Læknablaðið - 15.12.1997, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
813
Table I. Incidence of tuberculosis according to geographic area.
Country of birth Number of TB cases TB cases/100,000/year
lceland 436 8.4
Other countries than lceland: 32 18.0
American 5 18.8
Asian 19 173.7
European (except Nordic countries) 3 5.9
Nordic (except lceland) 5 6.0
Fig. 1. Percentage of TB cases among foreign-born individu-
als in 1975-1996. A dramatic increase was noted during the
latter part of the period.
Number of TB cases /100,000/ year
Fig. 2. A comparison ofTB rates in Iceland with and without
foreign-born individuals. No difference is noted until 1989-
1990.
þessari rannsókn var sömu skilmerkjum beitt
til að meta ábendingu meðferðar. Einnig geta
önnur atriði ýtt undir að veita meðferð þótt
viðkomandi sé eldri en 35 ára svo sem bris í efri
hlutum lungna á röntgenmynd, ónæmisbæling,
saga um berkla í fjölskyldu- eða umgengnis-
hópi eða að viðkomandi hafi nýlega verið út-
settur fyrir berklatilfelli. Fyrirbyggjandi með-
ferð var talin fullnægjandi ef ísóníasíð var gefið
í að minnsta kosti sex mánuði.
Heilbrigðisskoðun með tilliti til berkla var
talin fullnægjandi ef berklapróf var framkvæmt
og í framhaldi af því tekin röntgenmynd af
lungum ef prófið reyndist jákvætt. Ef báðar
rannsóknirnar voru gerðar samtímis var heil-
brigðisskoðun líka talin fullnægjandi en í þeim
tilvikum var röntgenmyndataka stundum
óþörf.
Við útreikninga var notað kí-kvaðratspróf.
Niðurstöður
Berklaveikir á árunum 1975-1996: Af 468
greindum berklatilfellum á Islandi á árunum
1975-1996 voru 32 meðal innflytjenda (tafla I).
Hlutfall innflytjenda meðal berklaveikra jókst
marktækt (p<0,001) á tímabilinu og átti öll
aukningin sér stað frá árinu 1989. Undir lok
rannsóknartímabilsins var svo komið að fjórð-
ungur tilfellanna var meðal innflytjenda (mynd
1). Nýgengi berkla á tímabilinu var 18,0 tilfelli
á 100.000 á ári meðal innflytjenda, en 8,4 á
100.000 á ári meðal innfæddra íslendinga
(p<0,001). Nýgengi berkla meðal þeirra sem
komu frá Asíu var 173,7 tilfelli á 100.000 á ári
eða 21 sinnum hærra (p<0,001) en meðal inn-
fæddra (tafla I). Engir sem komu frá Afríku
eða Eyjaálfu greindust með berkla á árunum
1975-1996 enda fáir sem fluttust þaðan. Þróun
nýgengis berkla á tfmabilinu sést á mynd 2.
Greining berklaveikra: Af þeim 32 innflytj-
endum sem greindust með berkla fannst einn
fjórði eða átta einstaklingar vegna kröfu um
vottorð (heilbrigðisskoðun) þegar þeir komu