandi tíðni áfengis-
neyslu og hinsvegar fjölda misnotkunarein-
kenna innan þessara hópa. Tæplega helmingur
áfengisneytenda neytir áfengis mánaðarlega
eða oftar. Einungis 5,9% áfengisneytenda
(3,5% svarenda) neyta áfengis vikulega eða
oftar. Þar af drekka 3,3% áfengisneytenda
(1,9% svarenda) daglega eða nokkrum sinnum
í viku. Mikill meirihluti drekkur sjaldnar en
vikulega. Áfengisneysla nokkrum sinnum í
mánuði er álíka algeng og mánaðarleg neysla.
Meira en helmingur áfengisneytenda neytir
áfengis sjaldnar en mánaðarlega.
Skimblóðprófin (tafla VI): Gamma glúta-
mýl transferasi yfir viðmiðunargildum (>40
U/L) fannst hjá 9,1% áfengisneytenda. Ein-
kenni um áfengismisnotkun fundust einungis
hjá 38,5% af þessum hópi. Þannig er í yfir
helmingi tilfella (61,5%) um falskt jákvæða
hækkun að ræða. Gamma glútamýl transferasi
fer að jafnaði hækkandi með vaxandi fjölda
einkenna.
Alkalískur fosfatasi fannst ekki yfir viðmið-
unargildum (>280U/L).
Bílírúbín fannst yfir viðmiðunargildum
(>1,0 mg/dL) hjá 2,9% áfengisneytenda.
Einkenni um áfengismisnotkun fundust ekki
nteðal þessa hóps og er því í öllum tilfellum um
falskt jákvæða hækkun að ræða.
Meðalfrumurými rauðra blóðkorna yfir við-
miðunargildum (>100 fl.) fannst hjá 5,9%
áfengisneytenda. Einkenni um áfengismis-
notkun fundust einungis hjá 11,1% af þessum